25 apríl 2006

Sjálfsafgreiðsla í dag

Venjulega er hann Grímur mjög duglegur að sofa á nóttunni,eins og hefur kannski komið fram. Í gærkvöldi sofnaði hann um 11 áður ég byrjaði einu sinni á að syngja háttatímalagið 'Dvel ég í draumahöll og dagana lofa...'. Var afskaplega ánægð með þetta,en svo glaðvaknaði minn þegar við fórum að sofa kl. 1. (Já,ég veit,ég þarf að fara fyrr að sofa:) Þar sem við Hallur vorum sannfærð um að hann væri ekki svangur,heldur að láta reyna aðeins á okkur 'glímdi' Hallur við hann í um tvo tíma,ég var komin fram í sófa með sængina,enn slöpp eftir kvefpestina og að 'farast' úr hálsbólgu. Svo blundaði litli kútur þangað til ég læddist upp í rúm,kl.4 og þá var komin á drekkutíma. Svo hélt það fyrir mér vöku,hvað það var ferlega vont að kyngja,böhö átti svo bágt.

Kl. 7 vaknaði svo litli kútur og í fantastuði - ég stakk upp á að fengi frí í dag og það væri bara sjálfsagreiðsla á brjóstamjólkina. Hann íhugaði tilboð mitt og hafnaði því. Ég var s.s. virkilega mygluð þarna í morgunsárið.

En það er bjartara yfir núna,við fórum í göngutúr með Grím í Baby Björn burðarpokanum,komum við í Melabúð og eftir það steinsofnaði minn og liggur nú í vagninum við opna svalahurð. Ég er pásunni feginn og sötra minn pilsner (bara til að örva mjólkurframleiðslu:),um að gera að styðjast við svona skemmtilega mítu) og narta í sesambrauðsneið með geitaosti,nammi,namm.

20 apríl 2006

Ein flensa,tveir úr leik

Við fjölskyldan erum nú í rólegheitum heima,alveg sérlega miklum rólegheitum,þar sem að við Hallur liggjum í andstyggilegri flensu. Grímur er þó sem betur fer hress.

Við vorum fyrir norðan yfir páskana,í bústað sem er hinum megin við fjörðinn frá Akureyri,mjög skemmtileg staðsetning. Þar slöppuðum við af,röltum um bæinn,fórum í sund og nörtuðum í páskaegg. Borðuðum páskamatin með móðursystur hans Halls og fjölskyldu. Við enduðum reyndar kvöldið á spítalanum til að láta kíkja á Grím,hann hafði verið slappur,farin áð leka úr nefinu og með gröft í augunum. Það var sem betur fer ekkert alvarlegt,hann var með fimm kommur en annars í lagi með hann.
Ég var reyndar þá komin með sömu sýkingu í augað og að verða slöpp,lak úr augunum og ég vaknaði annað slagið um nóttina með samanlímd augun,mjög geðslegt.

Vonandi förum við að skríða saman, á morgun er 75 ára afmælisveisla hjá ömmu Halls og við viljum mæta með bros á vör.

12 apríl 2006

Nóg af myndum og þarf ekki lengur lykilorð

Er núna nóg inni af nýjum myndum á http://www.flickr.com/photos/hildigunnur99 - ég breytti uppsetningunni þannig að núna þarf ekki að skrá sig inn með notandanafni og lykilorði til að sjá nýjustu myndirnar,það reyndist allt of flókið. Áður þurfti bara að skrá sig á einfaldan hátt hjá flickr.com,en núna þarf maður að skrá í leiðinni netfang hjá Yahoo og er það of flókið til að allir nái því.
Kíktu því á myndirnar!

Vor í lofti

Nú er vorið á næsta leiti,ég finn það í beinunum. En hvað ég hlakka til.

Við fórum í fyrsta tímann í ungbarnasundi í Reykjalundi hjá honum Ólafi í gær. Við höfðum farið með Grím í sund sjálf í annað sinn á laugardaginn,í Árbæjarlaugina. Sundið gekk mjög vel í gær - Hallur var á Laugarvatni í vinnuferð,þannig að pabbi kom með ofan í laugina og Ingólfur Páll bróðir og Ragna Margrét,konan hans pabba komu með,varð að heljarinnar fjölskylduferð. Mér líst virkilega vel á þetta,aðstaðan er frábær í nýlegri laug frá 2002 í stórum og björtum sal. Grímur tók þessu mjög vel,var orðin aðeins pirraður,því að var búin að vaka í þó nokkurn tíma,byrjuðum nefnilega á kynningu kl.5 og biðum svo til hálf sjö eftir tímanum okkar.

Mér sýnist að það sé skylda að fara út á eftir,litli andarunginn er sofandi núna en við skellum okkur út á eftir með vagninn.
Hafið það gott um páskana:)