23 október 2007

Ísabella heimsótt á Englandi

Posted by Picasa
Við Grímur komum heim í gærkvöldi eftir afar vel heppnaða ferð til London til Arngunnar systur og fjölskyldu. Mamma hafði komið 3 dögum áður og við Grímur bættumst við hópinn á laugardaginn. Við höfðum það virkilega gott saman með Arngunni, Alden og Ísabellu Joci. Barnið er að sjálfsögðu algert "draumabarn", eins og það er kallað, drekkur og sefur og vakar aðeins inn á milli. Ég get ekki sagt að hún sé lík Arngunni í útliti, sækir það frekar til pabba síns og hefur líka sinn eigin svip. Hún er bara yndisleg.

Á laugardeginum fórum við gæsamömmurnar í göngutúr í næsta garð/leikvöll. Þar var reynt að plata Grím í hin ýmsu leiktæki, en passlega stór rennibraut varð fyrir valinu hjá honum. Um kvöldið útbjó mamma humarveislu (að sjálfsögðu með humri og laxi frá Íslandi).
Á sunnudeginum fórum við í heljarinnar hádegismat til pabba hans Aldens, Peter og konunannar hans, Anna. Það var margrétta glæsilegt máltíð og ég gafst upp við að halda aftur af mér. Grímur skemmti sér við að skoða garðinn og henda laufblöðum í litla tjörn. Svo veiddi Alden handa honum pínulítinn eðluunga, sem fékk nafnið Billi og bættist við matarborðið sem gestur í skál. Grími þótti mjög spennandi að fylgjast með honum. Seinna kom Elísabet vinkona og snarlaði með okkur. Eftir 4 tíma langan hádegisverð héldum við heim ásamt Elísabetu. Mamma hafði ætlað að elda íslenskt lambalæri um kvöldið, en það var ákveðið að geyma það þangað til daginn eftir.

Á mánudeginum skrapp ég í smá verslunartúr í næsta nágrenni, Richmond. Röltaði þar um verslunargötuna og straujaði aðallega kortið í Baby Gap. Það var fínt að geta dólað sér aðeins ein, ekki oft sem að það gerist.

Eftir frábært lambalæri og meðlæti skutlaði Alden okkur Grími út á Heathrow flugvöll. Flugið gekk mjög vel. Grímur var orðin svo félagslyndur eftir helgina og nýbúinn að kveðja fólk, þannig að hann veifaði fólki eins og hann væri Hollywood stjarna þegar við löbbuðum inn í flugvélina. Svo á meðan fluginu stóð veifaði hann af og til Dönunum í næstu sætum og lítilli stelpu hinum megin við ganginn.

Ég var mjög fegin að koma heim seint í gærkvöldi, það er alltaf gott að koma heim til sín.

Er búin að setja myndir frá því um helgina á Flickr.

17 október 2007

Grímur orðinn 22 mánaða

Posted by Picasa


Grímur Logi varð 22 mánaða í gær. Hér eru nokkrar myndir af honum í baði áðan, fyrsta freyðibaðinu. Honum fannst það ansi sniðugt og fannst gaman að uppgötva freyðikúlurnar. Svo rétti hann úr fótleggnum upp úr baðinu, þannig að það minnti á rakvélaauglýsingu fyrir konur, sérlega lekker. Eins og sést á einni mynd, er hann marinn á enninu, hann datt á sama stað 2 daga í röð á vöggustofunni.

Pabbi hans sótti hann í dag á vöggustofunni og varð ansi brugðið. Hann kom inn í herbergið og ætlaði að spyrja fóstruna hvar Grímur væri. Honum datt ekki í hug að litla "stelpan" sem hann sá í bakið á, væri sonur hans, þar sem hann var klæddur í bleika síðsvuntu með ermum og hvítum blúndum. Svo snéri Grímur sér við og Hallur fékk karlmennskuáfall. Grími fannst þetta voða sniðugt og baksaði við svuntuna. Það er gaman að vita að það er jafnrétti á vöggustofunni:)

Dúna systir Halls, átti afmæli í gær - til hamingju með afmælið Dúna.
Svo átti Heiðrún, systir hans Halls afmæli 10. okt., - til hamingju með afmælið Heiðrún.

16 október 2007

Ísabella Joci




Hér eru tvær myndir af litlu frænku. Ég stelst til að skrifa "Ísabella" og ekki "Isabella", á enska vísu. Arngunnur og Alden eiga eftir að setja upp myndasíðu, en við erum búin að fá 3 sendingar með myndum, það er svo yndislegt að sjá þær. Maður verður að stytta sér stundir þangað til við förum til þeirra á laugardaginn. Ég sá þær mæðgur líka á Skype á sunnudaginn og Ísabella, var voða róleg og vær.




14 október 2007

Helgin

Þá er helgin nær búin. Við fjölskyldan erum búin að sýsla ýmislegt saman um helgina. Á föstudagskvöldið söng ég með gospelkórnum mínum á menningarnótt, í Illum. Við byrjuðum á því að hefja raust okkar úti á Striki og færðum okkur inn. Marseruðum upp á fjórðu hæð og sungum þar fyrir áhorfendur á öllum hæðum. Eftir þó nokkur lið, skiptum við okkur í hópa og sungum á ferðinni 2 lög til viðbótar.

Í gær laugardag, fórum við í Tívolíið með nágrönnum okkar, Atla, Svönu og Skarphéðni. Tívolíið er núna opið í rúma viku, þegar haustfrí er í skólum og er skreytt virkilega flott í Hrekkjavökustíl, með ótal graskerum o.fl. Þar röltuðum við um og strákarnir skemmtu sér í nokkrum tækjum og svo borðuðum við á Wagamama. Tókum svo einn hring áður en við tókum strætóinn heim.

Í dag höfum við tekið því rólega, fórum í bakarísferð í morgun og Grímur svaf úti í vagni. Seinni partinn fórum við Grímur í gönguferð, hann í nýjum Molo kuldagalla, sem var reyndar keyptur á útsölu í janúar. Maður er svo séður stundum. Gallinn er nokkuð stór en við gerum ekki neitt vesen úr því. Við Grímur tókum rölt í næstum götu, en komumst ekki langt, Grímur eltist við vingjarnlegan kött og óð í gegnum laufblaðshrúgu. Hittum svo á Skarphéðin og Jódísi nágrannabörn ásamt foreldrum sínum og kjöftuðum við þau, ásamt fleiri nágranna úti í garði.

Þá er ný vinnuvika framundan, það verður talið niður í laugardag, þegar við förum að heimsækja Ísabellu frænku í London á laugardaginn. Við sáum hana einmitt á Skype-inu áðan, var ósköp róleg og auðvitað voða sæt.


10 október 2007

Arngunnur systir búin að eiga

Arngunnur systir átti í dag glæsilega stelpu! Ég er orðin móðursystir:) Ég er ekki búin að tala við hana, en hún var víst 3,5 kg og í lengra lagi. Fæðingin gekk mjög vel. Ég heyrði í Arngunni í gærkvöldi og þá var þetta allt byrjað. Fékk svo svar við sms-i í morgun að væri styttra á milli hríða, hefði ekkert sofið og mikið verið í baði. Þannig að þetta var greinilega allt að koma. Svo heyrði ég ekkert í henni eftir það. Við mamma og fleiri biðum í ofvæni eftir að heyra fréttir frá London, ferlegt að vera svona langt í burtu. En nú er litla prinsessan komin og við erum öll ofsalega ánægð.

P.S. Búin að setja nýjar myndir á flickr.

04 október 2007

Grjónagrautur og strákabusl

Í gærkvöldi buðum við nágrönnum okkar, Atla, Svönu og strákinum þeirra Skarphéðni Árna í grjónagraut. Grjónagrautur er orðinn einn af "klassíkerunum" á heimili, með hjálp uppskriftar í Nönnubiblíunni, sem ég man ekki hvað heitir. Ég bæti samt við mínu auka, set heila kardimommubelgi og sítrónuskræl út í. Grímur er ofsa hrifinn af grjónagrauti, hann borðaði 3 skálar og leit ekki við brauði með kæfu, sem er venjulega vinsælt. Sagði svo "ummm" um leið og hann borðaði:)

Eftir matinn fóru þeir strákarnir í bað og það var mikið fjör. Þeir skemmtu sér mjög vel saman og "bonduðu" mjög vel, voru stöðugt að kíkja á hvað hinn væri að gera, var mjög gaman að fylgjast með. Þeir kepptust við að hella úr málum og yfir sjálfa sig. Svo tóku þeir létt orkukast þegar þeir voru búnir í baðinu, var eins að sleppa beljunum út á vorin, þegar þeir hlupu út af baðherberginu. Bæti við myndum af þeim hér, sem fyrst.

Þessi mamma var svo þreytt þegar hún var svo búin að svæfa litla gutta, að hún fór bara að sofa sjálf fljótlega á eftir. Var komin upp í rúm kl. 9:30, hvorki meira né minna. Ætlaði að mæta snemma í vinnuna í morgun, sem tókst nokkurn vegin. Ég fer svo að sækja Grím á vöggustofuna seinni partinn, nokkuð sem Hallur er eiginlega alveg búinn að sinna, síðan ég byrjaði að vinna. Hallur hjólaði með Grím í morgun, þannig að það er ekki kerra til ráðstöfunar. Síðast fengum við okkur ágætis göngutúr á strætóstöðina. Stöðin er ekki svo langt frá vöggustofunni, en það tók okkur um korter að labba:) Ég passaði mig að stressa mig ekki og hugsaði með mér að væri hollt fyrir Grím að fá hreyfingu. Enda var hann duglegur að labba og leiddi mig á meðan, maður er nú með hámarkshraða í lægra lagi þegar maður er tæplega 2 ára.

03 október 2007

Kór,fiskur og vetrarfatnaður

Ég veit ekki hvenær þið voruð síðast á þeim aldri þar sem farið var í kórferðalag, en ég fór alla vega í kórferðalag síðustu helgi, með kórnum mínum, Sound of Gospel. Við héldum í sumarbúðir KFUM í Jægerspris sem er á norður-Sjálandi. Þar vorum við frá föstudagseftirmiðdegi fram til sunnudags. Það var ýmislegt gert, borðað góðan mat og skemmt sér, sungið og talað um framtíðarplön kórsins. Á laugardeginum var hægt að velja um sólóista"session", stomp-tíma eða andardráttar"session". Um kvöldið var kokteill, heljarinnar matur og grímupartý. Þetta var allt saman mjög fínt, dálítið krefjandi að vera með 60 fólki sem maður þekkir ekki og að skilja dönsku í dúndrandi tónlist.

Fjölskyldulífið gengur annars sinn gang. Grímur virðist vera ánægður á vöggustofunni, að minnsta kosti var hann að kríta úti í gær, þegar Hallur kom að sækja hann og vildi helst ekki fara heim.

Á mánudaginn var elduð íslensk ýsa sem við keyptum hérna úti. Maður er alltaf að reyna að auka fiskneyslu. Grími fannst það reyndar ekki sérlega sniðugt, borðaði smá hrísgrjón sem búið var að lauma í smá fiski, en lét restina vera. Það verður áskorun fyrir móðurina að fá hann til að borða fisk. Ég man sjálf eftir því að vera ekki hrifin af fiski sem krakki og þegar foreldrarnir útbjuggu klassísku samsetninguna með ýsu, stöppuðum kartöflum og fullt af tómatssósu. Og svo kúgaðist maður jafnvel af fiskinum, þegar verst lét.

Annað sem Grímur er ekki hrifinn af, er að fara í nýja skó. Ég er nýbúin að kaupa hanna flotta kuldaskó. Hann gólaði í búðinni þegar hann þurfti að máta þau. Nú er ég búin að spreyja þá og sýna honum, en þarf að plana aðlögunartíma, he, he. Læt reyna á það í dag þegar hann kemur heim. Er alveg bókað að það þarf að berjast við hann, er ansi skrautlegt. Var svipað, en ekki eins slæmt, þegar hann átti að fara í nýja vetraranorakkinn sinn um daginn, drengurinn er ekki hrifinn af svona breytingum.

Þegar maður er í Danmörku og er ekki með bíl, er mjög sniðugt að kaupa svona hluti á netinu. Var bæði búin að fara ferðir til að finna skó og úlpu sem tókust ekki og endaði á því að kaupa þetta á netinu, maður nennir ekki að eyða frítíma sínum í fýluferðir.

Þetta er s.s. hversdags"snakkið" mitt - heyrumst síðar.