29 maí 2008

Hanna Freyja varð 2 mánaða og fékk vegabréf


Litla elskan okkar varð 2 mánaða í dag og við héldum upp á það með að sækja vegabréf handa henni. Við fórum þrjú héðan heima frá, tók litla eilífð að koma okkur út úr húsi. Ég rúllaði Hönnu Freyju út í vagninum og Grímur fylgdi á eftir á Puky hjólinu sínu. Við hittum Hall á Metro lestarstöð og fórum út á Kristjánshöfn. Þar var flott sumarstemmning og "dejligt" að labba hjá síkjunum og bátunum. Við fórum í íslenska sendiráðið og fengum bráðabirgðavegabréf handa litlu dömunni. Ég fylltist enn meiri tilhlökkun að koma til Íslands við að sjá íslenska fánann og það var voða notalegt að kíkja þarna við. Þetta gekk vel og stelpan sem tók á móti okkur var mög almennileg, einhvern veginn ekki sérlega danskt, ha, ha. Svo stoppuðum við í flottu bakaríi á leiðinni heim og Grímur Logi sofnaði í lestinni á leiðinni heim. Var við það að sofna og datt úr sætinu greyið. Hallur bar hann svo restina af leiðinni heim.

Hanna Freyja er barasta yndislegt, nema hvað. Er búin að sofa að sofa 7-8 tíma í trekk, fyrir 2 og 3 dögum, þvílíkt flott. Maður nýtur þess á meðan það varir.
Hjalar svo og brosir til okkar, þegar hún er vel hvíld og södd. Finnst líka vera að styttast í hláturinn hjá henni. Mér finnst hún líkjast Grími sífellt meir.
Grímur knúsar hana oft á dag, er farin að taka hana að sér og gefa henni svona bjarnarknús. Það er verra að henni finnst það ekki sérlega þægilegt, einhvern vegin fer hún oft að kvarta þegar hann greyið fær að halda á henni, eins og það sé ekki eins þægilegt og að liggja hjá stórri fullorðinni manneskju. Hann er þó farinn að hjálpa til þegar hún grætur, í dag strukum við henni um kollinn og "ussuðum" og það virkaði vel. Grímur er orðin mun virkur í að leika með dúkkuna sína, Kára litla. Í dag hafði hann sett hana í kerruna sína og fékk mig til að hjálpa við að spenna ólarnar og breiddi svo teppi yfir dúkkuna.
Posted by Picasa

26 maí 2008

Loksins rigning

Við Grímur Logi sitjum í rólegheitum inni í stofu, ég búin að vera að dútla við þvott og heimilisstörf og hann að horfa á Simba sinn í Konung Ljónanna. Það er uppáhalds skemmtiefnið um þessar mundir og vill helst ekki horfa á annað. Fyrir utan alla ljónstilburðina í honum sjálfum, sem byrjuðu eftir að Hanna amma hans kom með videóspóluna um daginn. Hann skríður um og urrar og lifir sig fullkomlega inn í ljónsgervið. Eftir að ég sagði einu sinni að ég væri mömmuljónið og "látið þið ungana mína vera" og hvæsti og sýndi tennurnar, spyr hann mig í ljónuleiknum : "ertu mömmuljónið?".

Eins og fyrirsögnin gaf til kynna, er hér rigning. Ég segi "loksins", því að það er búið að vera sól eða að hluta til sól í um 10 daga held ég. Það er því ágætis pása að hafa svona inni-veður og getað dólað sér inni án þess að hafa slæma samvisku að vera ekki hoppandi um úti við. Ég held að það Íslendingurinn í mér (eða á öxlinni á mér) sem finnst að maður eigi að vera úti við þegar það er sól og gott veður. Mér sýnist að það eigi svo að vera sól næstu daga, þannig að við "njótum" dropanna í dag. Annars er kannski hættulegt að tala svona, miðað við hvað síðasta sumar var ferlega blautt og leiðinlegt. Maður gæti kannski kallað meiri rigningu yfir sig?

Við horfðum á Eurovision saman á laugardaginn heima hjá Kára og Kristínu og var boðið líka í mat ásamt Svönu og Atla. Grímur, Skarphéðinn og Jódís skemmtu sér mjög vel saman, fyrir utan smá ósætti annað slagið sem eru ómissandi þegar maður er 2 ára. Hallur var reyndar ekki með því hann fór á Mugison tónleika ásamt félögum sínum úr skólanum. Ég fylgdist með þessu öllu og var illa ánægð með Íslendingana, hefðu verið gaman að fá fleiri stig.

Í gær vorum þið þrjú saman heima, svona "eins og venjulega" á meðan Hallur vann í ritgerð sem hann skilar á morgun. Við fórum út í garð og svo stakk Grímur upp á göngutúr, þannig að við röltum af stað. Sú ferð endaði frekar skrautlega. Við vorum stödd í götu dálítið í burtu þegar að Grímur neitaði að hjóla meira. Ég hafði reynt að sýna honum hvernig maður bremsar, sem honum fannst ekkert fyndið og svo held ég að hann orðið hvekktur þegar hann fór ansi hratt í smá halla og kom sér af hjólinu á ferð. Hann fór að leiða hjólið og varð allt í einu voða þreyttur og talaði um að hann vildi fara í dýragarðinn að skoða ljónin. Við snérum við heim og svo neitaði alveg að teyma hjólið og þegar við komum að lestarstöðinni, heimtaði hann að fara í lestina og neitaði að fara lengra. Þarna var ég komin í bobba, með Hönnu Freyju í vagninum, hjólið hans Gríms ofan á vagninum og einn lítin harðstjóra. Með einstakri mömmufærni og lof um rúsínur heima, hélt hann loks áfram með mér eftir knús og spjall. Þegar við komum loks heim, borðaði hann rúsínurnar og vildi svo meira. Ekki var mamman til í það og þá tók við þreytukast, enda klukkan orðin svo margt. Kom honum loks út í kerru eftir smá bardaga og há rúsínuóp. Úff.

Annars er lítið mál þessa dagana að koma Grími í háttinn, hann er svo mikið úti að leika sér að hann er mjög þreyttur á kvöldin. Þannig á það líka að vera. Hann sýnir líka mikla þolinmæði finnst mér, eftir að Hallur byrjaði í próftörninni les ég venjulega fyrir hann fyrir háttinn og þá er Hanna Freyja venjulega með og er oft ekki hress með að vera svona fylgifiskur og fá almennilega athygli og lætur vel vita af sér. Þetta lætur Grímur allt yfir sig ganga:)

Enn sefur Hanna Freyja, best að gera eitthvað, nú eða ekki neitt, þangað til hún vaknar.

P.S. Passaði upp á sekúndu, vaknaði um leið og vistaði færsluna!

23 maí 2008

Klósettferð á föstudegi

Grímur duglegi klósettfari var áðan á klósettinu að kúka, ég heyrði honum nostra við þetta og sturta og spjalla. Svo fór ég að huga að honum og athuga hvort hann væri ekki búinn. Þá var búinn og kúkaleifar voru á setinu hans því hann var búinn að hreyfa sig svo mikið. Stundum stendur hann á klósettinu, leggur hendunar fyrir framan sig og lyftir rassinum alveg upp og kíkir ofan í klósettið til að sjá afraksturinn. Af hverju er ég að segja frá þessu? Jú, mamma hans vaknaði hálfúrill og langaði ekki til að þrífa þetta. Fyrst var Grími skellt undir sturtuna og þrifinn bossinn og svo leit ég í kringum í mig og hugsaði "Er enginn annar sem getur klárað að þrífa þetta, því að mig langar virkilega ekki að gera þetta sjálf?"

Nú sitjum við saman í sófanum, ég með tölvuna og föstudagsblaðið frá Berlingske Tidende og Grímur hlustar á Þrír litlir grísir hljóðdisk. Hanna Freyja sefur. Ætlum svo að drífa okkur út í göngutúr þegar litla rófa vaknar. Eða svona eins mikið og maður getur drifið sig út með tvö börn.
Það er ekkert að frétta af verkfalli hjá blessuðu fóstrunum, fékk bara póst áðan frá formanni foreldrafélagsins þar sem foreldrar voru vinsamlega beðnir um að láta ekki sína "frústrasjón" bitna á þeim starfsmönnum sem eru að sjá um leikskólana, s.s. þeir ófaglærðu. Leikskólarnir/vöggustofurnar eru s.s. opnar mjög takmarkað, Grímur getur t.d. ekki farið fyrr en 29/30 maí, það tekur því ekki einu sinni að senda hann.

Við horfðum á Eurovision keppnina í gærkvöldi, Friðrik Ómar og Regína voru þvílíkt flott! Hlakka til að sjá meira af þeim annað kvöld.

Námsmanna"ekkjan" á Friðriksfjalli.

21 maí 2008

Smekkleysukvöld

Mikið er erfitt að rjúfa bloggþögnina!
Ég horfði á Eurovision forkeppnina (endurtekna) í kvöld og það er ótrúlegt hvað fólki dettur í hug. Maður býst við hallæri og furðufuglum, en sumir voru ótrúlegir, hvítir falsettuenglar og írskur brúðu-dj...það var nóg að hneykslast yfir! Annars er ekki eins mikill áhugi fyrir keppnini hér í Danmörku og á Íslandi. Það fór meira að segja fram hjá mér að fyrri undankeppnin væri í gærkvöldi.

Við fjölskyldan erum í verkfalls- og prófstemmningu þessa dagana. Það byrjaði verkfall í leikskólum hjá fóstrum á mánudaginn og Grímur Logi er því búinn að vera heima hjá okkur Hönnu Freyju. Formaður stéttarfélagsins og stjórn þess höfðu samþykkt launasamning, en 70% félagsmanna sögðu nei takk. Það lítur út fyrir að verkfallið muni vara í þó nokkurn tíma.

Þetta hefur gengið vel hjá okkur og góða veðrið hefur hjálpað til og gríðarlegur hjólaáhugi hjá Grími. Hann er búinn að fá annað hjól, flottan "Thunderbird" með hjálpardekkjum og hann er mjög einbeittur í hjólatúrunum í garðinum og þegar við förum í göngutúra.

Hanna Freyja er öll að búttast, það er gaman að sjá hvernig bætist kjöt á beinin. Lærin bæta á sig og svo kemur smá undirhaka og kálfarnir hætta að vera spóalegir. Svo fór hún að hjala þegar hún var um 5 vikna og hálf hlær með svona innsogshljóði. Hún sefur voða vel á nóttunni. Sofnaði óvenju seint í gær og svaf svo alla nóttina.

Við hlökkum mikið til að koma til Íslands 3. júní, þá fáum við nóg af félagsskap og Hallur hefur enn meiri frið til að sinna skólanum. Hann er núna að gera ritgerðarpróf sem hann skilar á morgun og svo tekur við ritgerðarsmíði eftir það.

Grímur Logi er á flottum tveggja ára aldri, það er mikið sjálfstæði í gangi og tekin smá köst annað slagið. Svo byrjaði hann í gær að láta eins og hann sé lítill, fór í vögguna henar Hönnu Freyju og heimtaði snuð, lá svo og tók því rólega og þóttist gráta. Frekar skondið að sjá. Þetta er ansi týpískt skilst mér og við að búast. Hann knúsar hana reglulega, maður þarf bara að passa að það sé ekki of fast, ekki vantar ástúðina.

Grímur er mjög duglegur á klósettinu, að pissa og "gera stórt", eins og hann var nú með fasta rútínu með koppinn sinn. Koppurinn var alltaf tekinn fram milli sjónvarpsins og sófans, alveg þétt við dótið sem var þar og snéri alltaf í sömu átt, það mátti ekki vera öðruvísi. Svo byrjaði hann smá saman, þó nokkuð seinna að sættast meira við klósettið og nú er hann nýbyrjaður að fara bara þangað. Hann klifrar upp á klósettið, erum svo miklir tossar að erum ekki komin með skemil fyrir hann og lætur fara vel um sig á bangsasetunni sinni. Svo er það alveg nýjasta að maður er beðin um að fara fram, svo hann geti fengið að vera í friði. Hann er bleyjulaus hjá okkur á daginn og fær bleyju fyrir nóttina. Hann var þó ekki byrjaður að vera bleyjulaus á vöggustofunni, stefnum á það eftir Íslandsferðina.