Í dag er Hanna Freyja, elsku litla dóttir mín, 4 mánaða og það er dálítið ótrúlegt. Tíminn þýtur hjá og þetta er allt of fljótt að líða, þau eru svo stutt svona lítil þessi litlu yndi. Áður en ég veit af, verður hún 7 mánaða, jú og svo eins árs. Hér eru 2 myndir teknar í dag eftir að Grímur Logi stóri bróðir kom heim af leikskólanum.Ég segi ekki meira í bili, er komið fram yfir "nýja" háttatímann minn.
Þessi bloggþögn átti ekki að vera svona ferlega löng, ætlaði bara að taka smá pásu á Íslandi. Svo er alltaf erfiðara og erfiðara að byrja aftur!