20 september 2007

Komin í gang

Nú er fimmti vinnudagur eftir Íslandsferð og veikindi, og ég er komin af stað í þessu venjulega lífi. Ég fór á kóræfingu á þriðjudagskvöldið - ég er nýbyrjuð í gospelkór sem heitir Sound of Gospel
og það er virkilega spennandi, mér líst ofsalega vel á hann. Ég fór í inntökuprufu í ágúst og fór á eina æfingu áður en við fórum til Íslands. Ég missti því miður af 2 æfingum, einni þegar ég var á Íslandi og einni eftir að ég kom heim. Vegna þessa verð ég ekki með á tónleikum í kvöld, því miður, en ég ætla samt að fara á þá og hlakka til.

Í gær kom ég heim og eftir hvíld í sófanum, dúlluðum við Grímur okkur saman. Hann fór í langt bað, sem honum þykir voða gaman. Svo fékk hann að sulla við eldhúsvaskinn, ég lét renna úr krananum og hann fékk mál og skál til að hella í og úr... þetta biður hann stundum um : "hella!". Ég vaktaði hann á meðan ég fékk mér að borða.

Svo var háttað og við lásum Einar Áskel - Flýttu þér - hann fylgdist vel með, las næstum því allan textann. Hann var ekki alveg til í Einar Áskel fyrir mánuði, hafði ekki þolinmæði að hlusta á, eða fannst hann ekki nógu spennandi. Nú var hann alveg til og mér fannst það frábært, keypti 2 bækur á Íslandi meira fyrir mig, held ég. Svo tók ansi langan tíma að sofna, hann var ekki með vesen en lá í rúminu og blaðraði þessi ósköp við sjálfan sig. Mér fannst eins og það væri svo mikið að gerast í heilanum í honum og hann er sífellt að læra ný orð - það var eins og hann væri að spóla í gegnum alls kyns orðaforða og náði ekki að slökkva á heilastarfseminni. Allt í einu heyrðist "api, ú, ú", höfum verið að apa eftir apahljóðum á heimilinu. Svo var hann að tala um mömmu og pabba og ýmislegt fleira. Tókst svo loksins að sofna og ég horfði á Heroes í sjónvarpinu.

16 september 2007

Grímur litli töffari



Posted by Picasa

Grímur Logi 21 mánaða í dag

Tíminn flýgur og bráðum verður litli drengurinn ekki eins lítill, þegar hann verður 2 ára í desember. Það er voða gaman að fylgjast með honum þroskast og segja og gera sniðuga hluti. Eins og til dæmis að babla heil ósköp og skammast og bendir með vísifingur með útstrekktan handlegg og hættir svo og segir "knús" og labbar til mann og knúsar mann. Eða þegar hann situr með bók og blaðar í henni og talar heil ósköp við sjálfan sig og bendir á allar blaðsíðurnar. Og þegar hann er byrjaður núna að vera meira til í að labba með okkur úti við, bara heldur í höndina á manni og labbar með, það finnst manni sniðugt.

Á morgun sný ég loks aftur til vinnu, verður fínt að fást aftur við hversdagsleikann.

Í gær fórum við Grímur í Frederiksberg bæjarrúnt saman, reyndum að finna úlpu á Grím en það gekk ekki og dönsku búðirnar eru ekki með opnunartíma sem nær langt fram á dag. Svo í dag fórum við í bæjarrúnt saman fjölskyldan niður í bæ, á Strikinu og í nágrenni. Grími fannst örugglega mikið að sjá, því að hann sleppti alveg blundinum sínum og dugði alveg til rúmlega 8 áður en hann sofnaði.

14 september 2007

Snýtandi grænu

Aðalfréttirnar eru af húsmóðurinni, (finnst mér), ég fékk andstyggðarpest þegar ég var á Íslandi og er enn að jafna mig. Við Grímur fórum saman til Íslands 3. september, og flugferðin gekk vel, Grímur var algjör stjarna. 2 dögum seinna fór ég að finna fyrir kvefi og varð svo drulluslöpp, en fór nú í vinnuna, í kynningu fyrir nýja starfsmenn, maður var nú einu sinni mættur til landsins sérstaklega fyrir þetta. Svo versnaði bara heilsan og maður var að mæta í vinnuna og að þeytast hingað og þangað til að hitta elsku fjölskylduna.

Hallur kom svo á fimmtudagskvöldið og fór upp á Skaga. Þar var Grímur búinn að vera frá þriðjudeginum, þá var hann með Gunnu ömmu. Svo kom Hanna amma og fór með hann upp á Skaga.

Á laugardagin fórum við í hádegismat hjá Sigga tengdó og Hrefnu og um kvöldið í fertugsafmæli hjá Heiðu frænku hans Halls. Á sunnudeginum var svo 2 ára afmælisveisla hjá Rakeli Mirru frænku, kíktum svo til pabba og enduðum í mat hjá mömmu. Sem sagt nóg á dagskránni! Ég skreið bara upp í rúm hjá mömmu eftir mat.

Komu svo heim á mánudagskvöldið og ég er búin að vera veik heima síðan, ótrúlegt en satt. Snýti mér svo mikið að snýtupappírinn hlaðast upp í kringum mig og hef varla fundið bragð síðan á sunnudaginn, í 6 daga! Arg! Bíð eftir að hakka í mig Nissa súkkulaðinu og maltinu sem ég keypti í fríhöfninni. Var að fá penisillín resept hjá heimilislækninum áðan, sjáum hvort að það hjálpar ekki.

Alla vega, heilsan hlýtur að fara að koma, lífið gæti nú verið verra, það er bara svo freistandi að vorkenna sér. Grímur Logi er hress og það hefur gengið vel í vöggustofunni, eftir að við komum heim. Hallur er byrjaður í skólanum og líkar vel.

Hafið það gott um helgina og verið góð við hvort annað.

02 september 2007

Grímur sofnaði sjálfur!

Það gerðist merkilegur atburður hér áðan - s.s. að Grímur Logi sofnaði alveg sjálfur fyrir nóttina - án þess að ég væri inni hjá honum. Við vorum búin að lesa saman og hlusta á spiladósina og syngja og svo var kysst góða nótt - og ég gerði eins og við erum búin að vera að gera,segjum honum að við ætlum fram og komum aftur. Byrjaði á 30 sekúndum og erum svo búin að vera auka smá tímann. Núna áðan lagðist hann bara niður og var hinn rólegasti, alveg eins og í gærkvöldi, (stóð ekkert upp) þannig að ég beið aðeins með að fara inn aftur ... og svo sofnaði hann bara!

Ekki það að mér finnist ekki gott að vera með elskunni minni, en getur verið auðveldara fyrir þreytta mömmu að vera ekki inni í hálftíma eða meira að svæfa.

Svo erum við að fara til Íslands á morgun, og þá fer allt í rugl! :)

Við til Íslands, 3. september

Við Grímur skellum okkur til Íslands á morgun og Hallur kemur á fimmtudaginn, 6. sept. Upphaflega ætluðum við öll að fara saman 6. september til að fara í 2 ára afmæli hjá Mirru frænku og fertugsafmæli hjá Heiðu frænku - en svo fékk mín vinnu og ég verð í þjálfun hjá fyrirtækinu - sem heitir Betware - núna þriðjudag til föstudag.

Er núna að hafa okkur til og taka til í íbúðinni - lendi vonandi ekki í megastressi eins og síðast þegar ég fann ekki vegabréfið hans Gríms, af því að einhver færði það til. Ég var gráti næst komin kl 1 um nóttina, en sem betur fer fannst það. Er búin að setja föt á Grím ofan í tösku og eftir að græja mig og annað óendanlegt dót sem mér fylgir, svo sem myndavél og slíkt.

Er búin að setja nýjar myndir inn á flickr og er að bæta fleirum inn.

Ef einhvern langar að hitta okkur þá verðum við á Íslandi til 10. sept.