Hvor er ungabarnið?
03 júní 2008
02 júní 2008
Pakka,pakka,pakka
Sem sagt þrefalt pakka, enda er ég að pakka fyrir þrjá. Þar sem þetta er venjuega langt og strangt ferli, er ég byrjuð að pakka fyrir þriðjudaginn. (Halli finnst mjög gaman að gera grín að pökkunarathöfnum mínum - þar á meðal að taka allt saman sem ég gæti mögulega þurft og sé svo hvað það er mikið og byrja að tína frá). Ég er alla vega búin að taka n.k. vegin saman fyrir Grím og Hönnu Freyju og á eftir að pakka fyrir mig og taka saman myndavél og tengt því. Það er nóg að huga að! Svo á maður til svo mikið af fötum á þessi kríli og ég reyni að hugsa að geri nú ekki til þó að komist ekki í ákveðin bol eða kjól í mánuð. Er með svona komplex að mér komi til með að líða illa ef ég fatta að ég sé ekki með eitthvað sem væri annað hvort sniðugt, eða bráðnauðsynlegt að hafa! Svo verður maður að vera heilbrigður og láta ekki "hluti" stjórna sér. Enda er ég mjög heilbrigð... jæja, held að sé komin næturgalsi í mig og venjulegi háttatíminn 00:30, er liðinn. !
Hvað varðar dagskýrsluna, þá fórum við Grímur og Hanna með Svölu nágranna og Kristjáni syni hennar í Lindevang garðinn, þ.s. við busluðum í stóru vaðlauginni, kíktum á leiktækin og strákarnir hlupu um í garðinum. Var mjög gaman og notalegt, enda veðrið þvílíkt, um 28 stig eða tæplega. Það er búinn að vera dálítill vindur sem kælir niður, þótt að hann hafi verið minni í dag. Hér er spáð sól áfram og um 25 stigum, en sé að veðurspáin á Íslandi er rigning og um 11 stig.. humm, eins gott að maður er ekki að koma vegna veðursins.
Þá er líka gott að vera krónískur ofpakkari eins og ég og vera græjaður í allt mögulegt veður, muhaha...
Hlökkum til, hlökkum til, hlökkum til !!!

01 júní 2008
"Allar áhyggjur eru þurrkaðar út ... Hakuna matata"
Þessa helgi eru Frederiksberg dagar, árleg hátíð, með ýmsum viðburðum og stemmningu á götunum. Við þrjú drifum okkur út, eftir að hafa reynt árangurslaust að fá einhverja af nágrönnum okkar með. Ég var eins og Afríkumamma, með Hönnu Freyju í 'slinginum' og Grím í kerrunni sinni. Á Godthåbsvej gerðum við tilraun til að kaupa sandala handa Grími, en hann var ekki hrifinn af því að máta sandala. Fann reyndar pínkulitla reimaða skó sem hann vildi endilega prófa. Við hrökkluðumst út úr búðinni og héldum áfram á Falkoner torgið. Þar var verið að spila tónlist og koma upp bjórbásum og fleira. Við fórum svo á bókasafnið, þar voru krakkar að spila tónlist niðri hjá barnadeildinni. Hallur kom að hitta okkur þar og Hanna Freyja fékk að súpa. Svo fengum við okkur ís á Smallegade og skoðuðum aðeins endurnar í Frederiksberg garðinum. Hallur veifaði svo bless og ég gerði aðra sandalatilraun. Við vorum rétt komin inn í búðina þegar hún var rýmd ásamt öðrum búðum á hæðinni. Það mætti halda að það væri eitthvað samsæri í gangi! Svo þegar við gerðum aðra tilraun, voru auðvitað sandalarnir ekki til í réttu númeri, týpískt!
Fórum svo aðeins út í garð þegar komum heim og borðuðum svo afganga frá því hamborgarakvöldinu mikla í gær. Grímur hóf raust sína eftir mat og söng mjög ákveðið "engar áhyggjur" lagið úr Lion King, með sinni túlkun á textanum og söng sífellt hærra og ákveðnara. "Allar áhyggjur eru þurrkaðar út..simbi ljón!... hakuna matatan"
Ég er byrjuð að pakka fyrir Ísland. Að fenginni reynslu byrja ég snemma, þetta er mjög langur og flókinn ferill, hvað þá þegar börnin eru orðin tvö.
Það var að sjálfsögðu blessuð blíðan í dag, átti að ná um 28 stigum. Sem betur fer er ágætis vindur til að kæla mann niður. Það verður víst svipað veður á morgun, við stefnum á stóra vaðlaug í nágrenninu, þar sem eru líka leiktæki og garður. Grímur verður ánægður með að busla þar.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)