01 júní 2008

"Allar áhyggjur eru þurrkaðar út ... Hakuna matata"

Þessa helgi eru Frederiksberg dagar, árleg hátíð, með ýmsum viðburðum og stemmningu á götunum. Við þrjú drifum okkur út, eftir að hafa reynt árangurslaust að fá einhverja af nágrönnum okkar með. Ég var eins og Afríkumamma, með Hönnu Freyju í 'slinginum' og Grím í kerrunni sinni. Á Godthåbsvej gerðum við tilraun til að kaupa sandala handa Grími, en hann var ekki hrifinn af því að máta sandala. Fann reyndar pínkulitla reimaða skó sem hann vildi endilega prófa. Við hrökkluðumst út úr búðinni og héldum áfram á Falkoner torgið. Þar var verið að spila tónlist og koma upp bjórbásum og fleira. Við fórum svo á bókasafnið, þar voru krakkar að spila tónlist niðri hjá barnadeildinni. Hallur kom að hitta okkur þar og Hanna Freyja fékk að súpa. Svo fengum við okkur ís á Smallegade og skoðuðum aðeins endurnar í Frederiksberg garðinum. Hallur veifaði svo bless og ég gerði aðra sandalatilraun. Við vorum rétt komin inn í búðina þegar hún var rýmd ásamt öðrum búðum á hæðinni. Það mætti halda að það væri eitthvað samsæri í gangi! Svo þegar við gerðum aðra tilraun, voru auðvitað sandalarnir ekki til í réttu númeri, týpískt!

Fórum svo aðeins út í garð þegar komum heim og borðuðum svo afganga frá því hamborgarakvöldinu mikla í gær. Grímur hóf raust sína eftir mat og söng mjög ákveðið "engar áhyggjur" lagið úr Lion King, með sinni túlkun á textanum og söng sífellt hærra og ákveðnara. "Allar áhyggjur eru þurrkaðar út..simbi ljón!... hakuna matatan"

Ég er byrjuð að pakka fyrir Ísland. Að fenginni reynslu byrja ég snemma, þetta er mjög langur og flókinn ferill, hvað þá þegar börnin eru orðin tvö.

Það var að sjálfsögðu blessuð blíðan í dag, átti að ná um 28 stigum. Sem betur fer er ágætis vindur til að kæla mann niður. Það verður víst svipað veður á morgun, við stefnum á stóra vaðlaug í nágrenninu, þar sem eru líka leiktæki og garður. Grímur verður ánægður með að busla þar.