



Hér var afmælisveisla í dag - stóri-litli-drengurinn er 1 árs í dag og hér var mikil gleði. Við byrjuðum daginn á því að Grímur fékk afmælisgjöfina sína frá okkur,sem var rosa flott farartæki,maríuhæna á hjólum,sem maður ýtir sér á. Svo var hamagangur í öskjunni að klára að gera allt klárt fyrir afmælið. Hér komu Garðar,Sara,Ísak og Ísabella - beinustu leið frá Árósum;Agnes og Kalli með Elmu Lind og Mána - og Viðar og Lára með Elínu Ólöfu og Nökkva. Það var mjög huggulegt hjá okkur og fólk var ánægt með ofurhúsmóðurina. Grímur borðaði
súkkulaðiköku af bestu lyst og stóð sig vel í öllu áreitinu. Hér erum við sátt og glöð eftir daginn og þakklát fyrir að hafa fengið gullmolann í líf okkar.