16 nóvember 2006

Grímur kom í heiminn fyrir 11 mánuðum


Hvað er ég gamall?

11 mánaða!

Já,elsku stækkandi unginn minn er 11 mánaða í dag. Og eins og allir foreldrar segja:en hvað þetta er fljótt að líða.

Hér er heimilislíf í góðum gangi. Ég eldaði fantagóðan kvöldmat,svínakótilettur á
tilboðsverði flattar út,velt í hveiti og kryddi og steikt í olíu,nammi namm. Með þessu var borið fram Súdanskar kartöflur,eða svo hét rétturinn í matreiðslubókinni:kartöflur með hökkðum tómötum úr dós,lauk,kryddi og fullt af hvítlauk - látið malla í rúman klukkutíma - og svo salad. Við Hallur borðuðum góðan skammt og Grímur smakkaði á svínakjötinu,endaði þó á gríska jógúrtinu sívinsæla.


Tími fyrir háttinn,mér tekst einfaldlega ekki að koma mér í rúmið fyrir 11!

13 nóvember 2006

Íslendingur í danskri rigningu

Ég hljóp hér út áðan með gullmolann minn,þurfum gjarnan að flýta okkur héðan út eftir að Grímur er búinn að leggja sig,því að Grímur vaknar venjulega um kl. 11 og dönskutíminn byrjar kl. 12. Nema hvað,þegar við komum út var heljarinnar rigning,nokkuð sem ég hafði ekki áttað mig á - og ég var í leðurstígvélum,ekki sérlega praktískt í mikilli rigningu,að ég tali nú ekki um álagið á blessað leðrið. Ég lét mig nú hafa það..en hugsaði með mér að ég yrði að drífa mig í að kaupa gúmmístígvél. Svoleiðis er það nefnilega í Danmörku,það er ekki talið athugavert að þramma um í gúmmístígvélum,meira að segja í skólanum hjá Halli eru hörðustu pæjurnar í gúmmístígvélum þegar það er rigning. Getið þið ímyndað ykkur hvernig það væri horft á ykkur ef þið mættuð í svoleiðis múnderingu í vinnuna eða skólann? En það er um að gera að vera praktískur þegar maður stundar almenningssamgöngur eða kemst um á tveimur jafnfljótum.

Það var stutt stopp hjá mér í dönskunni,var núna n.k. stöðuviðtal með kennaranum,hvar maður stendur,hvað maður vill bæta o.s.frv. Það var fínasta spjall - skundaði svo að leita að stígvélum án árangurs og fékk mér svo café latté í sárabót. Nú er ég heima og planlegg allsherjar þrif á baðherberginu. Ég ætti í raun ekki að sitjast niður við tölvuna,því ég get auðveldlega tapað mér í því.

Eins og Hallur sagði frá var IKEA ferð frá helvíti á laugardaginn - nú eru komnir stólar og eldhúskróksgardínurnar bíða hér þolinmóðar. Hallur lærði svo í gær og við Grímur dunduðum okkur. Ég hafði ætlað að skreppa kannski á risa loppumarkað sem var um helgina í Forum,en höndlaði ekki tilhugsunina eftir IKEA ferðina.

Grímur er hress og grét ekki neitt þegar ég kvaddi hann á vöggustofunni áðan. Hann vaknaði reyndar í nótt um 2 leytið og sofnaði ekki fyrr en að ganga 5! Ég veit ekki hvað var á seyði hjá greyið kallinum. Það væri sniðugt ef að börn gætu sagt frá því einhverjum árum síðar hvað var að angra þau ákveðna nótt þegar voru 11 mánaða. Ef að Grímur segði t.d. við mig þegar hann er orðinn 8 ára : heyrðu já,mamma,manstu í nóvember 2006,þegar vaknaði um nóttina og gat ekki sofnað aftur - það var út af því að mér var illt í góminum...eða, mig dreymdi illa.. eða, mér var illt í maganum... Það væri sniðugt - en þá væri líka smáræði eins og ein svefnlaus nótt löngu gleymd.

12 nóvember 2006

Lestarpása

Hallur skrifar:

Langaði bara að setji inn nokkur orð í lestrarpásunni minni og segja stuttlega frá sl. dögum.

Í fyrsta lagi eyðilagðist hjá okkur þvottavélinn. Hún var í eigu leigusalans svo hann þarf að sjá um að redda nýrri. Við gerðum að sjálfsögðu fyrir að ný vél yrði kominn morguninn eftir... En nei, 4 VIKNA biðtími!!! Það tekur sem sagt 4 vikur að afgreiða nýja vél hjá köppunum hjá Elektrolux. Ég varð svo yfir mig hneykslaður að ég mátti vart mæla. Og það getur bara enginn gert neitt í þessu að því er virðist, húsvörðurinn var raunarmæddur yfir þessu og athugaði hvort hægt væri að fá leigða vél í svo stuttan tíma, en nei, til að byrja með hefði það kostað 2x2 menn í 2x2 fyrir utan að leigan var svimandi há... úff ég gæti skrifað um þetta endalaust frá hinum ýmsu hneykslanlegu sjónarhornum, ég ætla samt ekki að gera mér það né öðrum. Bottom line: það er fínt að vera í Danmörku, ekki misskilja mig, en stundum hef ég það á tilfinningunni að getuleysið sé að sé alveg að fara með þá. Ef einhverjir þurfa spark í afturendann...

Hins vegar bjargaði það lífi okkar að við höfðum haft með okkur þvottavél frá Íslandi (algjörlega Hildigunni að þakka, ég vildi selja hana). Ég vatt mér því í það á föstudaginn að tengja hana og gerði ekki ráð fyrir því að það yrði mikið mál. En hvað haldið þið? Var kaldavatnskraninn (kraninn fyrir vatnið inn á vélina) þá ekki kalkaður fastur og ekki lifandi leið að skrúfa fyrir hann. Afleiðingin varð auðvitað sú að vatn rann í stríðum straumi eftir klósettgólfinu mér tókst þó á endanum að tengja helv. vélina. En hvað gerðist??? Haldið þið að helv. slangan (milli kranans og vélarinn) hafi ekki svikið mig og vatnið hélt áfram að leka niður á gólf!!! Jæja, á þessum tímapunkti var mér nóg boðið og kallið á hjálp...

Súrt - en samt ekki jafn súrt og IKEA ferðin sem við vorum í í gær. 18 villtir hestar munu ekki draga mig í IKEA aftur í bráð.

Eru ekki allir annars í stuði??? Ég er amk í flottum fíling :)

djö... lestrarpásan orðin alltof löng!

09 nóvember 2006

Nýjar myndir

Var að setja loks síðasta myndaskammtinn frá Lanzarote ferðinni síðastliðinn ágúst. Setti líka inn myndir frá því í október. Er búin að taka óvenju lítið af myndum undanfarið,þarf t.d. að sníkja myndir frá Elísabetu og pabba og co. frá heimsóknum þeirra.

Dreif mig í ræktina áðan og hjólaði þangað í rigningu. Maður lætur sig hafa ýmislegt þegar maður er í Danaveldi! Ekki myndi mér detta í hug að gera þetta á Íslandi. Veit ekki með þessa dönsku karlmenn - fór í Body Pump tíma - svona tími með lóðum - og í byrjum tímans voru 4 fullfrískir strákar með jafnmikið á stönginni eða minna en ég,halló! Þetta er ekki eins og á Íslandi,þar sem að karlmennirnir eru að bugna undan lóðunum. Kannski er þetta þessi 'ligeglad' fílingur?

07 nóvember 2006

Er æskilegt að vera ofurhúsmóðir?

Ég var í hami í gærkvöldi og hefði átt að skrifa um þetta þá,en skrifa nokkrar línur núna. Var komin með algjört ógeð á því sem á eftir að gera í íbúðinni - erum ekki komin með eldhúsborðsstóla,loftljós(nema eitt í forstofunni) og svo er ansi mikið af dóti sem á eftir að ganga frá í svefnherberginu. Það orsakast aðallega af því að okkur vantar skápapláss í svefnherberginu. Ekki það,íbúðin er í ágætis standi,það er bara týpískt dót sem á eftir að ganga frá þegar maður flytur. Alla vega,það skiptir ekki öllu máli hvað þarf að gera,heldur það að ég er stundum haldin svona "frustration" að vera ekki "ofurhúsmóðir" - með gjörsamlega allt á hreinu í íbúðinni,allt þrifið og þvegið og snyrtilegt og glansandi. Ég veit ekki hvaðan þetta kemur,held í raun að það sé ekki hægt að vera ofurhúsmóðir og hafa líka allt annað í góðum málum,t.d. að sinna börnunum sínum eða að sinna manni sjálfum,fara í ræktina t.d. Ég fékk þennan ofurpirring þrátt fyrir að ég hafi bæði bakað kryddköku um daginn og eldað ofurholla grænmetissúpu (við erum ekki að tala um Knorr).

Hvað segið þið - er hægt að vera ofurhúsmóðir og er það í raun eitthvað sem maður á að stefna á?

2 tönnslur í viðbót

Grímur Logi stóri strákur er kominn með 2 tennur í viðbót við hinar 6. Hann virðist taka tanntökuna með trompi,þegar hann er á annað borð að þessu,nú komu 2 í einu niðri við hliðina á framtönnunum. Ég er búin að vera að gera hann hálfgeggjaðan á að þreifa upp í hann að reyna að sjá og finna tennurnar,það er talsvert erfiðara núna heldur en þegar hann var 7 mánaða! Þessar 2 nýju tennur sem komu fyrir 3 dögum (4. nóv) ættu að útskýra af hverju hann var búinn að vera vakna aðeins á kvöldin og líka á morgnana þegar hann blundar - og þegar hann vaknaði fyrir 5 fyrir fáeinum dögum:)

Greyið er komið með kvef og fór ekki á vöggustofuna í dag eða í gær. Akkúarat þegar náði fínum degi þar á föstudaginn..kom með hann rétt fyrir 12 og sótti hann kl.16 - alveg týpískt að fá svo kvef,óh well.

Annars erum við í góðu standi hér. Við Grímur háðum smá rimmu í hádeginu (nei,ég segi svona). Var að reyna að fá hann til að borða stappaðar sætar og venjulegar kartöflur. Hann var ekki mjög hrifin af því,var miklu hrifnari af gríska jógúrtinu. Svo blandaði ég smá kartöflustöppu saman við jógúrtið og hann lét sig hafa það.

Nú er mikið sport að fara inn í eldhúskrók og stilla sér upp við glerhurðina,sleikaja hana aðeins og gretta sig - og þá á ég að vera hinu megin við hurðina og gera svipað og svo kíki ég fyrir hornið á hann (í gegnum hitt hurðaropið-þetta er mjög flókið) og það er rosalega sniðugt. Æ,hvað þetta er ljúft líf.

04 nóvember 2006

Grímur Logi skrifar...



Er ekki kominn tími til að ég skrifi á þessa blessuðu bloggsíðu? Jú, þó fyrr hefði verið! Það er erfitt að kynnast fólki í gegnum sögusagnir eingöngu. Mig langar því að segja aðeins frá sjálfum mér og lífinu hér í Kaupmannahöfn.

Nafn og aldur: Ég heit Grímur Logi, eins og þið væntanlega vitið, ég er 10 mánaða og 19 daga gamall, það styttist því í stórafmæli.

Matur: Mér finnst gott að borða! En hverjum finnst það ekki. Mér er hins vegar að sjálfsögðu ekki sama hvað ég borða og læt þá skoðanir mínar í ljós. Í dag var pabbi til dæmis með einhverja tilraunastarfssemi og setti perur út í grísku jógúrtina mína. Ég reyndi að vera kurteis til að byrja með og borðaði jógúrtina og skilaði perubitunum snyrtilega út úr mér um leið. Eftir nokkrar skeiðar sá ég þó að þetta gengi ekki lengur, ég neitaði að borða jógúrtina með perunum og kom pabba í skilning um það að ég mundi ekki borða meira fyrr en ég fengi “orginal” jógúrtdósina á borðið án allra heimatilbúinna viðbóta. Hann gaf sig á endanum karlinn, sýnir að stundum verður maður bara að vera harður.
Ég á nú ekki sérstaklega auðvelt með að nefna uppáhaldsmat, það kemur ýmislegt til greina. Ég er t.a.m. mjög hrifinn af hafragraut og borða mikið af honum. Gríska jógúrtin finnst mér líka frábær og svo smakkaði ég pizzu í gær og leist mjög vel á þann mat. Áður en ég hætti að tala um mat þá verð ég að nefna blessað rúgbrauðið. Ég hef komist að raun um að ekki verður komist hjá að láta sér það lynda ætli maður sér að tóra hér í Danmörku. Ég geri því mitt besta við að koma því niður þrátt fyrir að ég kúgist alltaf á fyrsta bitanum – þetta er vont en það venst.

Leikföng: Leikföng geta verið ágæt og ég dúlla mér oft við að skoða einhver leikföng, sérstaklega ef hægt er að ná þeim í sundur. Annars leik ég mér líka mikið með heldur óhefðbundin leikföng og þá finnast mér föt og allskonar tuskur mjög heillandi: hreinar, skítugar, blautar þurrar. Best finnst mér ef ég kemst í bala fullan af fötum, þá uni ég glaður við mitt mínútunum saman.
Uppáhaldsleikfangið mitt, það er auðvelt að nefna það. Það er hún mamma. Ég get klipið, nartað, slefað og klappað henni hvar og hvenær sem ég vil og svo gefur hún frá sér hin ótrúlegustu hljóð, grettir sig, hoppar, dansar og syngur með slíkum tilþrifum að við pabbi verðum gapandi hissa. Þegar ég verð loks þreyttur af öllum hamaganginum þá faðma ég hana og við róum hvort annað niður.

Orðaforði: Eins og þið sjáið af skrifunum þá er orðaforðinn í fínu lagi (a.m.k. miðað við að ég er bara 10 mánaða). Ég er hins ekkert að segja öll þessi orð upphátt. Einu orðinn sem ég segi upphátt eru “pabba” og “datt”, svo kann ég alveg að segja “mamma” en mér finnst svo gaman að stríða mömmu svo ég nota það mjög sjaldan.

Staður: Það jafnast náttúrulega fátt á við gott kaffihús, en uppáhaldsstaðurinn minn er nú samt uppi í rúmi hjá mömmu og pabba, snemma á morgnana þar sem þau liggja nánast meðvitundarlaus og ég get kastað mér á þau og bitið þau í nefið, tosað í eyrun eða hvað sem mér dettur í hug.

Tennur: Þær voru lengi vel sex en í gær bættist sú sjöunda við!!! Mamma hamaðist í gær og í dag að þreifa á góminum mínum til að staðfesta að hún væri komin.

Áhugamál: Ég hef ýmis áhugamál: fara á kaffihús, borða góðan mat, lesa bækur og hlusta á tónlist. Dansinn á þó hug minn allan, hann er stór hluti af lífi mínu og ég reyni að flétta hann inn í flest það sem ég geri, hvort sem ég er í vagninum mínum, er að fá mér að borða eða hvar ég er. Dansinn er það fyrsta sem ég gef mig að þegar ég vakna á morgnana, þá förum við pabbi fram í stofu, pabbi setur á disk í græjurnar, helst létta sveiflu og ég tek sporið - besti tími dagsins.

Mottó: “Lífið er einn dans…”

Jæja, ég vona að þið séuð einhverju nær. Annars líkar mér prýðilega hér í Kaupmannahöfn, ég er byrjaður á vöggustofu sem mér líkar alltaf betur og betur við. (Viðurkenni að mér leyst ekkert á þetta til að byrja með). Ég sakna hins vegar allra heima á Íslandi, þó sumir hafi sem betur fer heimsótt mig nú þegar: amma Hanna, afi Sturri, Afi Hallur og Amma Dúna komu í september og afi Ægir, amma Ragna og Ingólfur frændi komu í október. Það væri æðislegt að fá alla í heimsókn, þó ég hafi verið pínulítið hræddur til að byrja með. Ég er nefnilega ekkert sérstaklega mannglöggur, hef það sennilega frá pabba mínum. Að lokum lét ég fylgja með mynd af mér (og pabba) þar sem ég vinka til ykkar allra, myndin er tekin meðan ég er að skrifa þessi orð.

Mínar ljúfustu kveðjur,
Grímur Logi Hallsson

03 nóvember 2006

Lítill drengur á vitlausu tímabelti

Hér var stuð í nótt þegar Grímur Logi vaknaði korter í fimm og var ekkert á því að sofna aftur. Pabbi tók hann að sér,reyndi fyrst að svæfa hann aftur en svo var gefist upp og farið fram í stofu. Spurning hvort að sé tönn að stríða honum eða hvað,hann er alla vega búin að vera að vakna aðeins á kvöldin eftir að hann sofnar.
Annars er hann kominn á ágætis skrið á vöggustofunni,var í raun aðeins erfiðara að byrja aftur eftir tæplega 2 vikna pásu,heldur en þegar hann byrjaði fyrst. Í dag var hann sáttari og skreið um og slíkt. Ég kom með hann rétt fyrir 12,hljóp í dönskuna og sótti hann kl.4 - þá var hann sofandi úti.

Ég er að fara á morgunn á undirbúningsdag fyrir söngnám sem ég er spennt fyrir og byrjar í febrúar. Þetta verður n.k. "Masterclass" og svo eiga allir að syngja,þar á meðal "moi" - og er dálítið stressuð - en hlakka samt til líka. Ég hlakkaði til í vikunni ... en nú er dálítið stressuð:) Þetta verður örugglega mjög gaman. Segi ykkur seinna hvernig gekk. Ég er svo mikil raggeit að ég sé fyrir mér að ég sé búin að syngja og svo segi kennarinn við mig : bíddu,þetta gengur ekki,þetta var alveg ómögulegt. Humm...þýðir ekki að hugsa svona! Þetta verður gaman..gaman...gaman!!!