18 maí 2007

Myndir komnar

Þá er ég loks búin að setja inn myndir, þær eru frá apríl og ná til gærdagsins.

Við Grímur vorum heima í dag og tókum því rólega. Lékum okkur saman eftir að hafragrauturinn var borðaður (og Grímur endaði máltíðina á að setja restina af grautinum á hárið,nammigott). Við stöfluðum turna með kössum, sendum lest á milli okkar og Grímur brunaði um á maríhænunni sinni. Það var grátt úti og rigning og Grímur er kvefaður, þannig að við fórum ekki mikið út. Við kíktum til nágranna okkar á jarðhæðinni í kaffi og svo klæddi ég Grím í pollagallann og hann fékk að busla aðeins í pollunum úti í garði. Við stoppuðum þó stutt við því það byrjaði að rigna og hendurnar á litla gaurnum orðnar kaldar. Svo eldaði húsmóðirinn hakk og spagettí, sem var nammigott, alla vega borðaði Grímur af bestu lyst.

Svo var maraþon bað/sturta hjá okkur Grími, alveg örugglega í 40 mínútur, þetta finnst Grími æði. Hann er mjög nægjusamur, þrátt fyrir ýmis baðleikföng finnst honum venjulega mest spennandi að vera með þvottapoka. Hann dundaði sér við hitt og þetta, í lokin uppgötvaði hann að það var mjög sniðugt að standa upp og láta sig svo detta ofan í balann með látum. Eftir þetta vorum við vel gufuð og heit og góð - ekki var þó nostrið búið, því Grímur fékk olíunudd á skiptiborðinu. Honum fannst það bara fínt, ég næ ekki að dúlla eins mikið og þegar hann var minni, núna þarf að vera meira stuð, hann fær smá dót til að skoða og það eru taldar tásur og svo finnst honum gott, alveg eins og hann var lítill þegar að handleggir og fótleggir eru hristir (mátulega hressilega að sjálfsögðu).


Eftir þetta töluðum við við Arngunni systur og ömmu Hönnu, sem var hér í heimsókn síðustu helgi.

Þetta var s.s. dagur hjá okkur ... vonandi hafið þið átt góðan frídag.

16 maí 2007

Stórfréttir!

Þar kom að því að fengin var utanaðkomandi “dönsk” pössun fyrir Grím.

Grímur er kominn með all nokkuð kvef og við Hildigunnur vorum svo “upptekin” í dag að við áttum erfitt með að vera heima. Við höfðum því samband við “pössunarþjónustu” í gærkvöldi og fengum svo hana Britta í heimsókn 7:40 í morgun. Hildigunnur var með þeim til kl. 9:30 en eftir það dúlluð Grímur og Britta gamla sér hér heima, þar til ég kom heim seinnipartinn. Þetta virðist hafa gengið ótrúlega vel, a.m.k. kvartaði hvorugt þeirra. Hér hafa því orðið ákveðin vatnaskil og við Hildigunnur eigum sannanlega eftir að bjalla í hana Brette aftur og bjóða henni upp á þau forréttindi að passa Logálfinn okkar aftur.

Þess má að lokum geta að Grímur Logi er 17 mánaða í dag! Til hamingju elsku kúturinn.

09 maí 2007

Lofa myndum eftir helgi

Gódan og blessadan daginn,ég er nýmætt í skólann - tíminn byrjar eftir 50 mín, ég er bara svo idin og kem og æfi mig ádur,he,he.
Ad venju er allt á fullu, tharf helst ad fá samthykkt lag í dag til ad syngja á tónleikum 20. maí, lagid eda søngurinn, verdur nefnilega ad vera samthykktur med viku fyrirvara eda meira.
Svo er smá tiltekt fyrir komu Skagamafíunnar á morgun og í kvøld verdur pakkad í ferdatøsku fyrir Parísarferd - Á MORGUN! Ja hérna mía. Vid erum ad fara 4 stelpur ad heimsækja Auju vinkonu í París, já, thú heyrdir rétt - thetta er STELPUFERD.

Er búin ad vera á leidinni í mánud ad setja inn myndir, en sé fram á ad ná thví í kvøld, thannig ad ég lofa theim eftir helgi.

Gledilega Eurovision og kosningahelgi

04 maí 2007

Stjarnan mín og ...

Verð bara að koma að því orðum að Hildigunnur var hreint og beint frábær á tónleikunum í gær, kom sá og sigraði!!! Aðra eins dynjandi sveiflu og rithma hafa Kaupmannahafnabúar og nærsveitungar ekki orðið vitni að.

Hildigunnur hafði, eins og áður segir, með sér á sviðið þrjár útvaldar og upprennandi danskar sönggyðjur sem með eggjandi og fjaðurmagnaðri sviðsframkomu studdu við stjörnu kvöldsins. Henni tókst á eftirminnlegan hátt að bræða saman í listrænum gjörningi seiðandi kyngimagn söngsins og lokkandi og lífsörvandi líkamstjáningu. Allt rann þetta saman í andlegan “elexír” sem ölvaði áheyrendur lengi á eftir.

Þetta var dýrlegt.

E.S.
Ég geri mér enga grein fyrir hvað hún Hildigunnur er að fara með tali um ýkjur. Allt sem ég skrifa hér samræmist kristilegu uppeldi mínu og því hvernig ég upplifi aðstæður á hverjum tíma.

03 maí 2007

Uppfíruð eftir kvöldið

Og gerum enn betur:)
Við Hallur erum tiltölulega nýkomin heim eftir vel heppnaða tónleika á vegum skólans míns, á stað niðri í bæ. Þar söng ég skemmtilegt Arethu Franklín lag, ekta soul/fönk. Það var hljómsveit sem að hélt uppi kvöldinu og svo voru 3 stelpur sem sungu bakraddir með mér. Þetta var virkilega gaman og fólk var bara ánægt með mig. Var í allt öðrum gír en síðast, þegar söng rólegt lag, meira hægt að kýla á það og það er bara stuð. Mig langaði bara að syngja meira þegar ég var búin!

Grímur var á meðan hjá Skarphéðni Árna, vini sínum, þeir voru víst mjög góðir saman. Þeir léku sér líka saman á "mótor"hjólum í garðinum fyrr í dag.
Mér leist ekkert á þessi "svefnskrif" hjá Halli, að ég minnist nú ekki á, að ég kem ekki sérlega vel úr þeim:) Ég bið ykur að hafa í huga að Hallur tekur smá skáldasveiflur - ég er ekki að segja að hann segi rangt frá en aðeins ýkt í anda Halls. Það er nú ekki eins og stjörnuprinsinn á heimilinu sé að vakna allar nætur og þjáist hér á heimilinu, jedúddamía!

Best að koma sér í háttinn, nú er spennufall og þreyta að hellast yfir mann.

02 maí 2007

Komum sífellt á óvart!

Ha, ha, þessu áttuð þið ekki von á. Blogg með aðeins tveggja daga millibili!

Við Grímur vorum heima 1. maí þar sem leikskólinn var lokaður. Við höfðum það voða gott feðgarnir og ræddum mikið málin. Vorum að sjálfsögðu úti í sólinni sem hefur leikið við okkur undanfarna daga.

Ekki var nóttin síður skemmtileg, Grímur á það til að vakna einhvertíma á bilinu 3 til 5 á nóttunni og þar sem mamma hans hefur sett þá reglu að taka hann ekki upp í rúm fer annað okkar inn til hans og reynir að sannfæra hann um að fara aftur að sofa. Það veður þó að segjast að af einhverjum ástæðum á ég alltaf þessar næturvaktir. En yfirleitt geng ég til þessara verka minna með bros á vör… og það hefur verið góð ástæða fyrir því.

Fyrir nokkrum vikum ákvað ég að taka húsbóndastólinn úr stofunni og frá sjónvarpsskerminum og setja inn í herbergi til Gríms, svo ég hefði amk þægilegan stól til að sitja á. Þetta var nokkuð táknrænn atburður og ég er hræddur um að hann hafi ekki hjálpað mér mikið í valdatafli heimilisins – það er önnur saga.

Eftir að ég kom stólnum fyrir hef ég nýtt þessar stundir til að lesa hinu frábæru bók “Ævintýri góða dátans Sveijks”. Ég hef því setið, flestar undanfarnar nætur, frá hálftíma og upp í tíma við rúmið hjá Grími mínum og skemmt mér konunglega við lesturinn. Grímur gerir engar athugasemdir við þetta svo fremi sem pabbi hans reynir ekki að laumast aftur upp í rúm áður en honum tekst að sofna aftur (af einhverjum ástæðum getur það tekið þó nokkurn tíma).

Nú er ég hins vegar í smá klemmu því þó bókin sé nærri 500 blaðsíður þá vaknar Grímur flestar nætur, svo ég hef verið nokkuð röskur með bókina og nú er hún búin. Þegar Grímur vaknaði í nótt gat ég því ekki gripið í hann Sveijk minn og bókin sem ég er byrjaður að lesa núna er ekki beinlínis nætur lesning, heitir “Vidensfilosofi”. Það var því úr vöndu að ráða þegar minn maður hóf um raust sína í nótt og krafðist þess að pabbi kæmi og klappaði honum.

Þá fékk ég vitrun… í síðustu viku hafði ég vaknað til hans en verið of þreyttur til að lesa og tók því með mér sængina og lagðist á bert gólfið við hliðina á rúminu. Ég get ekki sagt að það hafi farið sérstaklega vel um mig, en ég sofnaði þó í smá stund og Grímur gerði engar athugasemdir. Í nótt datt mér hins vegar það snilldar ráð í hug að taka stóru “tungu” pulluna úr sófanum og leggja hana við hliðina á rúmin. Pullan er að vísu ekki nema ca. 140 cm og ég 190 cm, en hvað um það. Ég steinsofnaði og lá þarna eins og rotaður selur til kl. 8 í morgun! Takið eftir því 8!!! Það hefur varla gerst. Grímur var auðvitað löngu vaknaður en fyrst hann hafði pabba sinn þarna við hliðina á rúminu sá hann enga ástæðu til að vera með nein læti og rabbaði til skiptis við bangsann sinn og hrjótandi pabba sinn.

Jæja, látum þetta duga í bili. Sjáum hvort það líður jafn stuttur tími þar til við skrifum næst :)