30 október 2006

Var að græða klukkutíma


Var að leggja Grím minn niður til svefns áðan. Við borðuðum saman afgangs hakk og spagettí,svo Grímur fór í maraþonbað. Eftir það leit ég á úrið mitt og hugsaði,nei heyrðu mig,rosalega vorum við lengi í baði,klukkan var sem sagt 6 mínútur yfir 8,ég sem er að reyna að koma Grími fyrr í háttinn (háttatíminn var farin að nálgast hálf tíu) og ætlaði að setja hann í rúmið kl.8,ansans! Svo var litli gaurinn svæfður og það tók reyndar um hálftíma. Kom svo fram og hugsaði : úff,ég á eftir að gera svo mikið,læra dönsku,ganga frá,hitt og þetta og klukkan er orðin 9! En nei,nei..úrið sem hafði litið á var á 'gamla tímanum',í gær var klukkan í Danmörku sett á vetrartíma,sett 1 tíma til baka. Þannig að klukkan var bara rúmlega 8,litli gaur sofnaður og ég var að græða klukkutíma!

13 október 2006

Beðið eftir Elísabetu

Sit hér heima,Grímur er sofandi og bíð eftir Elísabetu. Karertu? Ég segi svona,er svo spennt að fá hana í heimsókn.

Þurfti að fara snemma úr dönsku í dag,það var hringt í mig á vöggustofunni og beðin um að sækja Grím. Grímur greyið var byrjaður að kvefast í gær,vaknaði í nótt og átti bágt. Mér fannst þó ágætlega stemmdur í morgun og ákvað að láta reyna á þetta. Þegar þær hringdu var hann e-ð lítill greyið og vildi bara láta halda á sér og rann úr nebbanum. Vonandi verður hann ekki mjög slappur.

Heyri í ykkur eftir helgi - hlakka mjög til að eyða tíma með Elísabetu og Agnesi vinkonum.

11 október 2006

Nu skal man snakke dansk

Ég byrjaði á dönskunámskeiðinu í gær og er að sjálfsögðu mjög ánægð. Reyna á heilan: vííí... tilbreyting frá mömmustússi:vííí... Skólinn er hér nálægt okkur,ca korter að labba og kennir reyndar mun fleira en dönsku fyrir okkur útlendingana. Með mér í tímanum var fólk frá Pakistan,Kína,Englandi,Filippseyjum,Þýskalandi og að sjálfsögðu frá gamla góða Íslandi (2 stelpur). Þessi dönskukennsla er í raun hlaupandi námskeið,maður getur verið í þessu í ansi langan tíma,veit ekki til þess að séu takmörk á því hvað maður getur verið lengi. Nýtt fólk getur byrjað í hópnum hvern mánudag. Ég er núna á þriðja 'módúl' og svo getur maður tekur próf eftir 2,3,4 mánuði til að komast á næsta módúl. Kennslan er hverja virka daga nema miðvikudaga. Og hvað gerir maður þegar að unginn manns fer á vöggustofu í 3-4 tíma,jú,maður þrífur! Veii...

Það er eins gott að taka til hendinni áður en að Elísabet snyrtipinni,vinkona,kemur til okkar á morgun:) Hún kemur frá London til að kíkja á okkur Agnesi vinkonu og dást að börnunum okkar :) Á t.d. eftir að sjá Mána litla hennar Agnesar,sem að fæddist í júní.

Í gær var Grímur á vöggustofunni frá ca 11 til 3,þá sótti pabbi hans hann. Var hinn rólegasti að dunda sér þegar að Hallur kom. Hann er ekki að æsa sig að óþörfu og vill örugglega skoða vel svæðið og skanna fólkið og krakkana áður en hann fer að láta meira á sér bera.

Klósettburstinn bíður ! Hálftími í að Grímur vakni og þá er eins gott að vera búin að hafa allt tilbúið áður en maður fer út úr húsi.

06 október 2006

Gengur vel hjá Grími

Í dag fórum við í þriðja sinn á vöggustofuna. Grímur sofnaði á leiðinnni þangað á sínum venjulegan tíma. Svo vaktí ég hann eftir að hann var búin að sofa í um 70 mín og fór með hann inn. Þar tók hún Dorthe við honum,ein af fóstrunum og jafnframt yfir vöggustofunni allri. Ég skrapp fram á kaffistofu og á meðan fékk Grímur að borða og drekka,lék sér og var skipt á honum. Allt þetta fór fram án þess að hann kvartaði! Mikið var ég ánægð:) Drengurinn er þessa dagana alger mömmu og pabbastrákur,enda búinn að vera mikið einn með honum,enn meira einn með okkur af því að vorum að flytja og erum ekki búin að vera í kringum stórfjölskyldur okkar og fleiri. En hann er jú í sérlegu góðu jafnvægi og hann höndlaði þetta vel í dag án mín í um 50 mínútur. Sem sagt...ánægð mamma og ánægður Grímur.

Eftir þetta flýttum við okkur heim - ég var búin að bjóða 2 íslenskum stelpum sem eru hér í byggingunni í hádegiskafif með krílin sín. Ein er með rúmlega 2 ára stelpu og 6 mánaða strák og hin með strák sem er 3 vikum eldri en Grímur. Það var því fjör og gaman hér í dag. Það var mjög gaman að hittast og kjafta og pústa :)

Á morgun verður ekki venjulegur fjölskyldudagur eins og við reynum að hafa laugardagana því að Hallur þarf að vinna í verkefni með hópi úr skólanum. Við Grímur ætlum þó í barnaafmæli til Agnesar vinkonu.

04 október 2006

Grímur og Rauði Krossinn


Fyrsti dagurinn á vöggustofunni hans Gríms var í dag,eftir 2 veikindadaga heima. Á myndinni lengst til vinstri er hann að undirbúa sig heima áður en við leggjum í hann,að fara yfir nýju bókina sína Den lille bondegård. Á næstu erum við fyrir utan heima að leggja í hann og á þeirri til hægri erum við á vöggustofunni. Þar tóku á móti okkur 3 fóstrur,ég talaði mest við hana Dorthe. Þær voru reyndar ansi uppteknar þegar við komum í matartímunum að sinna litlu álfunum og svo að hafa þau til fyrir hádegisblund. Á morgun mætum við fyrr,í kringum 9 og þá spjöllum við betur við þær. Í dag var ég stutt með hann,ca 45 mín,heilsuðum upp á krakkana og spjölluðum við fóstrurnar. Okkur líst bara vel á. Þarna voru börn frá 7 mán og upp í tæplega 3 ára. Grímur er s.s. næst yngstur. Einhverra hluta vegna er vöggustofan kennd við Rauða Krossinn og á að vera einhvers konar sjálfstæð stofnun,þótt maður sjái það ekki neitt í raun.

Eftir heimsóknina á vöggustofuna kíktum við á kaffihús við hliðina á Frederiksberg Centret,'mallinu' í Frederiksberg,sem er við hliðina á skólanum hans Halls. Hallur kom svo og heilsaði upp á okkur. Svo fórum við Grímur í barnabúð í Österbro og versluðum þar aðeins. Tók okkur svo 40 mín að koma okkur heim í strætó í ansi mikilli umferð og Grímur orðinn þreyttur og pirraður.

Best að koma sér í háttinn og vera vel upplagður fyrir daggæsluna á morgun.

02 október 2006

Fyrsta degi á vöggustofu frestað

Elsku Grímurinn er orðinn veikur þannig að hann fer ekki á vöggustofu í dag eins og var ætlunin. Hann byrjaði á því að kvefast um helgina og nú í nótt var hann kominn með hita. Ferlega leiðinlegt. Vonandi verður hann tiltölulega fljótur að jafna sig.

Svo er ég líka komin með óþverrakvef,það helltist yfir mig á klukkutíma að mér fannst. Hellti í mig Flensubana og fleira frá Jurtaapótekinu,en náði varla að grípa í skottið á pestinni.