23 janúar 2009

Tanntökur og æla

Morguninn her for af stað eins og venjulega, Hanna Freyja vaknaði um 5 leytið og let heyra i ser. Svona hefur þetta verið i meira en viku. Það tekur dalitinn tima að na henni aftur niður. Hallur hefur venjulega sinnt henni en eg tok vaktina kl. 5 og sendi Hall fram i sofa. Svo var Hanna Freyja um það bil sofnuð, en þa kom Grimur Logi röltandi inn i herbergi og litla rofa vaknaði við það. Litli kallinn kvartaði undan að vera illt i maganum, og eg gerði rað fyrir að það væri af þvi að borðaði litið i kvöldmat. Svo sa eg að Freyjan var pissublaut og skipti a henni og Grimur for fram til pabba sins i sofann. Það eru sem sagt skrautlegar nætur her a bæ.

Grimur greyið helt afram ad kvarta undan maganum og endaði a þvi að æla a golfið kl. 9, skömmu aður en atti að leggja af stað a leikskolann. Foreldrarnir voru frekar tregir og slepptu honum laus og hann ældi svo aftur a sofann, greyið. Þvi var hann kyrrsettur og liggur her slappur við hliðina a mer i sofanum, nybuinn ad æla upp eplasafa. Það er alveg andstyggilegt að fa svona pest, þetta var vist eitthvað að ganga a leikskolanum.

I gær forum við Rambolina litla a rölt niður i bæ, mig vantaði bok fyrir söngnamið sem eg byrja i 6. feb og ullarbol a Grim. Það þurfa ekki að vera merkilegar afsakanir til að koma ser ut ur husi. Annars hef eg mjög litið farið niður i bæ.
A þriðjudaginn forum við með Karen og Ellen Mariu i mömmuhop i Jonshusi. Þar voru 2 aðrar stelpur með börnin sin, einn 5 manaða og ein rumlega 1 ars sem kom i lokin. Hanna Freyja var mjög glöð að sja hana. Eftir kaffi og bakkelsi löbbuðum við Karen aleiðis heim og nyttum solina og fallega vetrarveðrið, það hefur svo litil sol verið. Eftir að labba meðfram Söerne vildi Karen koma ser heim að vitja Daniels sem var veikur og hoppaði upp i stræto. Eg var a sma orkuflippi eftir spinningtima kvöldið og gerði mer litið heim og labbaði heim. Geri aðrur betur, fra Österbro!

Hanna Freyja er buin að vera i rosalegum tanntökuham, liklega þess vegna sem hun hefur verið að vakna svona undir morgun. I gær fann eg 4 tönnina (framtönn niðri) og 2 dögum aður kom hægri framtönn uppi . Svo er hun rosalega orkumikil, nennir ekki að liggja a skiptiborðinu, tætir i allt, tekur a ras þegar hun ser uppþvottavelina opnast, ætlaði upp ur vagninum þegar við vorum i lestinni i gær og allt eftir þeim notum. Finnst hun alveg vera ad segja "datt" þegar að eitthvað dettur af matarborðinu, þott það geti verið sma bjartsyni, segir lika gjarna "mamma" eða einhvers konar utgafu. Veifaði lika eins og eg gerði þegar við vorum að skoða okkur i spegli i gær. Hun er alveg yndisleg hun dottir min.

Vona að ælupukinn hafi það betur braðum, nu er bæði börnin sofandi, eins gott að nyta timann i tiltektir, einn, tveir og af stað!

22 janúar 2009

Bara halftimalur

Jæja, nu erum við Hanna Freyja i rolegheitum heima við. (Og eg get ekki skrifad kommur yfir stafi). Eg let hana sofa inni i stadinn fyrir uti i vagni, eins og venjulega, þvi ad var komid sma hor og var oroleg undir morgun - en það þyddi að hun svaf i halftima i stadinn fyrir minnst 2 tima! Eg sem ætladi að fara að æfa mig syngja!

Við erum komin i okkar rutinu eftir jolaferdina til Islands. Grimur er buinn ad vera a leikskolanum og bara nokkud anægður þott að hafi vantad Daniel vin hans, sem er buinn að vera veikur. Eg er að biða eftir að heyra með vöggustofuplass handa Hönnu Freyju, þott mer liggi s.s. ekki mikið a, svona personulega. Stefni a að fara að vinna i mars og að Hallur verði eitthvað heima a moti mer , ef við erum ekki komin með hana a vöggustofu.

Um helgina verður vonandi skroppið i sund og svo förum við i skirnarveislu fyrir Ellen Mariu, litlu systur hans Daniels sem kom i heiminn skömmu fyrir jol.

Eg er buin að setja nyjar myndir a myndasiðuna og er að bæta við fleirum, það er af nogu að taka.
Hafið það gott elskurnar, söknum ykkar allra.

13 nóvember 2008

Sviti og kvef

Nú líður mér vel, eftir að hafa farið i góðan Body Combat púltíma í ræktinni. Þar er boxað út í loftiðe og sparkað og hoppað, jú og öskrað aðeins. Var reyndar sannfærð um að ég væri að fara í Body Pump tíma, en annað kom í ljós. Það var reyndar besta mál, þó ég væri ekki í góðum haldara fyrir skopp, ekki sérlega sniðugt fyrir mjólkurfullu brjóstin, en þetta reddaðist og ég hélt bara vel fyrir þau þegar við gerðum hnélyfturnar.

Annars er Hanna Freyja litla komin með kvef - aftur. Var líka kvefuð fyrir um 3 vikum. Það rann vel úr nefinu og var ansi lítil í dag greyið.

Henni liggur ansi mikið á að ná þessu "mótóríska". Byrjaði að skríða að hermannasið fyrir 2 mánuðum og er nú farin að sitja nokkuð stöðug. Svo byrjaði hún á því fyrir viku að tosa sig upp í standandi stöðu. Þetta gerir hún við sófan, við kassa í eldhúsinu, við ryksuguna og við klósettið (og nagar setuna, namminamm).

Grímur Logi byrjaði á nýjum leikskóla í lok október og það gengur mjög vel. Leikskólinn, eða "børnehaven", heitir Melita og þar er skipst á að vera 2 vikur í leiskólanum, sem er hér nálægt og 2 vikur í "sveitinni"/úthverfi í Birkerød. Þar er líka venjuleg leikskólaaðstaða og náttúra í kring, þess vegna er þetta kallað "skovbørnehave".
Grímur fær frí í leikskólanum á morgun og verður heima með mér og orkudísinni.

Hafið það gott og góða helgi.

17 október 2008

Krúnurakaður peyji

Við Grímur og Rambólína erum heima í dag í rólegheitum. Grímur var líka heima í gær og við fórum með Garðari, Söru, Ísabellu og Ísaki í Frederiksberg dýragarðinn. Það var nokkuð gott hjá mér bara að komast út úr húsi, því það ætlaði aldrei að takast. Hallur hafði skroppið á undan í skólann og ég fór því ein með þau af stað. Fyrst var litla sett út að sofa og hún var óvenju lengi að sofa, og kom svo í ljós að hún hafði kúkað og því þurfti að fara inn með hana til að skipta á henni. Svo var ég að klæða mig og fá mér að borða og þegar ég ætlaði að drífa okkur út var Grímur sofnaður og slefandi í sófanum. Því þurfti ég að bera hann, fyrst á klósettið og svo út í vagn. Loks komumst við af stað með skiptitösku, nesti, pollagalla og ég veit ekki hvað.

Komumst svo á leiðarenda til Halls og hinna. Grímur svaf reyndar lengur en var vakinn í nýja flotta fílahúsinu. Það er alltaf jafn gaman fyrir krakkana að vera í dýragarðinum, þótt það hafi byrjað að rigna og stemmningin verið haustleg. Grími finnst voða gaman að vera með Ísaki og Ísabellu, og þau eru voða góð við hann, leiddu hann um og klöppuðu honum.

Hallur tók sig og rakvélina til í gær og rakaði hárið á Grími, fékk s.s. "kreppuklippingu". Fyrst þurfti að múta honum til að setjast í rakarastólinn með frostpinna. Svo varð rakvélin rafmagnslaus og Hallur mútaði honum með rúsínum. Aftur varð rakvélin rafmagnslaus og pollanum var mútað aftur með Hafra Fras, til að klára að snyrta hárið. Held reyndar að síðustu múturnar hafi ekki alveg verið nayðsynlegar. Núna er Grímur vel stuttklipptur og hefur elst um hálft ár. Ég set hérna mynd inn sem fyrst, vil ekki fara inn í herbergi núna að ná í myndavélina, þá vaknar litla alveg örugglega.

Við Grimur ætlum að baka kanilsnúða í dag, það var reyndar "Stóri bakstursdagur", að dönskum sið, í gær. Þá bökuðum við Grímur reyndar brauðbollur, hann er mjög áhugasamur. Hann var t.d. spældur í gærmorgun, þegar hann sá að ég hafði sett in í ofn, og hann hafði ekki fengið að hjálpa til. Ég er orðin ansi lunkin í að henda inn brauðdeigi í ísskáp að kvöldi til sem maður bakar svo morguninn eftir. Þetta er algjör snilld, maður hnoðar ekki neitt, hrærir bara saman og hendir inn í ísskáp, tekur 3 mínútur. Sýni ykkur kannski snúðana síðar, ef þið eruð heppin:)

14 október 2008

"Dejlig" haustdagur

Mikið var fínn dagur í dag. Grímur Logi fékk frí á vöggustofunni í tilefni haustfrís, sem er í skólum núna í Danmörku og við þrjú dunduðum okkur í morgun þangað til að Hallur kom heim. Við Grímur fórum svo í bíó að sjá Diskó-ánamaðka með Svönu og Skarphéðni. Strákarnir fengu sér popp og sódavatn og skemmtu sér vel. Grímur var aðeins að passa upp á poppið sem við deildum, hann hélt á því og þegar ég stakk hendinni ofan í flýtti hann sér að stinga höndinni ofan í líka:) Svo eftir á hljópu þeir um pallana og tröppurnar fyrir ofan og við kíktum inn á bókasafn, þeir strákarnir léku sér með dót og við Svana lásum sorpritin. Þrömmuðum svo heim og kíktum út í garð heima.

Svo var liðið háttað og gaf Hönnu Freyju að borða og súpa þangað til að hún ældi 4 sekúndu langri bunu á mig alla! Barnið var búið að fá að borða og súpa hjá Halli og ég hélt áfram að gefa henni áður en hún fór í háttinn, svo að hún væri örugglega södd og þetta endaði svona skrautlega. Þurfti að fara í sturtu eftir á. Eftir háttinn kom Hallur með mat handa mér og svo fór hann í bíó með Garðari.

Hugsum mikið til Íslands og til fólksins okkar. Er þetta þó ekki ágætur tími til að búa í útlandinu. Hlökkum til að sjá alla þegar við komum í desember.

27 september 2008

Nýjar myndir

Ókei, við vitum öll að ég hef verið mjög léleg í að blogga eftir að fyrstu vikurnar eftir komu Hönnu Freyju voru liðnar. En ... ég er alla vega búin að setja slatta af nýjum myndum inn á Flickr. Allt sem er merkt *NÝTT*, er jú nýtt, og nær nokkuð aftur í tímann. Þarf meira að segja að setja jólamyndirnar inn. Kíkið á þetta hér .

29 júlí 2008

Hanna Freyja 4 mánaða

Í dag er Hanna Freyja, elsku litla dóttir mín, 4 mánaða og það er dálítið ótrúlegt. Tíminn þýtur hjá og þetta er allt of fljótt að líða, þau eru svo stutt svona lítil þessi litlu yndi. Áður en ég veit af, verður hún 7 mánaða, jú og svo eins árs. Hér eru 2 myndir teknar í dag eftir að Grímur Logi stóri bróðir kom heim af leikskólanum.

Ég segi ekki meira í bili, er komið fram yfir "nýja" háttatímann minn.

Þessi bloggþögn átti ekki að vera svona ferlega löng, ætlaði bara að taka smá pásu á Íslandi. Svo er alltaf erfiðara og erfiðara að byrja aftur!