14 október 2008

"Dejlig" haustdagur

Mikið var fínn dagur í dag. Grímur Logi fékk frí á vöggustofunni í tilefni haustfrís, sem er í skólum núna í Danmörku og við þrjú dunduðum okkur í morgun þangað til að Hallur kom heim. Við Grímur fórum svo í bíó að sjá Diskó-ánamaðka með Svönu og Skarphéðni. Strákarnir fengu sér popp og sódavatn og skemmtu sér vel. Grímur var aðeins að passa upp á poppið sem við deildum, hann hélt á því og þegar ég stakk hendinni ofan í flýtti hann sér að stinga höndinni ofan í líka:) Svo eftir á hljópu þeir um pallana og tröppurnar fyrir ofan og við kíktum inn á bókasafn, þeir strákarnir léku sér með dót og við Svana lásum sorpritin. Þrömmuðum svo heim og kíktum út í garð heima.

Svo var liðið háttað og gaf Hönnu Freyju að borða og súpa þangað til að hún ældi 4 sekúndu langri bunu á mig alla! Barnið var búið að fá að borða og súpa hjá Halli og ég hélt áfram að gefa henni áður en hún fór í háttinn, svo að hún væri örugglega södd og þetta endaði svona skrautlega. Þurfti að fara í sturtu eftir á. Eftir háttinn kom Hallur með mat handa mér og svo fór hann í bíó með Garðari.

Hugsum mikið til Íslands og til fólksins okkar. Er þetta þó ekki ágætur tími til að búa í útlandinu. Hlökkum til að sjá alla þegar við komum í desember.