17 október 2008

Krúnurakaður peyji

Við Grímur og Rambólína erum heima í dag í rólegheitum. Grímur var líka heima í gær og við fórum með Garðari, Söru, Ísabellu og Ísaki í Frederiksberg dýragarðinn. Það var nokkuð gott hjá mér bara að komast út úr húsi, því það ætlaði aldrei að takast. Hallur hafði skroppið á undan í skólann og ég fór því ein með þau af stað. Fyrst var litla sett út að sofa og hún var óvenju lengi að sofa, og kom svo í ljós að hún hafði kúkað og því þurfti að fara inn með hana til að skipta á henni. Svo var ég að klæða mig og fá mér að borða og þegar ég ætlaði að drífa okkur út var Grímur sofnaður og slefandi í sófanum. Því þurfti ég að bera hann, fyrst á klósettið og svo út í vagn. Loks komumst við af stað með skiptitösku, nesti, pollagalla og ég veit ekki hvað.

Komumst svo á leiðarenda til Halls og hinna. Grímur svaf reyndar lengur en var vakinn í nýja flotta fílahúsinu. Það er alltaf jafn gaman fyrir krakkana að vera í dýragarðinum, þótt það hafi byrjað að rigna og stemmningin verið haustleg. Grími finnst voða gaman að vera með Ísaki og Ísabellu, og þau eru voða góð við hann, leiddu hann um og klöppuðu honum.

Hallur tók sig og rakvélina til í gær og rakaði hárið á Grími, fékk s.s. "kreppuklippingu". Fyrst þurfti að múta honum til að setjast í rakarastólinn með frostpinna. Svo varð rakvélin rafmagnslaus og Hallur mútaði honum með rúsínum. Aftur varð rakvélin rafmagnslaus og pollanum var mútað aftur með Hafra Fras, til að klára að snyrta hárið. Held reyndar að síðustu múturnar hafi ekki alveg verið nayðsynlegar. Núna er Grímur vel stuttklipptur og hefur elst um hálft ár. Ég set hérna mynd inn sem fyrst, vil ekki fara inn í herbergi núna að ná í myndavélina, þá vaknar litla alveg örugglega.

Við Grimur ætlum að baka kanilsnúða í dag, það var reyndar "Stóri bakstursdagur", að dönskum sið, í gær. Þá bökuðum við Grímur reyndar brauðbollur, hann er mjög áhugasamur. Hann var t.d. spældur í gærmorgun, þegar hann sá að ég hafði sett in í ofn, og hann hafði ekki fengið að hjálpa til. Ég er orðin ansi lunkin í að henda inn brauðdeigi í ísskáp að kvöldi til sem maður bakar svo morguninn eftir. Þetta er algjör snilld, maður hnoðar ekki neitt, hrærir bara saman og hendir inn í ísskáp, tekur 3 mínútur. Sýni ykkur kannski snúðana síðar, ef þið eruð heppin:)