15 nóvember 2007

Grímur heldur sig heima

Grímur minn er búinn að vera úr leik síðustu daga, með kvef, ælu og hita. Hann er búinn að vera í hitalaus síðan í fyrradag, en er enn voða slappur og kvefaður. Hallur var með hann heima á mánudag og ég í fyrradag og í gær. Svo var planið að hann færi á vöggustofuna í morgun en það var hætt við það og hann verður heima með skólastressaða pabba.

Við komum til Íslands, ég og Grímur þann 6. desember og ætlum að halda upp á afmælið hans um helgina. Maður verður að mæta til Íslands og hitta fjölskyldu og vini, þegar maður verður 2. ára (16. des).

Við bumbubúinn höfum það fínt, ég er farin að finna mjög vel hreyfingar, mest þegar ég er liggjandi. Sýni stundum Grími bumbuna og tala um að lítið barn sé þarna. Stundum strýkur hann bumbunni og kyssir og stundum tosar hann einfaldlega bolinn á mömmu niður aftur:) Ég keypti í haust mjög fallega bók eftir Astrid Lindgren, "Ég vil líka eignast systkin" - þar eignast Pétur litla systur og svo líka lítinn bróður. Við höfum lesið hana fyrir Grím og hann hefur gjarnan verið áhugasamur og strýkur litla barninu á myndinni. Grímur er auðvitað ekki alveg að meðtaka þessar systkinafréttir, að ég held, en það kemur örugglega þegar bumban stækkar og hann líka.

09 nóvember 2007

Stelpurófa á leiðinni


Þá er biðinni lokið og hægt er að segja frá því að við Hallur eigum von á lítilli frekjudós (eins og við grínumst með) þann 4.4. Fyrst að Grímur Logi svipar til pabba síns í persónueinkennum, stöðugur og frekar rólegur, þá reiknum við með að stelpa sem við eignumst verði ákveðin eins og mamma sín:)

Við vorum í aukasónar í morgun, til að fá að vita kynið. Litla rófan stríddi okkur ansi lengi, var með naflastrenginn á milli lappanna og hreyfði sig mjög mikið um. Það tók því ljósmóðurina frekar langan tíma að vera örugg með þetta, hún vildi auðvitað ekki segja neitt fyrr en hún væri viss. Svo óskaði hún okkur til hamingju með stelpu!

06 nóvember 2007

Eftir helgina



Við fjölskyldan höfðum það mjög gott um helgina, ég ætti nú reyndar að byrja á því að segja frá föstudeginum. Hef ekki verið að básúna það hér, en ég er sem sagt ólétt og við Hallur fórum í 18 vikna sónar á föstudaginn. Ég vonaðist að sjálfsögðu til í að allt væri í lagi hjá krílinu og svo langaði mig núna að fá að vita kynið. Við ákváðum að fá ekki að vita það með Grím. Alla vega, sónarinn gekk vel á Hvidovre spítalanum og allt leit vel út, sem betur fer. Ég spurði svo í lokin sónardömuna hvort hún gæti séð kynið og hún athugaði aðeins en sagði svo að hún gæti ekki séð það, eða gæti ekki verið viss þar sem að það væri með lærin klemmd saman. Hún var ekki til í að athuga aftur eða sjá hvort að krílið hreyfði sig eitthvað, þannig að það var örlítið pirrandi að fá ekki að vita hvort að blátt eða bleikt væri á leiðinni. Þetta er víst smá "issue" á sumum dönskum spítulum, var t.d. búin að lesa í bæklingi frá Hvidovre spítalanum að ekki væri alltaf hægt að vera viss um kynið og því gefi þeir það ekki upp.

Ég var ekkert að gefast upp og pantaði tíma á einkaklíník í annan sónar, sem við þurfum sjálf að borga. Dálítið klikkað, en ef maður vill vita þetta - þá vill maður virkilega vita þetta!

Ég er núna "sett" 4/4 (leiðinlegt hvernig þetta er orðað) og það er akkúrat óskadagsetningin mín. 04.04.08 er flottur fæðingardagur og svo 04.04 minn fæðingardagur (02.02) tvöfaldaður. Kannski segja þeir eitthvað annað í aukasónarnum og krílið ákveður sjálft hvenær það kemur, en þetta er alla vega flott dagsetning í bili.

Eins og ég sagði höfðum við fjölskyldan það huggulegt um helgina. Við fórum á laugardeginum til Agnesar og Kalla, vinapars okkar, í Solrød Strand. Þar borðuðum við kvöldmat og gistum. Grímur hafði það gott með Elmu Lind og Mána. Morguninn eftir var huggulegur morgunmatur og farið í sund í sundlaug sem er rétt hjá þeim. Þar var alger lúxus, um 38 gráðu heit barnalaug og venjuleg laug sem ég dýfði mér aðeins í . Á sunnudeginum vorum við svo í letistuði eftir að við komum heim.

Grímur er búinn að vera með kvef og hósta en fór aftur á vöggustofuna í morgun. Hann er orðin teiknimyndaóður eftir að hafa fengið að horfa á meiri teiknimyndir en venjulega í veikindunum. Biður um "Bubba, Latabæ, Lata-Bubba, Lala, Pó". Nú verður þetta trappað niður...
Honum finnst voða gaman að skoða myndir í tölvunni, t.d. af Ísabellu frænku sinni. Um daginn hafði ég sett tölvuna mína undir sófann og skildi svo ekki hvað hann var að baxa við að teygja sig undir sófa og segja "Ísabella". Þá vildi hann ná í tölvuna og skoða myndir af litlu frænku. Í gær prentuðum við út myndir af henni og þeim saman og hengdum upp í eldhúsinu, það fannst honum ansi sniðugt.

Hann er voða duglegur að tala og apar allt eftir manni, er virkilega gaman að fylgjast með því. Reynir líka við lengri og erfiðari orð og nýju orðin koma ansi fljótt. Þessi aldur sem hann er á núna finnst mér mjög skemmtilegur. Maður fær líka forsmekk á 2 ára aldrinum en það er nú skiljanlegt. Þessi grey hljóta að hafa skoðun á hlutunum.

23 október 2007

Ísabella heimsótt á Englandi

Posted by Picasa
Við Grímur komum heim í gærkvöldi eftir afar vel heppnaða ferð til London til Arngunnar systur og fjölskyldu. Mamma hafði komið 3 dögum áður og við Grímur bættumst við hópinn á laugardaginn. Við höfðum það virkilega gott saman með Arngunni, Alden og Ísabellu Joci. Barnið er að sjálfsögðu algert "draumabarn", eins og það er kallað, drekkur og sefur og vakar aðeins inn á milli. Ég get ekki sagt að hún sé lík Arngunni í útliti, sækir það frekar til pabba síns og hefur líka sinn eigin svip. Hún er bara yndisleg.

Á laugardeginum fórum við gæsamömmurnar í göngutúr í næsta garð/leikvöll. Þar var reynt að plata Grím í hin ýmsu leiktæki, en passlega stór rennibraut varð fyrir valinu hjá honum. Um kvöldið útbjó mamma humarveislu (að sjálfsögðu með humri og laxi frá Íslandi).
Á sunnudeginum fórum við í heljarinnar hádegismat til pabba hans Aldens, Peter og konunannar hans, Anna. Það var margrétta glæsilegt máltíð og ég gafst upp við að halda aftur af mér. Grímur skemmti sér við að skoða garðinn og henda laufblöðum í litla tjörn. Svo veiddi Alden handa honum pínulítinn eðluunga, sem fékk nafnið Billi og bættist við matarborðið sem gestur í skál. Grími þótti mjög spennandi að fylgjast með honum. Seinna kom Elísabet vinkona og snarlaði með okkur. Eftir 4 tíma langan hádegisverð héldum við heim ásamt Elísabetu. Mamma hafði ætlað að elda íslenskt lambalæri um kvöldið, en það var ákveðið að geyma það þangað til daginn eftir.

Á mánudeginum skrapp ég í smá verslunartúr í næsta nágrenni, Richmond. Röltaði þar um verslunargötuna og straujaði aðallega kortið í Baby Gap. Það var fínt að geta dólað sér aðeins ein, ekki oft sem að það gerist.

Eftir frábært lambalæri og meðlæti skutlaði Alden okkur Grími út á Heathrow flugvöll. Flugið gekk mjög vel. Grímur var orðin svo félagslyndur eftir helgina og nýbúinn að kveðja fólk, þannig að hann veifaði fólki eins og hann væri Hollywood stjarna þegar við löbbuðum inn í flugvélina. Svo á meðan fluginu stóð veifaði hann af og til Dönunum í næstu sætum og lítilli stelpu hinum megin við ganginn.

Ég var mjög fegin að koma heim seint í gærkvöldi, það er alltaf gott að koma heim til sín.

Er búin að setja myndir frá því um helgina á Flickr.

17 október 2007

Grímur orðinn 22 mánaða

Posted by Picasa


Grímur Logi varð 22 mánaða í gær. Hér eru nokkrar myndir af honum í baði áðan, fyrsta freyðibaðinu. Honum fannst það ansi sniðugt og fannst gaman að uppgötva freyðikúlurnar. Svo rétti hann úr fótleggnum upp úr baðinu, þannig að það minnti á rakvélaauglýsingu fyrir konur, sérlega lekker. Eins og sést á einni mynd, er hann marinn á enninu, hann datt á sama stað 2 daga í röð á vöggustofunni.

Pabbi hans sótti hann í dag á vöggustofunni og varð ansi brugðið. Hann kom inn í herbergið og ætlaði að spyrja fóstruna hvar Grímur væri. Honum datt ekki í hug að litla "stelpan" sem hann sá í bakið á, væri sonur hans, þar sem hann var klæddur í bleika síðsvuntu með ermum og hvítum blúndum. Svo snéri Grímur sér við og Hallur fékk karlmennskuáfall. Grími fannst þetta voða sniðugt og baksaði við svuntuna. Það er gaman að vita að það er jafnrétti á vöggustofunni:)

Dúna systir Halls, átti afmæli í gær - til hamingju með afmælið Dúna.
Svo átti Heiðrún, systir hans Halls afmæli 10. okt., - til hamingju með afmælið Heiðrún.

16 október 2007

Ísabella Joci




Hér eru tvær myndir af litlu frænku. Ég stelst til að skrifa "Ísabella" og ekki "Isabella", á enska vísu. Arngunnur og Alden eiga eftir að setja upp myndasíðu, en við erum búin að fá 3 sendingar með myndum, það er svo yndislegt að sjá þær. Maður verður að stytta sér stundir þangað til við förum til þeirra á laugardaginn. Ég sá þær mæðgur líka á Skype á sunnudaginn og Ísabella, var voða róleg og vær.




14 október 2007

Helgin

Þá er helgin nær búin. Við fjölskyldan erum búin að sýsla ýmislegt saman um helgina. Á föstudagskvöldið söng ég með gospelkórnum mínum á menningarnótt, í Illum. Við byrjuðum á því að hefja raust okkar úti á Striki og færðum okkur inn. Marseruðum upp á fjórðu hæð og sungum þar fyrir áhorfendur á öllum hæðum. Eftir þó nokkur lið, skiptum við okkur í hópa og sungum á ferðinni 2 lög til viðbótar.

Í gær laugardag, fórum við í Tívolíið með nágrönnum okkar, Atla, Svönu og Skarphéðni. Tívolíið er núna opið í rúma viku, þegar haustfrí er í skólum og er skreytt virkilega flott í Hrekkjavökustíl, með ótal graskerum o.fl. Þar röltuðum við um og strákarnir skemmtu sér í nokkrum tækjum og svo borðuðum við á Wagamama. Tókum svo einn hring áður en við tókum strætóinn heim.

Í dag höfum við tekið því rólega, fórum í bakarísferð í morgun og Grímur svaf úti í vagni. Seinni partinn fórum við Grímur í gönguferð, hann í nýjum Molo kuldagalla, sem var reyndar keyptur á útsölu í janúar. Maður er svo séður stundum. Gallinn er nokkuð stór en við gerum ekki neitt vesen úr því. Við Grímur tókum rölt í næstum götu, en komumst ekki langt, Grímur eltist við vingjarnlegan kött og óð í gegnum laufblaðshrúgu. Hittum svo á Skarphéðin og Jódísi nágrannabörn ásamt foreldrum sínum og kjöftuðum við þau, ásamt fleiri nágranna úti í garði.

Þá er ný vinnuvika framundan, það verður talið niður í laugardag, þegar við förum að heimsækja Ísabellu frænku í London á laugardaginn. Við sáum hana einmitt á Skype-inu áðan, var ósköp róleg og auðvitað voða sæt.


10 október 2007

Arngunnur systir búin að eiga

Arngunnur systir átti í dag glæsilega stelpu! Ég er orðin móðursystir:) Ég er ekki búin að tala við hana, en hún var víst 3,5 kg og í lengra lagi. Fæðingin gekk mjög vel. Ég heyrði í Arngunni í gærkvöldi og þá var þetta allt byrjað. Fékk svo svar við sms-i í morgun að væri styttra á milli hríða, hefði ekkert sofið og mikið verið í baði. Þannig að þetta var greinilega allt að koma. Svo heyrði ég ekkert í henni eftir það. Við mamma og fleiri biðum í ofvæni eftir að heyra fréttir frá London, ferlegt að vera svona langt í burtu. En nú er litla prinsessan komin og við erum öll ofsalega ánægð.

P.S. Búin að setja nýjar myndir á flickr.

04 október 2007

Grjónagrautur og strákabusl

Í gærkvöldi buðum við nágrönnum okkar, Atla, Svönu og strákinum þeirra Skarphéðni Árna í grjónagraut. Grjónagrautur er orðinn einn af "klassíkerunum" á heimili, með hjálp uppskriftar í Nönnubiblíunni, sem ég man ekki hvað heitir. Ég bæti samt við mínu auka, set heila kardimommubelgi og sítrónuskræl út í. Grímur er ofsa hrifinn af grjónagrauti, hann borðaði 3 skálar og leit ekki við brauði með kæfu, sem er venjulega vinsælt. Sagði svo "ummm" um leið og hann borðaði:)

Eftir matinn fóru þeir strákarnir í bað og það var mikið fjör. Þeir skemmtu sér mjög vel saman og "bonduðu" mjög vel, voru stöðugt að kíkja á hvað hinn væri að gera, var mjög gaman að fylgjast með. Þeir kepptust við að hella úr málum og yfir sjálfa sig. Svo tóku þeir létt orkukast þegar þeir voru búnir í baðinu, var eins að sleppa beljunum út á vorin, þegar þeir hlupu út af baðherberginu. Bæti við myndum af þeim hér, sem fyrst.

Þessi mamma var svo þreytt þegar hún var svo búin að svæfa litla gutta, að hún fór bara að sofa sjálf fljótlega á eftir. Var komin upp í rúm kl. 9:30, hvorki meira né minna. Ætlaði að mæta snemma í vinnuna í morgun, sem tókst nokkurn vegin. Ég fer svo að sækja Grím á vöggustofuna seinni partinn, nokkuð sem Hallur er eiginlega alveg búinn að sinna, síðan ég byrjaði að vinna. Hallur hjólaði með Grím í morgun, þannig að það er ekki kerra til ráðstöfunar. Síðast fengum við okkur ágætis göngutúr á strætóstöðina. Stöðin er ekki svo langt frá vöggustofunni, en það tók okkur um korter að labba:) Ég passaði mig að stressa mig ekki og hugsaði með mér að væri hollt fyrir Grím að fá hreyfingu. Enda var hann duglegur að labba og leiddi mig á meðan, maður er nú með hámarkshraða í lægra lagi þegar maður er tæplega 2 ára.

03 október 2007

Kór,fiskur og vetrarfatnaður

Ég veit ekki hvenær þið voruð síðast á þeim aldri þar sem farið var í kórferðalag, en ég fór alla vega í kórferðalag síðustu helgi, með kórnum mínum, Sound of Gospel. Við héldum í sumarbúðir KFUM í Jægerspris sem er á norður-Sjálandi. Þar vorum við frá föstudagseftirmiðdegi fram til sunnudags. Það var ýmislegt gert, borðað góðan mat og skemmt sér, sungið og talað um framtíðarplön kórsins. Á laugardeginum var hægt að velja um sólóista"session", stomp-tíma eða andardráttar"session". Um kvöldið var kokteill, heljarinnar matur og grímupartý. Þetta var allt saman mjög fínt, dálítið krefjandi að vera með 60 fólki sem maður þekkir ekki og að skilja dönsku í dúndrandi tónlist.

Fjölskyldulífið gengur annars sinn gang. Grímur virðist vera ánægður á vöggustofunni, að minnsta kosti var hann að kríta úti í gær, þegar Hallur kom að sækja hann og vildi helst ekki fara heim.

Á mánudaginn var elduð íslensk ýsa sem við keyptum hérna úti. Maður er alltaf að reyna að auka fiskneyslu. Grími fannst það reyndar ekki sérlega sniðugt, borðaði smá hrísgrjón sem búið var að lauma í smá fiski, en lét restina vera. Það verður áskorun fyrir móðurina að fá hann til að borða fisk. Ég man sjálf eftir því að vera ekki hrifin af fiski sem krakki og þegar foreldrarnir útbjuggu klassísku samsetninguna með ýsu, stöppuðum kartöflum og fullt af tómatssósu. Og svo kúgaðist maður jafnvel af fiskinum, þegar verst lét.

Annað sem Grímur er ekki hrifinn af, er að fara í nýja skó. Ég er nýbúin að kaupa hanna flotta kuldaskó. Hann gólaði í búðinni þegar hann þurfti að máta þau. Nú er ég búin að spreyja þá og sýna honum, en þarf að plana aðlögunartíma, he, he. Læt reyna á það í dag þegar hann kemur heim. Er alveg bókað að það þarf að berjast við hann, er ansi skrautlegt. Var svipað, en ekki eins slæmt, þegar hann átti að fara í nýja vetraranorakkinn sinn um daginn, drengurinn er ekki hrifinn af svona breytingum.

Þegar maður er í Danmörku og er ekki með bíl, er mjög sniðugt að kaupa svona hluti á netinu. Var bæði búin að fara ferðir til að finna skó og úlpu sem tókust ekki og endaði á því að kaupa þetta á netinu, maður nennir ekki að eyða frítíma sínum í fýluferðir.

Þetta er s.s. hversdags"snakkið" mitt - heyrumst síðar.

20 september 2007

Komin í gang

Nú er fimmti vinnudagur eftir Íslandsferð og veikindi, og ég er komin af stað í þessu venjulega lífi. Ég fór á kóræfingu á þriðjudagskvöldið - ég er nýbyrjuð í gospelkór sem heitir Sound of Gospel
og það er virkilega spennandi, mér líst ofsalega vel á hann. Ég fór í inntökuprufu í ágúst og fór á eina æfingu áður en við fórum til Íslands. Ég missti því miður af 2 æfingum, einni þegar ég var á Íslandi og einni eftir að ég kom heim. Vegna þessa verð ég ekki með á tónleikum í kvöld, því miður, en ég ætla samt að fara á þá og hlakka til.

Í gær kom ég heim og eftir hvíld í sófanum, dúlluðum við Grímur okkur saman. Hann fór í langt bað, sem honum þykir voða gaman. Svo fékk hann að sulla við eldhúsvaskinn, ég lét renna úr krananum og hann fékk mál og skál til að hella í og úr... þetta biður hann stundum um : "hella!". Ég vaktaði hann á meðan ég fékk mér að borða.

Svo var háttað og við lásum Einar Áskel - Flýttu þér - hann fylgdist vel með, las næstum því allan textann. Hann var ekki alveg til í Einar Áskel fyrir mánuði, hafði ekki þolinmæði að hlusta á, eða fannst hann ekki nógu spennandi. Nú var hann alveg til og mér fannst það frábært, keypti 2 bækur á Íslandi meira fyrir mig, held ég. Svo tók ansi langan tíma að sofna, hann var ekki með vesen en lá í rúminu og blaðraði þessi ósköp við sjálfan sig. Mér fannst eins og það væri svo mikið að gerast í heilanum í honum og hann er sífellt að læra ný orð - það var eins og hann væri að spóla í gegnum alls kyns orðaforða og náði ekki að slökkva á heilastarfseminni. Allt í einu heyrðist "api, ú, ú", höfum verið að apa eftir apahljóðum á heimilinu. Svo var hann að tala um mömmu og pabba og ýmislegt fleira. Tókst svo loksins að sofna og ég horfði á Heroes í sjónvarpinu.

16 september 2007

Grímur litli töffari



Posted by Picasa

Grímur Logi 21 mánaða í dag

Tíminn flýgur og bráðum verður litli drengurinn ekki eins lítill, þegar hann verður 2 ára í desember. Það er voða gaman að fylgjast með honum þroskast og segja og gera sniðuga hluti. Eins og til dæmis að babla heil ósköp og skammast og bendir með vísifingur með útstrekktan handlegg og hættir svo og segir "knús" og labbar til mann og knúsar mann. Eða þegar hann situr með bók og blaðar í henni og talar heil ósköp við sjálfan sig og bendir á allar blaðsíðurnar. Og þegar hann er byrjaður núna að vera meira til í að labba með okkur úti við, bara heldur í höndina á manni og labbar með, það finnst manni sniðugt.

Á morgun sný ég loks aftur til vinnu, verður fínt að fást aftur við hversdagsleikann.

Í gær fórum við Grímur í Frederiksberg bæjarrúnt saman, reyndum að finna úlpu á Grím en það gekk ekki og dönsku búðirnar eru ekki með opnunartíma sem nær langt fram á dag. Svo í dag fórum við í bæjarrúnt saman fjölskyldan niður í bæ, á Strikinu og í nágrenni. Grími fannst örugglega mikið að sjá, því að hann sleppti alveg blundinum sínum og dugði alveg til rúmlega 8 áður en hann sofnaði.

14 september 2007

Snýtandi grænu

Aðalfréttirnar eru af húsmóðurinni, (finnst mér), ég fékk andstyggðarpest þegar ég var á Íslandi og er enn að jafna mig. Við Grímur fórum saman til Íslands 3. september, og flugferðin gekk vel, Grímur var algjör stjarna. 2 dögum seinna fór ég að finna fyrir kvefi og varð svo drulluslöpp, en fór nú í vinnuna, í kynningu fyrir nýja starfsmenn, maður var nú einu sinni mættur til landsins sérstaklega fyrir þetta. Svo versnaði bara heilsan og maður var að mæta í vinnuna og að þeytast hingað og þangað til að hitta elsku fjölskylduna.

Hallur kom svo á fimmtudagskvöldið og fór upp á Skaga. Þar var Grímur búinn að vera frá þriðjudeginum, þá var hann með Gunnu ömmu. Svo kom Hanna amma og fór með hann upp á Skaga.

Á laugardagin fórum við í hádegismat hjá Sigga tengdó og Hrefnu og um kvöldið í fertugsafmæli hjá Heiðu frænku hans Halls. Á sunnudeginum var svo 2 ára afmælisveisla hjá Rakeli Mirru frænku, kíktum svo til pabba og enduðum í mat hjá mömmu. Sem sagt nóg á dagskránni! Ég skreið bara upp í rúm hjá mömmu eftir mat.

Komu svo heim á mánudagskvöldið og ég er búin að vera veik heima síðan, ótrúlegt en satt. Snýti mér svo mikið að snýtupappírinn hlaðast upp í kringum mig og hef varla fundið bragð síðan á sunnudaginn, í 6 daga! Arg! Bíð eftir að hakka í mig Nissa súkkulaðinu og maltinu sem ég keypti í fríhöfninni. Var að fá penisillín resept hjá heimilislækninum áðan, sjáum hvort að það hjálpar ekki.

Alla vega, heilsan hlýtur að fara að koma, lífið gæti nú verið verra, það er bara svo freistandi að vorkenna sér. Grímur Logi er hress og það hefur gengið vel í vöggustofunni, eftir að við komum heim. Hallur er byrjaður í skólanum og líkar vel.

Hafið það gott um helgina og verið góð við hvort annað.

02 september 2007

Grímur sofnaði sjálfur!

Það gerðist merkilegur atburður hér áðan - s.s. að Grímur Logi sofnaði alveg sjálfur fyrir nóttina - án þess að ég væri inni hjá honum. Við vorum búin að lesa saman og hlusta á spiladósina og syngja og svo var kysst góða nótt - og ég gerði eins og við erum búin að vera að gera,segjum honum að við ætlum fram og komum aftur. Byrjaði á 30 sekúndum og erum svo búin að vera auka smá tímann. Núna áðan lagðist hann bara niður og var hinn rólegasti, alveg eins og í gærkvöldi, (stóð ekkert upp) þannig að ég beið aðeins með að fara inn aftur ... og svo sofnaði hann bara!

Ekki það að mér finnist ekki gott að vera með elskunni minni, en getur verið auðveldara fyrir þreytta mömmu að vera ekki inni í hálftíma eða meira að svæfa.

Svo erum við að fara til Íslands á morgun, og þá fer allt í rugl! :)

Við til Íslands, 3. september

Við Grímur skellum okkur til Íslands á morgun og Hallur kemur á fimmtudaginn, 6. sept. Upphaflega ætluðum við öll að fara saman 6. september til að fara í 2 ára afmæli hjá Mirru frænku og fertugsafmæli hjá Heiðu frænku - en svo fékk mín vinnu og ég verð í þjálfun hjá fyrirtækinu - sem heitir Betware - núna þriðjudag til föstudag.

Er núna að hafa okkur til og taka til í íbúðinni - lendi vonandi ekki í megastressi eins og síðast þegar ég fann ekki vegabréfið hans Gríms, af því að einhver færði það til. Ég var gráti næst komin kl 1 um nóttina, en sem betur fer fannst það. Er búin að setja föt á Grím ofan í tösku og eftir að græja mig og annað óendanlegt dót sem mér fylgir, svo sem myndavél og slíkt.

Er búin að setja nýjar myndir inn á flickr og er að bæta fleirum inn.

Ef einhvern langar að hitta okkur þá verðum við á Íslandi til 10. sept.

18 maí 2007

Myndir komnar

Þá er ég loks búin að setja inn myndir, þær eru frá apríl og ná til gærdagsins.

Við Grímur vorum heima í dag og tókum því rólega. Lékum okkur saman eftir að hafragrauturinn var borðaður (og Grímur endaði máltíðina á að setja restina af grautinum á hárið,nammigott). Við stöfluðum turna með kössum, sendum lest á milli okkar og Grímur brunaði um á maríhænunni sinni. Það var grátt úti og rigning og Grímur er kvefaður, þannig að við fórum ekki mikið út. Við kíktum til nágranna okkar á jarðhæðinni í kaffi og svo klæddi ég Grím í pollagallann og hann fékk að busla aðeins í pollunum úti í garði. Við stoppuðum þó stutt við því það byrjaði að rigna og hendurnar á litla gaurnum orðnar kaldar. Svo eldaði húsmóðirinn hakk og spagettí, sem var nammigott, alla vega borðaði Grímur af bestu lyst.

Svo var maraþon bað/sturta hjá okkur Grími, alveg örugglega í 40 mínútur, þetta finnst Grími æði. Hann er mjög nægjusamur, þrátt fyrir ýmis baðleikföng finnst honum venjulega mest spennandi að vera með þvottapoka. Hann dundaði sér við hitt og þetta, í lokin uppgötvaði hann að það var mjög sniðugt að standa upp og láta sig svo detta ofan í balann með látum. Eftir þetta vorum við vel gufuð og heit og góð - ekki var þó nostrið búið, því Grímur fékk olíunudd á skiptiborðinu. Honum fannst það bara fínt, ég næ ekki að dúlla eins mikið og þegar hann var minni, núna þarf að vera meira stuð, hann fær smá dót til að skoða og það eru taldar tásur og svo finnst honum gott, alveg eins og hann var lítill þegar að handleggir og fótleggir eru hristir (mátulega hressilega að sjálfsögðu).


Eftir þetta töluðum við við Arngunni systur og ömmu Hönnu, sem var hér í heimsókn síðustu helgi.

Þetta var s.s. dagur hjá okkur ... vonandi hafið þið átt góðan frídag.

16 maí 2007

Stórfréttir!

Þar kom að því að fengin var utanaðkomandi “dönsk” pössun fyrir Grím.

Grímur er kominn með all nokkuð kvef og við Hildigunnur vorum svo “upptekin” í dag að við áttum erfitt með að vera heima. Við höfðum því samband við “pössunarþjónustu” í gærkvöldi og fengum svo hana Britta í heimsókn 7:40 í morgun. Hildigunnur var með þeim til kl. 9:30 en eftir það dúlluð Grímur og Britta gamla sér hér heima, þar til ég kom heim seinnipartinn. Þetta virðist hafa gengið ótrúlega vel, a.m.k. kvartaði hvorugt þeirra. Hér hafa því orðið ákveðin vatnaskil og við Hildigunnur eigum sannanlega eftir að bjalla í hana Brette aftur og bjóða henni upp á þau forréttindi að passa Logálfinn okkar aftur.

Þess má að lokum geta að Grímur Logi er 17 mánaða í dag! Til hamingju elsku kúturinn.

09 maí 2007

Lofa myndum eftir helgi

Gódan og blessadan daginn,ég er nýmætt í skólann - tíminn byrjar eftir 50 mín, ég er bara svo idin og kem og æfi mig ádur,he,he.
Ad venju er allt á fullu, tharf helst ad fá samthykkt lag í dag til ad syngja á tónleikum 20. maí, lagid eda søngurinn, verdur nefnilega ad vera samthykktur med viku fyrirvara eda meira.
Svo er smá tiltekt fyrir komu Skagamafíunnar á morgun og í kvøld verdur pakkad í ferdatøsku fyrir Parísarferd - Á MORGUN! Ja hérna mía. Vid erum ad fara 4 stelpur ad heimsækja Auju vinkonu í París, já, thú heyrdir rétt - thetta er STELPUFERD.

Er búin ad vera á leidinni í mánud ad setja inn myndir, en sé fram á ad ná thví í kvøld, thannig ad ég lofa theim eftir helgi.

Gledilega Eurovision og kosningahelgi

04 maí 2007

Stjarnan mín og ...

Verð bara að koma að því orðum að Hildigunnur var hreint og beint frábær á tónleikunum í gær, kom sá og sigraði!!! Aðra eins dynjandi sveiflu og rithma hafa Kaupmannahafnabúar og nærsveitungar ekki orðið vitni að.

Hildigunnur hafði, eins og áður segir, með sér á sviðið þrjár útvaldar og upprennandi danskar sönggyðjur sem með eggjandi og fjaðurmagnaðri sviðsframkomu studdu við stjörnu kvöldsins. Henni tókst á eftirminnlegan hátt að bræða saman í listrænum gjörningi seiðandi kyngimagn söngsins og lokkandi og lífsörvandi líkamstjáningu. Allt rann þetta saman í andlegan “elexír” sem ölvaði áheyrendur lengi á eftir.

Þetta var dýrlegt.

E.S.
Ég geri mér enga grein fyrir hvað hún Hildigunnur er að fara með tali um ýkjur. Allt sem ég skrifa hér samræmist kristilegu uppeldi mínu og því hvernig ég upplifi aðstæður á hverjum tíma.

03 maí 2007

Uppfíruð eftir kvöldið

Og gerum enn betur:)
Við Hallur erum tiltölulega nýkomin heim eftir vel heppnaða tónleika á vegum skólans míns, á stað niðri í bæ. Þar söng ég skemmtilegt Arethu Franklín lag, ekta soul/fönk. Það var hljómsveit sem að hélt uppi kvöldinu og svo voru 3 stelpur sem sungu bakraddir með mér. Þetta var virkilega gaman og fólk var bara ánægt með mig. Var í allt öðrum gír en síðast, þegar söng rólegt lag, meira hægt að kýla á það og það er bara stuð. Mig langaði bara að syngja meira þegar ég var búin!

Grímur var á meðan hjá Skarphéðni Árna, vini sínum, þeir voru víst mjög góðir saman. Þeir léku sér líka saman á "mótor"hjólum í garðinum fyrr í dag.
Mér leist ekkert á þessi "svefnskrif" hjá Halli, að ég minnist nú ekki á, að ég kem ekki sérlega vel úr þeim:) Ég bið ykur að hafa í huga að Hallur tekur smá skáldasveiflur - ég er ekki að segja að hann segi rangt frá en aðeins ýkt í anda Halls. Það er nú ekki eins og stjörnuprinsinn á heimilinu sé að vakna allar nætur og þjáist hér á heimilinu, jedúddamía!

Best að koma sér í háttinn, nú er spennufall og þreyta að hellast yfir mann.

02 maí 2007

Komum sífellt á óvart!

Ha, ha, þessu áttuð þið ekki von á. Blogg með aðeins tveggja daga millibili!

Við Grímur vorum heima 1. maí þar sem leikskólinn var lokaður. Við höfðum það voða gott feðgarnir og ræddum mikið málin. Vorum að sjálfsögðu úti í sólinni sem hefur leikið við okkur undanfarna daga.

Ekki var nóttin síður skemmtileg, Grímur á það til að vakna einhvertíma á bilinu 3 til 5 á nóttunni og þar sem mamma hans hefur sett þá reglu að taka hann ekki upp í rúm fer annað okkar inn til hans og reynir að sannfæra hann um að fara aftur að sofa. Það veður þó að segjast að af einhverjum ástæðum á ég alltaf þessar næturvaktir. En yfirleitt geng ég til þessara verka minna með bros á vör… og það hefur verið góð ástæða fyrir því.

Fyrir nokkrum vikum ákvað ég að taka húsbóndastólinn úr stofunni og frá sjónvarpsskerminum og setja inn í herbergi til Gríms, svo ég hefði amk þægilegan stól til að sitja á. Þetta var nokkuð táknrænn atburður og ég er hræddur um að hann hafi ekki hjálpað mér mikið í valdatafli heimilisins – það er önnur saga.

Eftir að ég kom stólnum fyrir hef ég nýtt þessar stundir til að lesa hinu frábæru bók “Ævintýri góða dátans Sveijks”. Ég hef því setið, flestar undanfarnar nætur, frá hálftíma og upp í tíma við rúmið hjá Grími mínum og skemmt mér konunglega við lesturinn. Grímur gerir engar athugasemdir við þetta svo fremi sem pabbi hans reynir ekki að laumast aftur upp í rúm áður en honum tekst að sofna aftur (af einhverjum ástæðum getur það tekið þó nokkurn tíma).

Nú er ég hins vegar í smá klemmu því þó bókin sé nærri 500 blaðsíður þá vaknar Grímur flestar nætur, svo ég hef verið nokkuð röskur með bókina og nú er hún búin. Þegar Grímur vaknaði í nótt gat ég því ekki gripið í hann Sveijk minn og bókin sem ég er byrjaður að lesa núna er ekki beinlínis nætur lesning, heitir “Vidensfilosofi”. Það var því úr vöndu að ráða þegar minn maður hóf um raust sína í nótt og krafðist þess að pabbi kæmi og klappaði honum.

Þá fékk ég vitrun… í síðustu viku hafði ég vaknað til hans en verið of þreyttur til að lesa og tók því með mér sængina og lagðist á bert gólfið við hliðina á rúminu. Ég get ekki sagt að það hafi farið sérstaklega vel um mig, en ég sofnaði þó í smá stund og Grímur gerði engar athugasemdir. Í nótt datt mér hins vegar það snilldar ráð í hug að taka stóru “tungu” pulluna úr sófanum og leggja hana við hliðina á rúmin. Pullan er að vísu ekki nema ca. 140 cm og ég 190 cm, en hvað um það. Ég steinsofnaði og lá þarna eins og rotaður selur til kl. 8 í morgun! Takið eftir því 8!!! Það hefur varla gerst. Grímur var auðvitað löngu vaknaður en fyrst hann hafði pabba sinn þarna við hliðina á rúminu sá hann enga ástæðu til að vera með nein læti og rabbaði til skiptis við bangsann sinn og hrjótandi pabba sinn.

Jæja, látum þetta duga í bili. Sjáum hvort það líður jafn stuttur tími þar til við skrifum næst :)

30 apríl 2007

Jú, það er lífsmark með okkur!

Undanfarnir dagar hafa verið í nokkuð föstum skorðum hjá okkur. Hildigunnur er enn í söngskólanum og nú er ég í miðjum verkefnaskilum og eftir tvær vikur taka prófin við. Grímur er í góðu stuði, þó að vísu sé búið að hanga í honum kvef í nokkurn tíma. Nú er orðaforðinn að aukast hratt þessa dagan og hann er er voða áhugasamur um að herma eftir því sem hann heyrir. Orð sem hafa verið að heyrast frá honum undanfarið eru t.d. ”amma”, ”húrra”, ”jæja”, ”húfa”, ”skór”, ”bæ,bæ”, ”hæ”. En uppáhaldsorðið er að sjálfsögðu ”nei” sem hann notar óspart og við öll möguleg tækifæri og skemmtilegst finnst honum ef að maður segir ”jú” á móti. Þá æsist leikurinn!

Annars verða næstu vikur viðburðaríkar. Fyrir utan próf og verkefni hjá mér að þá fer Hildigunnur til Parísar 10. maí og sama dag kemur stór hluti ”skaga-mafíunnar” í góða veðrið. Heiða frænka verður fertug, svo það verður öllu tjaldað.
Að lokum vil ég benda á að Siggi bróðir er í 2. sæti NV fyrir Íslandshreyfinguna svo það einfaldar mjög fyrir fólki hvað það á að kjósa. Jafnvel þó þú lesandi góður sért ekki í NV kjördæmi, ekki örvænta, þú getur samt sem áðurlagt þitt lóð á vogaskálarnar: ”stradegían” er að fá einn kjördæmakjörinn, ekki aðalmálið hvar, því þá bætist við uppbótarþingmaður. Þá eru líkurnar orðnar ágætar á því að Siggi minn verði varaþingmaður og að sjálfsögðu verður hann talsmaður stórbróður í öllum málum... X við Íslandshreyfinguna :)

04 apríl 2007

Páskafrí og heimsókn á leiðinni

Þá er komið páskafrí og mikið er það huggulegt. Það er búið að vera rosa mikið að gera í skólanum með ansi þétta dagskrá. Í síðustu viku var "kaos" vika í skólanum, vorum að semja lög og gera ýmislegt sniðugt og vikan var enduð með tónleikum í skólanum þar sem fluttum lögin okkar og fleiri í skólanum sungu líka.

Grímur kallinn varð því miður veikur á sunnudeginum,fékk hita. Er nýbúinn að vera veikur,var heima 3 daga í síðustu viku. Hann var hitalaus í dag, sem er eins gott, því að Skagamafían kemur til borgarinnar á morgun: Hanna mamma hans Halls, Sturri "afi Skafís", Dúna systir Halls, Sólveig systir Halls, Njalli maðurinn hennar og Rakel Mirra, sólskingeislinn þeirra sem er 3 mánuðum eldri en Grímur. Stuð og gaman - það er mikið hlakkað til bæði á klakanum og hér á Friðriksfjalli. Hugsa að amman neiti að sleppa litla manninum okkar þegar kemur að brottför.

Hafið það gott um páskana og borðið nógu mikið og farið kannski í göngutúr, inni á milli.

10 mars 2007

Er komið vor?

Sit hér einn í augnablikinu og bíð í eftirvæntingu eftir að mín heitt elskaða komi heim. Henni var boðið í gleðskap með krökkunum sem eru með henni í söngskólanum, svo það er vonandi feitt stuð sem eins gott er að nýta sér. Við höfum annars ekki farið í of mörg teiti undanfarna mánuði hvað þá að við höfum sótt í slíkt. Fyrir því er m.a. sú ástæða að við höfum ekki haft okkur í að finna kvöld-barnapössun. En nú verðum við að fara að koma því á “to-do” listann, svo við komum a.m.k. í bíó svona stöku sinnum. Ég skrifa þetta hins vegar án allrar eftirsjá, þörfin fyrir að skell okkur í bíó o.þ.h. hefur einfaldlega ekki verið sterkari. Ég trúi ekki öðru en að fátt sé auðveldara en að útvega barnapössun ef viljinn er fyrir hendi (skilst að vísu að hún sé frekar dýr eftir að ofurskattar og streituálag hefur verið reiknað inn).... en þetta er orðið ágætt. Best að láta þetta verða verkefni vikunnar.

Annars kláraði ég stórt próf sl. mánudag, það gekk alveg ágætlega og nú get ég loks einbeitt mér að hinu raunverulega meistaranámi. Þetta var því nokkuð stór áfangi fannst mér. Ég hef leyft mér að taka það nokkuð rólega þessa vikuna þrátt fyrir að nýju áfangarnir séu byrjaðir og ég þurfi að lesa þá upp að einhverju leiti. Mér veitt hreinlega ekki af smá andrými áður en ég sting mér á bólakaf í næstu lotu. Við Grímur höfum því verið mikið saman í vikunni, enda verið mikið að gera hjá Hildigunni í söngnáminu. Þar á ofan tók hún dönskupróf sem hún rúllaði upp tilþrifum eins og við var að búast, enda mesta séní norðan Alapafjalla, eins og allir vita sem til þekkja.

Nú held ég að vorið sé komið í Kaupmannahöfn. Við notuðum daginn og fórum í Frederiksberghave (almenningsgarður). Þar var vorstemning, fullt af fólki, nokkrar blómategundir sprungnar út, íkornarnir komnir af stað og endurnar í galsafullar í pörunarhug. Grímur stóð á öndinni (nánst í orðsins fyllstu) og var agndofa yfir öndunum og gæsunum. Góður andi og góður dagur.

26 febrúar 2007

Mánudagurinn gekk vel

Úff,þá er dagur að kvöldi komin. Það gekk vel að syngja í dag í skólanum, eins og ég var nú búin að kvíða því. Var fyrst að syngja og náði að vinna meira í laginu, með hjálp Claes kennara, höfum nokkra kennara, sem eru allir virkilega fínir. Lagði mig alla í sönginn og var ánægð með hvað gekk betur með lagið en í síðustu viku. Svo sungu allir hinir og ég aðeins aftur...

Klukkan hálf fimm dreif ég mig í lestina og fór í dönskuprófið kl. hálf sex, það var heldur léttara en átti von á, alla vega aðeins að mér fannst. Var fegin kl. 9 þegar var búin með hlustunar-, les- og skriflega hluta. Fer svo í munnlegan hluta í næstu viku.

Sit núna og fylgist með samantekt frá Óskarsverðlaununum.
Grímur er því miður orðin slappur með nokkrar kommur og gröft í augunum, greyið kallinn. Lítur út fyrir að ég verði heima á morgun, æi, auðvitað vil ég vera heima með litla slappa manninn, en mig langar líka í skólann. Svona er að vera ekki með 'netverkið' sitt, ömmur og afa, frændur og frænkur...
Vonandi hafið þið það gott og verið góð við hvort annað.

25 febrúar 2007

Roastbeef á sunnudegi



Þá er sunnudagur senn á enda. Eins og titillinn gefur til kynna snæddum við fjölskyldan roastbeef í kvöldmat með "tilbehør" eins og maður segir á dönskunni : steiktum kartöflum,grænmeti,súrum gúrkum o.fl., nammi gott...oh ég er svo flínk,he,he...

Búin að vera fín helgi - í gær kíktum við Grímur út í snjóinn og fórum svo í kaffi til Viðars og Láru nágranna. Í dag var tekið til og lært aðeins og reynt að syngja aðeins,þótt að ekki hafi verið mikill tími aflögu fyrir það. Svo er frekar erfitt að vera að æfa sig á kvöldin eftir að Grímur er sofnaður, með píanóið fyrir utan herbergið hans. Maður þarf kannski að venja hann á það, að vera gólandi fyrir utan herbergið á kvöldin :)

Á morgun verður langur dagur, það er í Masterclass í söngskólanum frá 10 til 5, þar sem allir syngja með undirleik. Ætla að reyna aftur við lag sem gekk ekki alveg nógu vel með í síðustu viku. Svo mæti ég í dönskupróf kl. 17:30 sem er í ca 3 og hálfan tíma. Ég sagði að þetta yrði langur dagur! Því er best að fara í rúmið.

14 febrúar 2007

Upprisan

Við Grímur er nú að rísa úr rekkju eftir uppgang og niðurgang. Það kannski heldur mikið sagt þar sem við vorum ekki rúmfastir a.m.k. ekki litli pungurinn. Ég er hræddur um að hann hafi smitað mig um helgina með þeim afleiðingum að ég ældi hraustlega 4 sinnum á sunnudagskvöldið og er svona u.þ.b. að komast í stand núna. Enda eins gott þar sem það er próf á næsta leiti. Grímur aftur á móti ældi "aðeins" tvisvar, er búinn að vera með djéskoti hressilegan niðurgang undanfarna daga. Við sendum hann á leikskólann í dag í þeirri trú að það væri komin nægjanleg þétting í affallið hjá piltinum. Fóstrurnar voru hins vegar ekki alveg á því og létu þau skilaboð fylgja þegar Hildigunnur sótti hann að hann skyldi vera lengur heima... jæja, þá verður svo að vera. Hins vegar hefur hraustmennið okkar ekki kennt sér nokkurs mein, ekki einu sinni um helgina þegar bæði gekk upp úr honum og niður úr :)

Verandi þetta mikla hraustmenni, þá er Grímur Logi svo mikill öðlingur og rjómabolla að ég er að spá í hvort við verðum ekki að senda hann í einhverjar bardagaíþróttir eftir svo sem 1 eða 2 ár? Við erum í því að knúsa hann alla daga og ég efast um að hann sé að fá nægjanlega viðspyrnu á vöggustofunni, svo lendir hann karl greyið í "gaurum" eins og Skarphéðni nágranna (jafnaldri hans í næstu íbúð) og þá líst honum ekker á blikuna. Ætli séu til boxpúðar fyrir 1 árs?

Annars verða næstu dagar bráð skemmtilegir hjá mér og fara í þéttan próflestur og því eins gott að hætta þessu pestaveseni. Allt sem heitið getur heimilishald mun því mæða á Hildigunni (ehh eða er það ekki Hildigunnur?) - [eh,ertu ekki að meina eins og venjulega?-Hildig.] Þetta verður reyndar bráðskemmtilegt próf, á ég von á, munnlegt 30 mín., þar sem ég mun þó fá að tjá mig á ensku.... og alltaf er nú yndislegt þegar þau klárast þessi blessuðu próf.

Kveðja, Hallur

06 febrúar 2007

Byrjuð í sönginum

Nú er ég byrjuð í söngnáminu langþráða, sem ég er búin að tala um, síðan ég veit ekki hvenær. Skólinn heitir Complete Vocal Institute og er niðri í bæ, nánar tiltekið rétt við einn endann á Købmagergade, við torg sem heitir Kultorvet. Hann er stofnaður af konu sem hetir Cathrine Sadolin, og er algjör raddbeitingarnörd. Ég fór á 2 daga námskeið, eða Master Class hjá henni á Íslandi, þar síðasta sumar og þannig vaknaði áhugi minn á þessum skóla. Við lærum raddbeitingu, tækni, túlkun, spuna, hvernig maður fer í prufur og hvernig maður kemur sér á framfæri, komum fram á tónleikum og ég veit ekki hvað. Þetta er rosalega spennandi og búið að vera flott þessa 2 daga sem eru liðni.

Þetta er 4 mánaða 'intensivt' námskeið og því lýkur 1. júní. Það er tiltölulega lítið mál að koma mér niður í bæ, ég fer með Grím í stutta strætóferð á vöggustofuna og svo er Metró stoppistóð á næsta horni, þaðan er stutt ferð til Nørreport og stutt rðlt þaðan í skólann.

Ég segi ykkur meira frá síðar, hvað ég er að stússast í skólanum - ég á alla vega að syngja á mánudaginn lag með undirleikara.

02 febrúar 2007

Ljúfur afmælisdagur


Í dag á afmæli hin undurfagra og bráðgáfaða ofurkona, Hildigunnur Ægisdóttir.

Lífið hefur af einstöku örlæti sínu látið leiðir okkar Hildigunnar liggja saman og á einhvern óskiljanlegan hátt búið þannig um hnútana að hún hefur umborið allar mínar kenjar undanfarin 7 ár. 7 ævintýraleg ár! Það er líka það sem Hildigunnur er, hún er ævintýraleg, hún er mótorinn og eldsneytið, hún er framkvæmdamanneskja, hún er athafnaskáld, hún er ferðalangur. Að fá að vera meðreiðarsveinn í ævintýrum Hildigunnar eru forréttindi sem aldrei verða að fullu þökkuð. Mér verður stundum hugsað til baka um þær væntingar sem ég gerði til lífsins á yngri árum. Það er skemmst frá því að segja að ég orna mér við þá staðreynd að væntingar mínar voru hvergi nærri jafn undraverðar og ríkulegar og raunin hefur hingað til orðið. Fyrir þessu er ein einföld ástæða og hún heitir Hildigunnur. Nýverið bættist svo við önnur ástæða, hann Grímur okkar Logi.

Elsku Hildigunnur mín, ég verð að muna að segja þér það oftar, en þú ert hreyfiaflið í mínum alheimi, þú ert tilgangurinn, orsökin og afleiðingin. Til hamingju með afmælið!

-Hallur

Og nokkur orð frá afmælisbarninu:

"I dag er Hildigunnurs fødselsdag, hurra,hurra,hurra..." - svona byrjar danski afmælissöngurinn, þeir eru með alveg sér afmælissöng, þakka þér fyrir. Ég varð 31 árs í morgun og líst vel á það.

Í gærkvöldi bakaði ég afmælisköku til að fara með í skólann, m.a.s. 2 útgáfur af sömu kökunni. Var að sjálfsögðu að baka þangað til rúmlega 12, svona eins og maður gerir þegar maður er að baka afmæliskökur á kvöldin. Var svo komin í skúringar og ég veit ekki hvað að verða 1.


Var því frekar þreytt í morgun, en Hallur dekrari, maðurinn minn fór á fætur með Grími og fór líka með hann á vöggustofuna. Þannig að ég gat sofið aukalúr og það var voða gott. Ég mætti í skólann kl. 12 og sagði þar frá danskri rannsókn á stofnfrumum og bauð svo liðinu upp á köku. Það var voða ánægt að fá súkkulaðiskammt í kroppinn.

Skundaði svo heim og nokkru seinna komu strákarnir mínir heim, ferskir úr barnasundi í Frederiksberg sundhöllinni. Grími finnst það alltaf jafn skemmtilegt og er hrifnastur af litlum boltum sem fljóta gjarnan í lauginni.

Hallur sló alveg í gegn og mætti með ekki bara einn, heldur tvo afmælispakka, fínan kjól og flott nærföt. Góður !

Við drifum okkur svo út úr húsi - ferðinni var heitið á veitingastað niður í bæ, nálægt Nørreport. Sá er ítalskur og heitir La Rocca. Tímasetningin var aðeins öðruvísi en maður er vanur, við vorum mætt rúmlega 5, það passaði vel upp á Grím. Veitingastaðurinn átti að vera barnvænn og var það heldur betur. Helmingurinn af veitingastaðnum var hertekið af barnafólki og svo var líka leikherbergi með dóti og sjónvarpi. Það er fínt að fara á stað þar sem gert ráð fyrir börnum. Grímur var ekki einu sinni sá yngsti á svæðinu, það var t.d. ein lítil 3 mánaða á borðinu við hliðina. Hann borðaði brauð og spagettískammt með bestu lyst og skemmti sér vel í leikherberginu.

Takk fyrir afmæliskveðjur allir saman - en hvað ég er ánægð með afmælisdaginn minn!

27 janúar 2007

Vetrargarður






Kæri lesandi (hér geri ég mér sennilega of miklar væntingar),

Við höfum verið einmuna ódugleg við að skrifa hér á síðuna undanfarið. Fyrir því er engin góð ástæða, aðeins leti, eða eitthvað álíka. Það væri allt of langt mál að rekja það sem á daga okkar hefur drifið í millitíðinni, en í stuttu máli fórum við heim til Íslands yfir jólin og áttum þar yndisleg jól. Ég kom síðan aftur til Danmerkur 3. jan. þar sem ég átti að fara í próf. Hildigunnur og Grímur voru viku lengur. Síðan höfum við haft það fínt hér í kotinu okkar. Skólinn hjá mér byrjaði strax eftir prófið og Hildigunnur byrjaði strax aftur í dönskunni. Hildigunnur byrjar svo eftir rúma viku í söngnáminu sínu, sem stendur fram á vor. Hún er að sjálfsögðu orðin mjög spennt að byrja.
Grímur Logi hefur verið hinn hressasti ef frá er talið langvarandi kvef. Á vöggustofunni er hann farinn að gera kröfu til krúnunnar, farinn að hlaupa um allt og segja brandara á dönsku. Við vorum t.a.m. að uppgötva það í kvöld að ”nei” hjá honum er ”æ”, klárlega dönskusletta!
Vetur konungur er loks kominn til þessa litla flata lands. Í dag áttum við yndislegan dag eins og þið getið séð á meðfylgjandi myndum (hafi Hildigunnur komið þeim inn). Amma Gunna hringdi í hádeginu og sagði okkur frá fréttaritara sem hefði verið í útvarpinu og talaði frá hinum einmuna fallega Fredriksberg Have, ölvaður af hrifningu, en garðurinn er einmitt í næsta nágrenni við okkur. Við ákváðum auðvitað að missa ekki af þessu, enda veðrið dásamlegt, nýfallinn snjór, logn.... Ég stökk því af stað niður í ISO og keypti snjóþotu handa Grímsunganum og svo skelltum við okkur í garðinn. Og óboj, óboj, mikið óskaplega var þetta fallegt allt saman, snjórinn, fólkið, snjóþoturnar...
Snjóþotan hitti líka beint í mark hjá Grími, hann skakaði sér til og frá í henni og sagði brrrrrrrrr, brrrrrrrrrrr, brrrrrrrrr og ef snjóþottan stoppaði þá hætti auðvitað að heyrast brrrrrrrrr! Það var aðeins tvennt sem varpaði skugga á ferðina fyrir litla prinsinum: Þegar mamma hans renndi sér með hann á snjóþotunni niður smá brekku (fór helst til of hratt fyrir litla ungann) og þegar hann mátti ekki fara út á þunnan ísinn á vatninu til að klappa öndunum. Hann ákváð þó í örlæti sínu að fyrirgefa hvoru tveggja skömmu síðar og fékk í staðin að leggja sig í vagninum utan lögformlegs hvíldartíma, eftir að hafa nartað í lostætar (enskar) skonsur úr óvenju mergjuðu dönsku bakaríi.
Jæja, best að ofgera sér ekki í fyrstu skrifum ársins. Frekar ætla ég okkur að gera skrifin tíðari, ætli það sé ekki ágætt síðbúið áramótaheit? Bless í bili kæri lesandi, sem fyrir einhverja undarlega tilviljun hefur rambað inn á þessa síðu, því allir aðrir eru að líkindum löngu búinir að gefa upp alla von.