Úff,þá er dagur að kvöldi komin. Það gekk vel að syngja í dag í skólanum, eins og ég var nú búin að kvíða því. Var fyrst að syngja og náði að vinna meira í laginu, með hjálp Claes kennara, höfum nokkra kennara, sem eru allir virkilega fínir. Lagði mig alla í sönginn og var ánægð með hvað gekk betur með lagið en í síðustu viku. Svo sungu allir hinir og ég aðeins aftur...Klukkan hálf fimm dreif ég mig í lestina og fór í dönskuprófið kl. hálf sex, það var heldur léttara en átti von á, alla vega aðeins að mér fannst. Var fegin kl. 9 þegar var búin með hlustunar-, les- og skriflega hluta. Fer svo í munnlegan hluta í næstu viku.
Sit núna og fylgist með samantekt frá Óskarsverðlaununum.
Grímur er því miður orðin slappur með nokkrar kommur og gröft í augunum, greyið kallinn. Lítur út fyrir að ég verði heima á morgun, æi, auðvitað vil ég vera heima með litla slappa manninn, en mig langar líka í skólann. Svona er að vera ekki með 'netverkið' sitt, ömmur og afa, frændur og frænkur...
Vonandi hafið þið það gott og verið góð við hvort annað.
