16 desember 2006

Ég er 1 árs í dag!







Hér var afmælisveisla í dag - stóri-litli-drengurinn er 1 árs í dag og hér var mikil gleði. Við byrjuðum daginn á því að Grímur fékk afmælisgjöfina sína frá okkur,sem var rosa flott farartæki,maríuhæna á hjólum,sem maður ýtir sér á. Svo var hamagangur í öskjunni að klára að gera allt klárt fyrir afmælið. Hér komu Garðar,Sara,Ísak og Ísabella - beinustu leið frá Árósum;Agnes og Kalli með Elmu Lind og Mána - og Viðar og Lára með Elínu Ólöfu og Nökkva. Það var mjög huggulegt hjá okkur og fólk var ánægt með ofurhúsmóðurina. Grímur borðaði súkkulaðiköku af bestu lyst og stóð sig vel í öllu áreitinu. Hér erum við sátt og glöð eftir daginn og þakklát fyrir að hafa fengið gullmolann í líf okkar.

Hvað gerir Grímur...?

Hann byrjaði að labba fyrir 3 vikum síðan,þann 25. nóvember,þá 11 mánaða og 9 daga gamall. Hann hafði áður tekið eitt og eitt skref - en stóð í þetta sinn við hliðina á mér að skoða tóman pappabókakassa á gólfinu. Hann var ekki sáttur við að ég færði hann í burtu og tók 3 undursamleg og falleg skref til að komast að kassanum. Ég varð svo óskaplega glöð og stolt.

Hann er farinn að ferðast lengri vegalengdir og tekst á við sífellt erfiðari verkefni. Við pabbi hans sjáum um að dást að litla gullmolanum.

16 nóvember 2006

Grímur kom í heiminn fyrir 11 mánuðum


Hvað er ég gamall?

11 mánaða!

Já,elsku stækkandi unginn minn er 11 mánaða í dag. Og eins og allir foreldrar segja:en hvað þetta er fljótt að líða.

Hér er heimilislíf í góðum gangi. Ég eldaði fantagóðan kvöldmat,svínakótilettur á
tilboðsverði flattar út,velt í hveiti og kryddi og steikt í olíu,nammi namm. Með þessu var borið fram Súdanskar kartöflur,eða svo hét rétturinn í matreiðslubókinni:kartöflur með hökkðum tómötum úr dós,lauk,kryddi og fullt af hvítlauk - látið malla í rúman klukkutíma - og svo salad. Við Hallur borðuðum góðan skammt og Grímur smakkaði á svínakjötinu,endaði þó á gríska jógúrtinu sívinsæla.


Tími fyrir háttinn,mér tekst einfaldlega ekki að koma mér í rúmið fyrir 11!

13 nóvember 2006

Íslendingur í danskri rigningu

Ég hljóp hér út áðan með gullmolann minn,þurfum gjarnan að flýta okkur héðan út eftir að Grímur er búinn að leggja sig,því að Grímur vaknar venjulega um kl. 11 og dönskutíminn byrjar kl. 12. Nema hvað,þegar við komum út var heljarinnar rigning,nokkuð sem ég hafði ekki áttað mig á - og ég var í leðurstígvélum,ekki sérlega praktískt í mikilli rigningu,að ég tali nú ekki um álagið á blessað leðrið. Ég lét mig nú hafa það..en hugsaði með mér að ég yrði að drífa mig í að kaupa gúmmístígvél. Svoleiðis er það nefnilega í Danmörku,það er ekki talið athugavert að þramma um í gúmmístígvélum,meira að segja í skólanum hjá Halli eru hörðustu pæjurnar í gúmmístígvélum þegar það er rigning. Getið þið ímyndað ykkur hvernig það væri horft á ykkur ef þið mættuð í svoleiðis múnderingu í vinnuna eða skólann? En það er um að gera að vera praktískur þegar maður stundar almenningssamgöngur eða kemst um á tveimur jafnfljótum.

Það var stutt stopp hjá mér í dönskunni,var núna n.k. stöðuviðtal með kennaranum,hvar maður stendur,hvað maður vill bæta o.s.frv. Það var fínasta spjall - skundaði svo að leita að stígvélum án árangurs og fékk mér svo café latté í sárabót. Nú er ég heima og planlegg allsherjar þrif á baðherberginu. Ég ætti í raun ekki að sitjast niður við tölvuna,því ég get auðveldlega tapað mér í því.

Eins og Hallur sagði frá var IKEA ferð frá helvíti á laugardaginn - nú eru komnir stólar og eldhúskróksgardínurnar bíða hér þolinmóðar. Hallur lærði svo í gær og við Grímur dunduðum okkur. Ég hafði ætlað að skreppa kannski á risa loppumarkað sem var um helgina í Forum,en höndlaði ekki tilhugsunina eftir IKEA ferðina.

Grímur er hress og grét ekki neitt þegar ég kvaddi hann á vöggustofunni áðan. Hann vaknaði reyndar í nótt um 2 leytið og sofnaði ekki fyrr en að ganga 5! Ég veit ekki hvað var á seyði hjá greyið kallinum. Það væri sniðugt ef að börn gætu sagt frá því einhverjum árum síðar hvað var að angra þau ákveðna nótt þegar voru 11 mánaða. Ef að Grímur segði t.d. við mig þegar hann er orðinn 8 ára : heyrðu já,mamma,manstu í nóvember 2006,þegar vaknaði um nóttina og gat ekki sofnað aftur - það var út af því að mér var illt í góminum...eða, mig dreymdi illa.. eða, mér var illt í maganum... Það væri sniðugt - en þá væri líka smáræði eins og ein svefnlaus nótt löngu gleymd.

12 nóvember 2006

Lestarpása

Hallur skrifar:

Langaði bara að setji inn nokkur orð í lestrarpásunni minni og segja stuttlega frá sl. dögum.

Í fyrsta lagi eyðilagðist hjá okkur þvottavélinn. Hún var í eigu leigusalans svo hann þarf að sjá um að redda nýrri. Við gerðum að sjálfsögðu fyrir að ný vél yrði kominn morguninn eftir... En nei, 4 VIKNA biðtími!!! Það tekur sem sagt 4 vikur að afgreiða nýja vél hjá köppunum hjá Elektrolux. Ég varð svo yfir mig hneykslaður að ég mátti vart mæla. Og það getur bara enginn gert neitt í þessu að því er virðist, húsvörðurinn var raunarmæddur yfir þessu og athugaði hvort hægt væri að fá leigða vél í svo stuttan tíma, en nei, til að byrja með hefði það kostað 2x2 menn í 2x2 fyrir utan að leigan var svimandi há... úff ég gæti skrifað um þetta endalaust frá hinum ýmsu hneykslanlegu sjónarhornum, ég ætla samt ekki að gera mér það né öðrum. Bottom line: það er fínt að vera í Danmörku, ekki misskilja mig, en stundum hef ég það á tilfinningunni að getuleysið sé að sé alveg að fara með þá. Ef einhverjir þurfa spark í afturendann...

Hins vegar bjargaði það lífi okkar að við höfðum haft með okkur þvottavél frá Íslandi (algjörlega Hildigunni að þakka, ég vildi selja hana). Ég vatt mér því í það á föstudaginn að tengja hana og gerði ekki ráð fyrir því að það yrði mikið mál. En hvað haldið þið? Var kaldavatnskraninn (kraninn fyrir vatnið inn á vélina) þá ekki kalkaður fastur og ekki lifandi leið að skrúfa fyrir hann. Afleiðingin varð auðvitað sú að vatn rann í stríðum straumi eftir klósettgólfinu mér tókst þó á endanum að tengja helv. vélina. En hvað gerðist??? Haldið þið að helv. slangan (milli kranans og vélarinn) hafi ekki svikið mig og vatnið hélt áfram að leka niður á gólf!!! Jæja, á þessum tímapunkti var mér nóg boðið og kallið á hjálp...

Súrt - en samt ekki jafn súrt og IKEA ferðin sem við vorum í í gær. 18 villtir hestar munu ekki draga mig í IKEA aftur í bráð.

Eru ekki allir annars í stuði??? Ég er amk í flottum fíling :)

djö... lestrarpásan orðin alltof löng!

09 nóvember 2006

Nýjar myndir

Var að setja loks síðasta myndaskammtinn frá Lanzarote ferðinni síðastliðinn ágúst. Setti líka inn myndir frá því í október. Er búin að taka óvenju lítið af myndum undanfarið,þarf t.d. að sníkja myndir frá Elísabetu og pabba og co. frá heimsóknum þeirra.

Dreif mig í ræktina áðan og hjólaði þangað í rigningu. Maður lætur sig hafa ýmislegt þegar maður er í Danaveldi! Ekki myndi mér detta í hug að gera þetta á Íslandi. Veit ekki með þessa dönsku karlmenn - fór í Body Pump tíma - svona tími með lóðum - og í byrjum tímans voru 4 fullfrískir strákar með jafnmikið á stönginni eða minna en ég,halló! Þetta er ekki eins og á Íslandi,þar sem að karlmennirnir eru að bugna undan lóðunum. Kannski er þetta þessi 'ligeglad' fílingur?

07 nóvember 2006

Er æskilegt að vera ofurhúsmóðir?

Ég var í hami í gærkvöldi og hefði átt að skrifa um þetta þá,en skrifa nokkrar línur núna. Var komin með algjört ógeð á því sem á eftir að gera í íbúðinni - erum ekki komin með eldhúsborðsstóla,loftljós(nema eitt í forstofunni) og svo er ansi mikið af dóti sem á eftir að ganga frá í svefnherberginu. Það orsakast aðallega af því að okkur vantar skápapláss í svefnherberginu. Ekki það,íbúðin er í ágætis standi,það er bara týpískt dót sem á eftir að ganga frá þegar maður flytur. Alla vega,það skiptir ekki öllu máli hvað þarf að gera,heldur það að ég er stundum haldin svona "frustration" að vera ekki "ofurhúsmóðir" - með gjörsamlega allt á hreinu í íbúðinni,allt þrifið og þvegið og snyrtilegt og glansandi. Ég veit ekki hvaðan þetta kemur,held í raun að það sé ekki hægt að vera ofurhúsmóðir og hafa líka allt annað í góðum málum,t.d. að sinna börnunum sínum eða að sinna manni sjálfum,fara í ræktina t.d. Ég fékk þennan ofurpirring þrátt fyrir að ég hafi bæði bakað kryddköku um daginn og eldað ofurholla grænmetissúpu (við erum ekki að tala um Knorr).

Hvað segið þið - er hægt að vera ofurhúsmóðir og er það í raun eitthvað sem maður á að stefna á?

2 tönnslur í viðbót

Grímur Logi stóri strákur er kominn með 2 tennur í viðbót við hinar 6. Hann virðist taka tanntökuna með trompi,þegar hann er á annað borð að þessu,nú komu 2 í einu niðri við hliðina á framtönnunum. Ég er búin að vera að gera hann hálfgeggjaðan á að þreifa upp í hann að reyna að sjá og finna tennurnar,það er talsvert erfiðara núna heldur en þegar hann var 7 mánaða! Þessar 2 nýju tennur sem komu fyrir 3 dögum (4. nóv) ættu að útskýra af hverju hann var búinn að vera vakna aðeins á kvöldin og líka á morgnana þegar hann blundar - og þegar hann vaknaði fyrir 5 fyrir fáeinum dögum:)

Greyið er komið með kvef og fór ekki á vöggustofuna í dag eða í gær. Akkúarat þegar náði fínum degi þar á föstudaginn..kom með hann rétt fyrir 12 og sótti hann kl.16 - alveg týpískt að fá svo kvef,óh well.

Annars erum við í góðu standi hér. Við Grímur háðum smá rimmu í hádeginu (nei,ég segi svona). Var að reyna að fá hann til að borða stappaðar sætar og venjulegar kartöflur. Hann var ekki mjög hrifin af því,var miklu hrifnari af gríska jógúrtinu. Svo blandaði ég smá kartöflustöppu saman við jógúrtið og hann lét sig hafa það.

Nú er mikið sport að fara inn í eldhúskrók og stilla sér upp við glerhurðina,sleikaja hana aðeins og gretta sig - og þá á ég að vera hinu megin við hurðina og gera svipað og svo kíki ég fyrir hornið á hann (í gegnum hitt hurðaropið-þetta er mjög flókið) og það er rosalega sniðugt. Æ,hvað þetta er ljúft líf.

04 nóvember 2006

Grímur Logi skrifar...



Er ekki kominn tími til að ég skrifi á þessa blessuðu bloggsíðu? Jú, þó fyrr hefði verið! Það er erfitt að kynnast fólki í gegnum sögusagnir eingöngu. Mig langar því að segja aðeins frá sjálfum mér og lífinu hér í Kaupmannahöfn.

Nafn og aldur: Ég heit Grímur Logi, eins og þið væntanlega vitið, ég er 10 mánaða og 19 daga gamall, það styttist því í stórafmæli.

Matur: Mér finnst gott að borða! En hverjum finnst það ekki. Mér er hins vegar að sjálfsögðu ekki sama hvað ég borða og læt þá skoðanir mínar í ljós. Í dag var pabbi til dæmis með einhverja tilraunastarfssemi og setti perur út í grísku jógúrtina mína. Ég reyndi að vera kurteis til að byrja með og borðaði jógúrtina og skilaði perubitunum snyrtilega út úr mér um leið. Eftir nokkrar skeiðar sá ég þó að þetta gengi ekki lengur, ég neitaði að borða jógúrtina með perunum og kom pabba í skilning um það að ég mundi ekki borða meira fyrr en ég fengi “orginal” jógúrtdósina á borðið án allra heimatilbúinna viðbóta. Hann gaf sig á endanum karlinn, sýnir að stundum verður maður bara að vera harður.
Ég á nú ekki sérstaklega auðvelt með að nefna uppáhaldsmat, það kemur ýmislegt til greina. Ég er t.a.m. mjög hrifinn af hafragraut og borða mikið af honum. Gríska jógúrtin finnst mér líka frábær og svo smakkaði ég pizzu í gær og leist mjög vel á þann mat. Áður en ég hætti að tala um mat þá verð ég að nefna blessað rúgbrauðið. Ég hef komist að raun um að ekki verður komist hjá að láta sér það lynda ætli maður sér að tóra hér í Danmörku. Ég geri því mitt besta við að koma því niður þrátt fyrir að ég kúgist alltaf á fyrsta bitanum – þetta er vont en það venst.

Leikföng: Leikföng geta verið ágæt og ég dúlla mér oft við að skoða einhver leikföng, sérstaklega ef hægt er að ná þeim í sundur. Annars leik ég mér líka mikið með heldur óhefðbundin leikföng og þá finnast mér föt og allskonar tuskur mjög heillandi: hreinar, skítugar, blautar þurrar. Best finnst mér ef ég kemst í bala fullan af fötum, þá uni ég glaður við mitt mínútunum saman.
Uppáhaldsleikfangið mitt, það er auðvelt að nefna það. Það er hún mamma. Ég get klipið, nartað, slefað og klappað henni hvar og hvenær sem ég vil og svo gefur hún frá sér hin ótrúlegustu hljóð, grettir sig, hoppar, dansar og syngur með slíkum tilþrifum að við pabbi verðum gapandi hissa. Þegar ég verð loks þreyttur af öllum hamaganginum þá faðma ég hana og við róum hvort annað niður.

Orðaforði: Eins og þið sjáið af skrifunum þá er orðaforðinn í fínu lagi (a.m.k. miðað við að ég er bara 10 mánaða). Ég er hins ekkert að segja öll þessi orð upphátt. Einu orðinn sem ég segi upphátt eru “pabba” og “datt”, svo kann ég alveg að segja “mamma” en mér finnst svo gaman að stríða mömmu svo ég nota það mjög sjaldan.

Staður: Það jafnast náttúrulega fátt á við gott kaffihús, en uppáhaldsstaðurinn minn er nú samt uppi í rúmi hjá mömmu og pabba, snemma á morgnana þar sem þau liggja nánast meðvitundarlaus og ég get kastað mér á þau og bitið þau í nefið, tosað í eyrun eða hvað sem mér dettur í hug.

Tennur: Þær voru lengi vel sex en í gær bættist sú sjöunda við!!! Mamma hamaðist í gær og í dag að þreifa á góminum mínum til að staðfesta að hún væri komin.

Áhugamál: Ég hef ýmis áhugamál: fara á kaffihús, borða góðan mat, lesa bækur og hlusta á tónlist. Dansinn á þó hug minn allan, hann er stór hluti af lífi mínu og ég reyni að flétta hann inn í flest það sem ég geri, hvort sem ég er í vagninum mínum, er að fá mér að borða eða hvar ég er. Dansinn er það fyrsta sem ég gef mig að þegar ég vakna á morgnana, þá förum við pabbi fram í stofu, pabbi setur á disk í græjurnar, helst létta sveiflu og ég tek sporið - besti tími dagsins.

Mottó: “Lífið er einn dans…”

Jæja, ég vona að þið séuð einhverju nær. Annars líkar mér prýðilega hér í Kaupmannahöfn, ég er byrjaður á vöggustofu sem mér líkar alltaf betur og betur við. (Viðurkenni að mér leyst ekkert á þetta til að byrja með). Ég sakna hins vegar allra heima á Íslandi, þó sumir hafi sem betur fer heimsótt mig nú þegar: amma Hanna, afi Sturri, Afi Hallur og Amma Dúna komu í september og afi Ægir, amma Ragna og Ingólfur frændi komu í október. Það væri æðislegt að fá alla í heimsókn, þó ég hafi verið pínulítið hræddur til að byrja með. Ég er nefnilega ekkert sérstaklega mannglöggur, hef það sennilega frá pabba mínum. Að lokum lét ég fylgja með mynd af mér (og pabba) þar sem ég vinka til ykkar allra, myndin er tekin meðan ég er að skrifa þessi orð.

Mínar ljúfustu kveðjur,
Grímur Logi Hallsson

03 nóvember 2006

Lítill drengur á vitlausu tímabelti

Hér var stuð í nótt þegar Grímur Logi vaknaði korter í fimm og var ekkert á því að sofna aftur. Pabbi tók hann að sér,reyndi fyrst að svæfa hann aftur en svo var gefist upp og farið fram í stofu. Spurning hvort að sé tönn að stríða honum eða hvað,hann er alla vega búin að vera að vakna aðeins á kvöldin eftir að hann sofnar.
Annars er hann kominn á ágætis skrið á vöggustofunni,var í raun aðeins erfiðara að byrja aftur eftir tæplega 2 vikna pásu,heldur en þegar hann byrjaði fyrst. Í dag var hann sáttari og skreið um og slíkt. Ég kom með hann rétt fyrir 12,hljóp í dönskuna og sótti hann kl.4 - þá var hann sofandi úti.

Ég er að fara á morgunn á undirbúningsdag fyrir söngnám sem ég er spennt fyrir og byrjar í febrúar. Þetta verður n.k. "Masterclass" og svo eiga allir að syngja,þar á meðal "moi" - og er dálítið stressuð - en hlakka samt til líka. Ég hlakkaði til í vikunni ... en nú er dálítið stressuð:) Þetta verður örugglega mjög gaman. Segi ykkur seinna hvernig gekk. Ég er svo mikil raggeit að ég sé fyrir mér að ég sé búin að syngja og svo segi kennarinn við mig : bíddu,þetta gengur ekki,þetta var alveg ómögulegt. Humm...þýðir ekki að hugsa svona! Þetta verður gaman..gaman...gaman!!!

30 október 2006

Var að græða klukkutíma


Var að leggja Grím minn niður til svefns áðan. Við borðuðum saman afgangs hakk og spagettí,svo Grímur fór í maraþonbað. Eftir það leit ég á úrið mitt og hugsaði,nei heyrðu mig,rosalega vorum við lengi í baði,klukkan var sem sagt 6 mínútur yfir 8,ég sem er að reyna að koma Grími fyrr í háttinn (háttatíminn var farin að nálgast hálf tíu) og ætlaði að setja hann í rúmið kl.8,ansans! Svo var litli gaurinn svæfður og það tók reyndar um hálftíma. Kom svo fram og hugsaði : úff,ég á eftir að gera svo mikið,læra dönsku,ganga frá,hitt og þetta og klukkan er orðin 9! En nei,nei..úrið sem hafði litið á var á 'gamla tímanum',í gær var klukkan í Danmörku sett á vetrartíma,sett 1 tíma til baka. Þannig að klukkan var bara rúmlega 8,litli gaur sofnaður og ég var að græða klukkutíma!

13 október 2006

Beðið eftir Elísabetu

Sit hér heima,Grímur er sofandi og bíð eftir Elísabetu. Karertu? Ég segi svona,er svo spennt að fá hana í heimsókn.

Þurfti að fara snemma úr dönsku í dag,það var hringt í mig á vöggustofunni og beðin um að sækja Grím. Grímur greyið var byrjaður að kvefast í gær,vaknaði í nótt og átti bágt. Mér fannst þó ágætlega stemmdur í morgun og ákvað að láta reyna á þetta. Þegar þær hringdu var hann e-ð lítill greyið og vildi bara láta halda á sér og rann úr nebbanum. Vonandi verður hann ekki mjög slappur.

Heyri í ykkur eftir helgi - hlakka mjög til að eyða tíma með Elísabetu og Agnesi vinkonum.

11 október 2006

Nu skal man snakke dansk

Ég byrjaði á dönskunámskeiðinu í gær og er að sjálfsögðu mjög ánægð. Reyna á heilan: vííí... tilbreyting frá mömmustússi:vííí... Skólinn er hér nálægt okkur,ca korter að labba og kennir reyndar mun fleira en dönsku fyrir okkur útlendingana. Með mér í tímanum var fólk frá Pakistan,Kína,Englandi,Filippseyjum,Þýskalandi og að sjálfsögðu frá gamla góða Íslandi (2 stelpur). Þessi dönskukennsla er í raun hlaupandi námskeið,maður getur verið í þessu í ansi langan tíma,veit ekki til þess að séu takmörk á því hvað maður getur verið lengi. Nýtt fólk getur byrjað í hópnum hvern mánudag. Ég er núna á þriðja 'módúl' og svo getur maður tekur próf eftir 2,3,4 mánuði til að komast á næsta módúl. Kennslan er hverja virka daga nema miðvikudaga. Og hvað gerir maður þegar að unginn manns fer á vöggustofu í 3-4 tíma,jú,maður þrífur! Veii...

Það er eins gott að taka til hendinni áður en að Elísabet snyrtipinni,vinkona,kemur til okkar á morgun:) Hún kemur frá London til að kíkja á okkur Agnesi vinkonu og dást að börnunum okkar :) Á t.d. eftir að sjá Mána litla hennar Agnesar,sem að fæddist í júní.

Í gær var Grímur á vöggustofunni frá ca 11 til 3,þá sótti pabbi hans hann. Var hinn rólegasti að dunda sér þegar að Hallur kom. Hann er ekki að æsa sig að óþörfu og vill örugglega skoða vel svæðið og skanna fólkið og krakkana áður en hann fer að láta meira á sér bera.

Klósettburstinn bíður ! Hálftími í að Grímur vakni og þá er eins gott að vera búin að hafa allt tilbúið áður en maður fer út úr húsi.

06 október 2006

Gengur vel hjá Grími

Í dag fórum við í þriðja sinn á vöggustofuna. Grímur sofnaði á leiðinnni þangað á sínum venjulegan tíma. Svo vaktí ég hann eftir að hann var búin að sofa í um 70 mín og fór með hann inn. Þar tók hún Dorthe við honum,ein af fóstrunum og jafnframt yfir vöggustofunni allri. Ég skrapp fram á kaffistofu og á meðan fékk Grímur að borða og drekka,lék sér og var skipt á honum. Allt þetta fór fram án þess að hann kvartaði! Mikið var ég ánægð:) Drengurinn er þessa dagana alger mömmu og pabbastrákur,enda búinn að vera mikið einn með honum,enn meira einn með okkur af því að vorum að flytja og erum ekki búin að vera í kringum stórfjölskyldur okkar og fleiri. En hann er jú í sérlegu góðu jafnvægi og hann höndlaði þetta vel í dag án mín í um 50 mínútur. Sem sagt...ánægð mamma og ánægður Grímur.

Eftir þetta flýttum við okkur heim - ég var búin að bjóða 2 íslenskum stelpum sem eru hér í byggingunni í hádegiskafif með krílin sín. Ein er með rúmlega 2 ára stelpu og 6 mánaða strák og hin með strák sem er 3 vikum eldri en Grímur. Það var því fjör og gaman hér í dag. Það var mjög gaman að hittast og kjafta og pústa :)

Á morgun verður ekki venjulegur fjölskyldudagur eins og við reynum að hafa laugardagana því að Hallur þarf að vinna í verkefni með hópi úr skólanum. Við Grímur ætlum þó í barnaafmæli til Agnesar vinkonu.

04 október 2006

Grímur og Rauði Krossinn


Fyrsti dagurinn á vöggustofunni hans Gríms var í dag,eftir 2 veikindadaga heima. Á myndinni lengst til vinstri er hann að undirbúa sig heima áður en við leggjum í hann,að fara yfir nýju bókina sína Den lille bondegård. Á næstu erum við fyrir utan heima að leggja í hann og á þeirri til hægri erum við á vöggustofunni. Þar tóku á móti okkur 3 fóstrur,ég talaði mest við hana Dorthe. Þær voru reyndar ansi uppteknar þegar við komum í matartímunum að sinna litlu álfunum og svo að hafa þau til fyrir hádegisblund. Á morgun mætum við fyrr,í kringum 9 og þá spjöllum við betur við þær. Í dag var ég stutt með hann,ca 45 mín,heilsuðum upp á krakkana og spjölluðum við fóstrurnar. Okkur líst bara vel á. Þarna voru börn frá 7 mán og upp í tæplega 3 ára. Grímur er s.s. næst yngstur. Einhverra hluta vegna er vöggustofan kennd við Rauða Krossinn og á að vera einhvers konar sjálfstæð stofnun,þótt maður sjái það ekki neitt í raun.

Eftir heimsóknina á vöggustofuna kíktum við á kaffihús við hliðina á Frederiksberg Centret,'mallinu' í Frederiksberg,sem er við hliðina á skólanum hans Halls. Hallur kom svo og heilsaði upp á okkur. Svo fórum við Grímur í barnabúð í Österbro og versluðum þar aðeins. Tók okkur svo 40 mín að koma okkur heim í strætó í ansi mikilli umferð og Grímur orðinn þreyttur og pirraður.

Best að koma sér í háttinn og vera vel upplagður fyrir daggæsluna á morgun.

02 október 2006

Fyrsta degi á vöggustofu frestað

Elsku Grímurinn er orðinn veikur þannig að hann fer ekki á vöggustofu í dag eins og var ætlunin. Hann byrjaði á því að kvefast um helgina og nú í nótt var hann kominn með hita. Ferlega leiðinlegt. Vonandi verður hann tiltölulega fljótur að jafna sig.

Svo er ég líka komin með óþverrakvef,það helltist yfir mig á klukkutíma að mér fannst. Hellti í mig Flensubana og fleira frá Jurtaapótekinu,en náði varla að grípa í skottið á pestinni.

27 september 2006

Gestir og góða veðrið.


Loksins er sólin farin...þetta hljómar kannski undarlega-en ég er fegin að fá smá hlé,það er búið að vera rosalega gott veður með sól og 20-25 stiga hita og við gardínulausa fólkið þjáumst stundum af hita hér inni. Þá drífur maður sig að sjálfsögðu út og dundar sér við hitt og þetta,sem er besta mál. Ég á eftir að koma mér betur fyrir og einhvern er skárra að gera það þegar maður er ekki að mæna á góða veðrið úti.

Nú er Grímur sofandi og þá vegur maður og metur-hvað á ég að gera. Ég ætti að setja í uppþvottavélina og þvottavélina og taka til og ganga frá síðustu kössunum og fara í sturtur,og ...og.. en svo væri líka gott að leggja sig:) Þessi mamma fór mjög seint að sofa og var vel mygluð í morgun. Er núna að æfa mig í dönskunni og horfa á 'Par på pröve',þar sem að 2 fjölskyldur skipta út mömmunum í 8 daga..þið kannist kannski við svipaðan hátt. Mér fer alla vega fram í að skilja dönskuna.

Síðustu helgi komu mamma Halls og Sturri og amma og afi Halls í heimsókn yfir helgina og það var virkilega gaman. Við spókuðum okkur og fögnuðum svo fimmtugsafmæli Hönnu á föstudeginum. Borðuðum hádegismat á svaka fínum veitingastað í Tívolíinu,The Paul. Það er ekki nóg með að Grímur hafi farið á hin og þessi kaffihús og veitingastaði heldur er hann núna búinn að borða á Michelin stjörnu veitingastað,geri aðri betur. Við vorum ekki viss um hvort væri heppilegt að fara með hann,en þetta var mjög hentugt því að það voru bara matargestir á einu öðru borði og Grímur gat skriðið um og skoðað að vild.

Hanna og Dúna amma Halls héldu uppi verslunarheiðri Íslendinga,versluðu eitthvað á sig og að sjálfsögðu á litlu börnin í fjölskyldunni,þetta eru sko manneskjur með þol.

Laugardagskvöldið pössuðu þau Grím á meðan við Hallur bóhemarnir hjóluðum í bíó og sáum mynd Al Gore,An Inconvenient Truth. Það er ekki óþarfa rómantík hér á bæ,við hjóluðum í bíó og horfðum á mynd um gróðurhúsaáhrifin. Myndin var reyndar ekki bara dómsdagsleg,heldur líka fræðandi og áhugaverð- þið verðið endilega að sjá hana.

Nú ætla ég í Formúlukappakstur eins og hef minnst hér á áður - að sinna heimilisverkum áður en gullmoli heimilisins vaknar.

Ég er búin að setja nýlegar myndir á flickr síðuna,á eftir að bæta við myndum frá Lanzarote.

13 september 2006

Ömmur gráta & Tengd umheiminum


Hvað haldið þið? Mín er orðin nettengd! Við fengum áðan ADSL módem og mín stakk öllu í samband og það bara virkaði,alveg ótrúlegt. Mikið var segi ég, erum búin að bíða eftir þessu í um 2 mánuði!

Hvar á ég eiginlega að byrja... ég mætti hingað til Frederiksberg með Grímsungann þann 1. september og þar með var öll fjölskyldan flutt. Hallur mætti hingað daginn áður og var búinn að tæma gáminn og setja upp í íbúð þegar ég kom. Þó það nú væri, ég pakkaði nú búslóðinni niður á meðann hann sökkti sér í dönskuna hér í Köben.

Ég mætti s.s. hingaði um kvöldið 1. sept. og settist niður við tölvuna til að setja færslu hér á bloggið og hélt að við værum nettengd. En það var misskilningur hjá mér,Hallur hafði bara komist aðeins á þráðlaus opin net sem eru einhvers staðar hér í kring og það var frekar óstöðugt. En nú á að bæta úr fréttaleysinu...
Daginn sem við flugum hingað til Köben skutlaði Hanna,mamma hans Halls okkur á heilsugæsluna á Seltjarnarnesinu frá Skaganum,þar tók mamma við okkur - við vorum s.s. bíllaus. Hanna kvaddi okkur þar og var erfitt fyrir greyið ömmuna. Svo fór Grímur í skoðun og sprautu og við fórum heim með mömmu,lögðum okkur og fórum svo tímanlega út á völl. Mamma bar sig ansi vel fannst mér þegar við kvöddumst en heyrði svo í henni þegar við vorum komin í gegn og þá hafði hún stoppað á Kaffitári í Njarðvík til að jafna sig. Æi,það er ekki auðvelt fyrir ömmurnar að litli Grímur flytji til útlanda.

Við Grímur erum búin að vera dugleg að skoða okkur um í nágrenninu, í Frederiksberg og Nørrebro,við erum alveg nyrst í Frederiksberg,alveg við Nørrebro. Það gengur hægt og rólega að koma okkur fyrir,okkur vantar aðeins meiri hillu og skápapláss,þarf að græja það sem fyrst. Maður verður frekar þreyttur á að vaða pappakassana - en þetta hlýtur allt að koma.

Í gær fórum við og skoðuðum vöggustofuna þar sem Grímur byrjar 1. október og leist bara vel á. Hún er kölluð Røde Kors vöggustofan,s.s. Rauða Kross vöggustofa, doldið skondið. Þar spjölluðum við við eina fóstruna á meðan að börnin voru sofandi úti í vögnum. Vöggustofan er nokkuð nálægt,tekur örugglega tæpt korter að labba og auðvitað fljót að hjóla. Við sóttum um pláss fyrir Grím í daggæslu seinni part júlí,þannig að það er frábært að vera búin að fá pláss fyrir hann.

Er með fullt af myndum frá Lanzarote sem ég mun hlaða inn á flickr síðuna sem fyrst.

Sem sannur Íslendingur verð ég að minnast á veðrið,það er búið að vera frábært:) í gær og í dag voru um 23-25 gráður og sól,alveg frábært að teygja sumarið.

09 september 2006

Flutt!

Þá er litla fjölskyldan flutt! Nú er liðleg ein vika síðan við fluttum og við erum hægt og bítandi að verða búin að koma okkur fyrir, aðeins fáeinir kassar eftir. Að vísu eigum við eftir að fjárfesta í eldhúsborði og stólum í stíl og eins og við er að búast þessi væntanlega fjárfesting þegar farin að valda titringi og togstreitu á heimilinu. Við vonum þó hið besta, okkur tókst a.m.k. að kaupa bæði brauðrist og ryksugu í vikunni án of mikilla slagsmála.

Þá vitið þið það, það að kaupa eitthvað annað og meira en mjólkurlítra getur valdið hugaræsingi og óvæntum uppákomum innan fjölskyldunar á stundum. Veit ekki alveg hvernig á því stendur en reikna með að þetta hafi að gera með ólíkan innkaupsstíl og óbilandi þrjósku beggja hlutaðeigandi - Hildigunnur kallar það reyndar nöldur í mínu tilfelli. Yfirleitt er það þannig að ég vil kaupa e-ð ódýrt og yfirleitt það fyrsta ódýra sem ég sé, því ég lít á hverja mínútu sem ég eyði í að skoða búsáhöld, matvöru, húsgögn eða þess háttar sem glataða og það sama á við um krónurnar sem fara í þetta. Minn betri helmingur (eða þriðjungur) þarf hins vegar að rannsaka markaðinn af sömu nákvæmni og vísindamönnum tókst að kortleggja genamengi mannsins. Nú er t.a.m. ekki til sú ryksuga í norður-evrópu sem Hildigunnur er ekki búin að skoða með tilliti til sogkrafts, rafmagnsnotkunnar, verðs og samfélagslegrar virðingar (þ.e. snobbstuðull) svo e-ð sé nefnt. Svona er nú lífið.

Skólinn er byrjaður og ég byrjaður að troða marvaðann í djúpu lauginni. Ég skal alveg viðurkenna það að ég get ekki farið orðrétt með fyrirlestrana sem ég sat í þessari viku, en þetta kemur allt – humm... Ég velti því mikið fyrir mér hvernig ég geti talað sem mesta dönsku, skásta hugmyndin sem ég hef fengið hingað til er að byrja að sækja kirkuna hérna í nágrenninu, sem ég helda að sé jésúíta kirkja eða e-ð slíkt. Síðan mundi ég þurfa að hitta prestinn reglulega til að fá uppfræðslu í trúnni og í kjölfarið taka þátt í umræðuhópum nokkrum sinnum í viku. Líst ykkur ekki vel á þetta? Það er sunnudagur á morgun svo kannski við Grímur skellum okkur?

Talandi um Grím Loga þá er hann að gera góða hluti hérna í Danmörku. Hann skríður um allt og stendur upp hvar sem hann getur. Það hefur því hentað honum prýðilega að hafa pappakassa um alla íbúð. Fram að þessu hefur Grímur verið mikill rólyndis piltur en með sínu nýfundna frelsi þá er hann orðinn hinn mesti gaur og veður áfram með fyrirséðum afleiðingum, þeim að detta á hausinn. Í gær valt hann um koll í raftækjaverslun og lenti á trébretti svo eyrað rispaðist og bólgnaði aðeins. Í morgun þegar við feðgarnir áttum saman góða stund og Grímur lék sér með boltan sinn þá datt hann fram fyrir sig og efrivörin er nú tvöföld. Hann er því flottur á velli strákurinn minn þessa stundina. Annars er þetta nú í góðu lagi, verra er að karl greyið er orðinn kvefaður með tilheyrandi pirringi, varð það bara í dag.

Kv.
Hallur

11 ágúst 2006

This just in !

Hallur kom til landsins í nótt!

Erum á fullu að ganga frá í íbúðinni!

Gámurinn var að koma!

Búin að setja inn myndir frá Svíþjóð og Danmörku!
http://www.flickr.com/photos/hildigunnur99/sets/

Erum að fara í Skorradal í bústað í eina nótt!

Enginn gamli ís [6.ágúst]

Dóh! Fór út áðan til að verðlauna mig fyrir ómælda vinnu í búslóðapakkningum,búin að líma fyrir kassa númer 52. Trítlaði í ísbúðina frægu hér í vesturbænum til að fá mér gamla ísinn og það var lokað,algjört skúffelsi! Sá að fleiri voru í sömu erindagjörðum og ég. Það var ekki einu sinni opið í ísbúðinni á Furumelnum þannig að ég endaði á stórum,grænum Hlunki í Select. Og nú heldur baráttan við svefnherbergið áfram...

07 ágúst 2006

Í kapphlaupi við tímann [4.ágúst]

Man ekki hvort ég hef hér áður líkt móðurhlutverkinu við að vera Formúlu kappaksturstöffari,maður er sífellt í kappi við tímann: hafa morgunmat til handa unganum þegar hann bíður óþolinmóður og kvartar...drífa sig út í vagninn með allt okkar hafurtask á meðan að unginn er ekki til í að dunda sér einn og vælir og skammast...þið skiljið hvert ég er að fara. Nú hefur bæst við að pakka niður einni búslóð,ég og Grímur erum komin heim og Hallur varð eftir í Danmörku að tækla dönskuna. Pakka niður eitt stykki búslóð með einn 7 mánaða sem er kominn með mömmuveikina?...ekkert mál!

Grímur hefur reyndar verið í pössun hluta af degi mánudag til fimmtudags og svo fékk ég smá pössun í dag og mamma er búin að taka 2 fínar rispur með mér í pökkun, sem betur fer fæ ég aðstoð,því annars gengi ekki neitt.

Við höfðum rosalega fínt á ferðalagi í Svíþjóð og Danmörku,í hita og sól. Fórum fyrst til Stokkhólms til vina okkar,Magnúsar og Sædísar,vorum þar þrjú pör ásamt börnum. Þar var haft það gott,röltað um borgina,fórum á Astrid Lindgren safnið að heimsækja Línu Langsokk,borðuðum fullt af góðum mat og kældum okkur í barnalauginni í garðinum.

Svo tókum við lest til Árósa til Garðars,vinar Halls og fjölskyldu. Þar fórum við á Aros,svaka flott listasafn,skoðuðum sögulega gamla bæinn,röltum um miðbæinn,sem er mjög huggulegur ... nú og borðuðum og drukkum smá bjór,hvað annað...

Lokaáfangastaður var Kaupmannahöfn,tilvonandi heimabær okkar. Þar vorum við í lítilli stúdíóíbúð lengst hjá flugvellinum (sem að sumir aðrir en ég pöntuðu,ahömm..). Þar byrjaði Hallur í dönskukennslu og við höfðum líka tíma til að skoða okkur um út um allt,miðbænum,Norrebro,Íslandsbryggju og videre. Við náðum að skoða nýju (leigu)íbúðina okkar í Frederiksberg og svipuðumst um í hverfinu og leist mjög vel á.

Tveir kassar í viðbót áður en ég fer í háttinn og á morgun heldur baráttan áfram.

03 júlí 2006

Hvað gerir Grímur? 3 [3. júlí]

Litli snáðinn byrjaði fyrir alllöngu að snúa sér af bakinu á magann. Einn sólríkan dag vorum við á ferðinni út um allan bæ eftir jóga tíma,Grímur svaf í vagninum á meðan við röltuðum í gegnum Laugardalinn og kíktum í dótabúðina Einu sinni var,í Skeifunni. Svo hoppuðum við upp í strætó á Grensásinum,enduðum á Hlemmi og spókuðum okkur á Laugaveginum. Þar fórum við inn í sniðuga búð sem heitir Sipa og er m.a. með æðislegt barnadót. Ég hélt á Grími inni og var svo fegin þegar sá gúmmímottu svipaða og vð eigum og lagði Grím á hana. Það var dót á mottunni sem Grími fannst greinilega spennandi og var að teygja sig í það,ég leit af honum andartak og svo sá ég að hann var kominn á magann! Duglegur strákur.

Hann var fyrir löngu byrjaður að snúa sér af maganum á bakið,enda var ekki gaman í gamla daga að vera á maganum. Svo um þetta leyti sem hann fór að snúa sér á magann,tók hann góðu pásu í því að snúa sér á bakið. Maður verður stundum að einbeita sér að einum hluti í einu.

Svo byrjaði hann að sitja 6 1/2 mánaða,einhvern veginn gerðist það 'allt í einu'. Hann var búinn að vera dálítið í Bumbo stólnum,þótt hann hafi ekki verið í ógurlegu uppáhaldi. Hann endaði gjarnan á því að hanga af hliðinni að skoða gólfið við hliðina á sér. Það er þvílíkur munur að geta rannsakað heiminn uppréttur, í staðinn fyrir að vera sífellt á bakinu. Nú getur hann líka dundað sér meira einn og maður sér mun á því,hvað hann getur verið aðeins lengur að bardúsa einn með t.d. leikfang.

Þegar maður er orðinn góður í að sitja,er maður sáttari við að vera í matarstól,eins og Tripp Trapp stólnum og það er gott að skella sér í hann og fylgjast með mömmu t.d. inni í eldhúsi,ef hún er að bardúsa þar.

28 júní 2006

Birkibælið til Danmerkur

Nýjustu fréttir eru þær að við fjölskyldan erum á leiðinni til Danmerkur í haust! Hallur ætlar að skella sér í mastersnám við Copenhagen Business School sem að tekur rúmlega 2 ár. Ég ætla að klára fæðingarorlofið þar úti og fara vonandi á söngnámskeið eftir áramót.
Já,það verður nóg að gera á næstunni...förum í heimsóknir til Svíþjóðar og Danmerkur að heimsækja vinafólk í Stokkhólmi,Árósum og Kaupmannahöfn. Hallur verður líklega eftir í Köben og fer í stresskasti heim að pakka búslóðinni niður,he,he. Svo förum við til Lanzarote í ágúst og svo er komið að því að færa sig yfir til Danmerkur,þvílíkt spennandi og nú þarf að efla í sér ofurmömmuna að græja okkur fyrir haustið.

Annars var ótrúlega ljúft í Englandi eins og hefur komið fram. Svo komum við heim í rigninguna og í raun búin að hafa það fínt þrátt fyrir dropana. Grímur Logi er svo ótrúlega skemmtilegur finnst manni,alltaf að koma betur í ljós persónuleikinn og svo byrjaði hann að sitja í þar síðustu viku,6 og hálfs mánaða gamall. Svo verður friðurinn alveg úti þegar hann fer að ferðast um á fjórum,ja hérna - ef maður heldur að það sé annasamt núna að vera með krílið sitt:)

Hér er Grímur daginn eftir að varð 6 mánaða,tók út töluna 6 úr leikmottunni sinni,hefur aldrei gerst áður og tók akkúrat rétta tölu,þvílíkur snillingur! (myndavandræði á blogger arg)

Um helgina komu pabbi,Ragna Margrét og Ingólfur Páll í grillmat hingað til okkar. Var með þvílíkar gott lambafille ribey,eins og kallaðist í kjötborðinu með asískri hoisin sósu,umm,nammi gott. Svo var heimabakað brownies í eftirrétt sem við Ingólfur Páll göldruðum fram.

Á morgun á að stússast í bænum,kaupa afmælisgjöf og kannski dálítið á Grím (uss,ekki segja Halli)...

12 júní 2006

Yndislegt í Englandi

Við Grímur höfum það einfaldlega yndislegt í Englandi með Elísabetu vinkonu og fjölskyldu hennar í Kent (ca 50 mín í lest frá London). Við erum búin að slappa hér af og fara í næsta stærri bæ,sem heitir Tunbridge Wells,skoðuðum okkur þar um,borðuðum kvöldmat einu sinni og daginn eftir plataði ég Elísabetu á 'farmer's market',n.k. matarmarkað og svo löbbuðum við um og ég verslaði,aðallega á Grím. Nú er svo ferlega gaman að kaupa föt og leikföng handa litla gaur.

Svo er Arngunnur systir búin að vera með okkur líka. Hún kom hingað á föstudagskvöldið og það voru miklir endurfundir hjá okkur og Grími á lestarstöðinni. Hún fór svo aftur að vinna daginn eftir og kom í gær sunnudag,með kærastanum sínum Alden. Við vorum hér í gær í góðu eftirlæti,spjölluðum,skoðuðum okkur um og borðuðum góðan mat í þvílíkt góðu veðri. Ég átti von á um 20-24 stiga hita en það er búið að fara upp í tæp 30 stiga hita,alvöru hiti þakka þér fyrir.

Planið er að taka því frekar rólega í dag,kíkja kannski í garða sem eru rétt hjá. Arngunnur kemur aftur í dag og planið er að fara rúnt á morgun.

Grímur er þvílíkt búinn að slá í gegn hér,er algjör smellur. Það heyrist bara hvað hann er góður og sætur og bestur ... og ég veit ekki hvað:)


Við förum aftur heim á miðvikudaginn...flugið hingað gekk rosalega vel - ég var búin að kvíða örlítið fyrir fluginu, en Grímur svaf á leiðinni út á völl og á meðan ég tékkaði mig inn,fékk að drekka við flugtak,var svo þvílíkt hress og sprellandi,töluðum aðeins við 2 mömmur og börnin þeirra,svo sofnaði hann um hálftíma fyrir lendingu...vonandi gengur líka vel flugið á heimleiðinni.

07 júní 2006

Förum nú til útlanda!

Mikið var að heyrist í okkur! Það eru örugglega allir hættir að fylgjast með. Eftir hálftíma brunum við frá Birkimelnum og upp á Keflavíkurvöll með viðkomu hjá Sýslumanninum í Keflavík,þar sem sótt verður nýja vegabréfið hans Gríms. Við Grímur ætlum að vera í viku hjá Elísabetu í Englandi,í Kent,í sveitasælunni. Lofum að vera dugleg að skrifa fréttir þegar komum til baka. Var að bæta við nýjum myndum og nóg af fleirum á leiðinni. Auf Wiedersehen darling sweety pie!

P.S. Grímur var fyrir 4 mínútum að meiða sig í fyrsta sinn,var á gólfinu inni í stofu,ég heyrði sáran og snöggan grát og hljóp inn í stofu,þá hafði greyið skollið með höfuðið á neðstu hillu við hliðina á leikteppinu. Sem betur fer var þetta sárasaklaust en þessari mömmu brá heldur betur!

05 maí 2006

Pestin farin og vorið að koma (eða bara sumarið beint)

Ekki búið að vera mikið að gerast í blogginu undanfarið,en nú á að ráða bót á því. Það var minna um að gerast en venjulega ca 2 vikum eftir páska,á meðan ég var að jafna mig á ferlegri pest,við erum komin almennilega aftur af stað núna. Reyndar var ég snýtandi mér í morgun og Grímur búin að vera með hósta,humm...

Erum núna á mömmujóganámskeiði nr.2,tók mig einmitt til á miðvikudaginn og tók strætó á miðvikudaginn í tíma,í staðinn fyrir að fá bílinn,það heppnaðist mjög vel,er fljótlegt og auðvelt. Þá gat ég líka látið Grím fara beint að sofa eftir tímann.. fór á Maður Lifandi með nokkrum úr jóganu í hádeginu og svo tókum við okkur til og löbbuðum heim,var samferða einni niður í bæ og svo dóluðum við Grímur okkur eftir það. Hann tók reyndar upp á því að vakan og gera stórt eftir einungis klukkutíma lúr þannig að honum var vippað inn á snyrtinguna á Kaffitári og svo tók ég með mér einn kaffi latté,nammi namm.

Það gengur mjög vel hjá okkur í ungbarnasundinu,Grímur er farin að njóta tímans enn meir,busla og brosar. Fór í kaf í þar síðasta tíma og tvisvar í síðasta tíma. Í þar síðasta setti Ólafur leiðbeinandi í kaf og svo í síðasta tíma setti ég hann fyrst og svo Hallur. Maður er smá nervus,en það gekk mjög vel. Reyndar eru þessar kafdýfur ekki aðal málið finnst mér,held bara að Grímur (og við) hafi mjög gott af þessu og styrki Grím,fyrir utan að vera gaman og örvandi fyrir hann.

Hér á Birkimel er vorhreingerning byrjuð,reyndar verður þetta algjör herferð,segi ykkur betur frá því síðar.

Er núna að setja inn fleiri myndir,er búin að vera löt í myndunum undanfarið,þetta kemur allt með vorinu.

25 apríl 2006

Sjálfsafgreiðsla í dag

Venjulega er hann Grímur mjög duglegur að sofa á nóttunni,eins og hefur kannski komið fram. Í gærkvöldi sofnaði hann um 11 áður ég byrjaði einu sinni á að syngja háttatímalagið 'Dvel ég í draumahöll og dagana lofa...'. Var afskaplega ánægð með þetta,en svo glaðvaknaði minn þegar við fórum að sofa kl. 1. (Já,ég veit,ég þarf að fara fyrr að sofa:) Þar sem við Hallur vorum sannfærð um að hann væri ekki svangur,heldur að láta reyna aðeins á okkur 'glímdi' Hallur við hann í um tvo tíma,ég var komin fram í sófa með sængina,enn slöpp eftir kvefpestina og að 'farast' úr hálsbólgu. Svo blundaði litli kútur þangað til ég læddist upp í rúm,kl.4 og þá var komin á drekkutíma. Svo hélt það fyrir mér vöku,hvað það var ferlega vont að kyngja,böhö átti svo bágt.

Kl. 7 vaknaði svo litli kútur og í fantastuði - ég stakk upp á að fengi frí í dag og það væri bara sjálfsagreiðsla á brjóstamjólkina. Hann íhugaði tilboð mitt og hafnaði því. Ég var s.s. virkilega mygluð þarna í morgunsárið.

En það er bjartara yfir núna,við fórum í göngutúr með Grím í Baby Björn burðarpokanum,komum við í Melabúð og eftir það steinsofnaði minn og liggur nú í vagninum við opna svalahurð. Ég er pásunni feginn og sötra minn pilsner (bara til að örva mjólkurframleiðslu:),um að gera að styðjast við svona skemmtilega mítu) og narta í sesambrauðsneið með geitaosti,nammi,namm.

20 apríl 2006

Ein flensa,tveir úr leik

Við fjölskyldan erum nú í rólegheitum heima,alveg sérlega miklum rólegheitum,þar sem að við Hallur liggjum í andstyggilegri flensu. Grímur er þó sem betur fer hress.

Við vorum fyrir norðan yfir páskana,í bústað sem er hinum megin við fjörðinn frá Akureyri,mjög skemmtileg staðsetning. Þar slöppuðum við af,röltum um bæinn,fórum í sund og nörtuðum í páskaegg. Borðuðum páskamatin með móðursystur hans Halls og fjölskyldu. Við enduðum reyndar kvöldið á spítalanum til að láta kíkja á Grím,hann hafði verið slappur,farin áð leka úr nefinu og með gröft í augunum. Það var sem betur fer ekkert alvarlegt,hann var með fimm kommur en annars í lagi með hann.
Ég var reyndar þá komin með sömu sýkingu í augað og að verða slöpp,lak úr augunum og ég vaknaði annað slagið um nóttina með samanlímd augun,mjög geðslegt.

Vonandi förum við að skríða saman, á morgun er 75 ára afmælisveisla hjá ömmu Halls og við viljum mæta með bros á vör.

12 apríl 2006

Nóg af myndum og þarf ekki lengur lykilorð

Er núna nóg inni af nýjum myndum á http://www.flickr.com/photos/hildigunnur99 - ég breytti uppsetningunni þannig að núna þarf ekki að skrá sig inn með notandanafni og lykilorði til að sjá nýjustu myndirnar,það reyndist allt of flókið. Áður þurfti bara að skrá sig á einfaldan hátt hjá flickr.com,en núna þarf maður að skrá í leiðinni netfang hjá Yahoo og er það of flókið til að allir nái því.
Kíktu því á myndirnar!

Vor í lofti

Nú er vorið á næsta leiti,ég finn það í beinunum. En hvað ég hlakka til.

Við fórum í fyrsta tímann í ungbarnasundi í Reykjalundi hjá honum Ólafi í gær. Við höfðum farið með Grím í sund sjálf í annað sinn á laugardaginn,í Árbæjarlaugina. Sundið gekk mjög vel í gær - Hallur var á Laugarvatni í vinnuferð,þannig að pabbi kom með ofan í laugina og Ingólfur Páll bróðir og Ragna Margrét,konan hans pabba komu með,varð að heljarinnar fjölskylduferð. Mér líst virkilega vel á þetta,aðstaðan er frábær í nýlegri laug frá 2002 í stórum og björtum sal. Grímur tók þessu mjög vel,var orðin aðeins pirraður,því að var búin að vaka í þó nokkurn tíma,byrjuðum nefnilega á kynningu kl.5 og biðum svo til hálf sjö eftir tímanum okkar.

Mér sýnist að það sé skylda að fara út á eftir,litli andarunginn er sofandi núna en við skellum okkur út á eftir með vagninn.
Hafið það gott um páskana:)

31 mars 2006

Svefn hjá litlum snáða

Í dag fórum við í göngutúr í bæinn í sólinni,sinntum hinu og þessu og hittum Sólveigu og Dúnu og fengum okkur hressingu á Te og Kaffi.

Ég er aðeins að fikra mig áfram með að koma rútínu á daginn hjá Grími,er reyndar komið í grófum dráttum,en vil hafa meira ákveðið hvernig er t.d. farið að sofa á kvöldin. Ég var svo ánægð þegar hann var minni,að sofnaði jafn vel sjálfur yfir daginn,en það er nokkurn veginn liðin tíð. Er að gera tilraunir með þetta núna og hann mótmælti vel og lengi í morgun og svo aftur seinni partinn,þegar hann var voða þreyttur og þurfti að sofna. Hann vildi líklega sofna í fanginu á mér,en ég lagði hann í vögguna,hann fór að gráta og ég tók hann upp eftir dálitla stund..og setti hann niður..og tók hann upp,o.s.frv. Er núna að lesa 'Draumaland',ný bók,eftir íslenskan svefnfræðing.

Ef þið sáuð ekki þáttinn Milli 6 og 7,á Skjá Einum í dag,var Sigrún vinkona þar. Hún og John,maðurinn hennar,eru með búð í Ingólfsstræti sem heitir Börn Náttúrunnar,er opið fimmtudaga-laugardaga. Þau eru með frábær leikföng og fatnað úr ull og silki fyrir börn og fullorðna,,bækur o.fl. Er frábær búð hjá þeim og góð hugsun að baki. Kíkið endilega á búðina - til að skoða,spjalla.. og hvað þá ef ætlið að kaupa gjöf handa barni,eru með svo mikið af fallegu og sniðugu.

28 mars 2006

Hvað gerir Grímur? 2

Strákurinn fór fyrir viku að nota báðar hendur saman meira og færa hluti að munninum. Hvert annað?

Það er mjög spennandi þessa dagana að japla á höndunum og troða þeim jafnvel báðum upp í sig,nammi,namm.

Er mun duglegri að vera á maganum,dugar núna í smá tíma í einu og kvartar ekki strax.

Fylgist líka enn betur með umhverfinu og teygir sig í hluti,eins og leikföng,skrautlegt box og gallabuxur sem hanga fyrir framan hann.

Er svo auðvitað yndislegur eins og alltaf. Finnst voða gaman þegar mamma hans fíflast í honum og hlær þegar hún setur andlitið að andlitinu hans,tekur utan um hendurnar hans og hristir höfuðið og framkallar skrýtin hljóð:)

Pizzufjölskyldan

Dálítið síðan að var ritað hér síðast,kannski af því að fæ á tilfinningunni að þessi dagbók sé ekki mikin lesin,böhö ég á svo bágt.
Er nýkomin inn,kom heim áðan með Grím frá mömmu um 8 leytið,stormaði svo út aftur eftir að hafa skellt honum í bað,varð bara að fá smá mömmu frí:) Brunaði á Iðu og kíkti aðeins í blöð og kom svo heim endurnærð,hvernig ætli það sé að vera með tvö eða þrjú börn!:) Tja,þetta kemur alla vega með æfingunni.

Við fórum í mömmujóga í morgun og vorum svo á flakki á bílnum,aldrei þessu vant. Venjulega erum við brummandi um með Grím í vagninum.

Hvað á ég að segja frá?... Það var fín hjá okkur helgin,fórum upp á Skaga á föstudaginn; á laugardeginum fór ég í frábæran jógatíma og svo fórum við fjölskyldan í göngutúr niður í bæ og fengum okkur hádegismat á Hressó. Um kvöldið notuðum við svo í fyrsta sinn spes pizza stillingu og pizzasteinn á flottu SMEG eldavélinni okkar. Pizzan var þvílíkt góð og var tilbúin á 3 mínútum með ekta flottum botni,nammi,namm,þetta verður endurtekið fljótlega.

16 mars 2006

Grímur litli er 3 mánaða - og á súpermömmu

Litli kúturinn okkar er orðinn 3 mánaða,mikið er tíminn fljótur að líða. Eins og venjlega höfum við það fínt. Við fórum í 3 mánaða skoðun 14. mars og þá var Grímur 6,6 kíló og 63,5 cm,sem sagt í góðu standi. Hann fékk líka sprautu í rassinn og það var sem betur fer sársaukakalaust.

Við fórum í jóga í morgun og vorum svo á flakki í dag. Ég skrapp aðeins að útrétta og fór í Bónus - og á meðan var Grímur hjá Sólveigu frænku sinni. Ástæðan í súpermömmu tilvísunina er að það er ekki nóg að ég burðist hér upp og niður fjórar hæðir með ungann og það sem honum tilheyrir,heldur þurfti ég að koma Bónusbirgðum hér upp í dag. Hafði eins og kjáni ekki sett allt í poka,heldur í pappakassa,svona til að vera sniðug(!) og þurfti svo að þrælast langa leið úr bílnum vegna framkvæmda alveg við húsið og stíga jafnvægisdans yfir tréplanka sem er yfir heljarinnar skurði fyrir framan húsið með allt saman. Eins og ég er ánægð með íbúðina mína leiddi ég hugann að því að væri jafn vel sniðugt að hafa þægilegt og nútímalegt lyftuhús:) Þá er röfli dagsins lokið,ég verð þreytt bara að hugsa um þetta.

Grímur er núna sofandi,sofnaði fyrir hálf ellefu þessi elska,eftir nudd og bað,ekki slæmt líf. Við förum í annan tíma af fjórum í ungbarnanuddi á morgun. Hann var eins og engill síðast,gaman að sjá hvernig verður á morgun. Ég væri alveg til í tásunudd núna sjálf...

11 mars 2006

Yndislegt í sundi

Ég var að koma úr sundi í Laugardalslauginni,skellti mér skömmu fyrir lokun eftir síðustu brjóstagjöf dagsins. Það er alltaf jafn frábært að fara í sund og heita pottinn,hvað þá þegar maður er lúin mamma.
Við Grímur vorum frekar róleg í dag. Mér finnst alltaf þurfa að taka til og snyrta þannig að ég ákvað að taka til hendinni í dag og gefa mér frí um helgina. Samkvæmt pistli í Blaðinu í vikunni,eru einmitt heimilisþrif helsta deiluefni á heimilum. Ég ætla að bíða og sjá núna hvort húsbóndinn á heimilinu gangi frá í eldhúsinu eftir að húsmóðirin fór út í búð og eldaði,þetta er mjög spennandi... :)

08 mars 2006

Í útlegð,dagur 2

 
Hér fyrir ofan eru svipmyndir frá síðustu dögum,nokkrar frá rúntinum á Kleifarvatni og ein af Rakeli Mirru þar sem hún virðist ætla að gleypa litla frænda sinn.

Í dag var dagur 2 í útlegð okkar Gríms vegna framkvæmda í blokkinni. Nú fórum við út með Grím í vagninum. Það leit ekki vel út veðurfarslega séð þannig að ég stefndi á Kaffitár. En viti menn,þegar við komum út kom sólin úr felum og við náðum smá göngu í sólinni áður en ég settist á Kaffitár og fékk mér kaffi latté,sem virðist vera orðinn skyldudrykkur þessa dagana. Röltum svo í miðbænum og keyptum afmælisgjöf handa mömmu og sitt hvað fleira. Heimsóttum líka Sigrúnu vinkonu,sem var að opna nýja búð í Ingólfsstrætinu,þar sem Pjúra var,hún heitir Börn náttúrunnar og er með frábær föt og náttúruleg leikföng. Endilega kíkið þangað, það er líka hægt að fá Sigrúnu í heimakynningu. Hún ætlar einmitt að kíkja á foreldramorgun (meira 'politically correct') en 'mömmumorgun' í fyrramálið í Neskirkju,gaman,gaman. Posted by Picasa

07 mars 2006

Mamma á afmæli í dag!

Það er að segja mamma mín:) Til hamingju með afmælið elsku mamma mín og æðislega amma.




Sólrík helgi / Brjálaður hávaði

Við fjölskyldan höfðum það virkilega gott um helgina. Á laugardeginum fórum við með vinnunni hans Halls og keyrðum rúnt á Reykjanesi í virkilega fallegu,köldu og sólríku veðri. Var virkilega gott að koma út fyrir þéttbýli. Enduðum svo í Tomma-búllu-hamborgurum hjá mömmu og Bjarna.

Á sunnudeginum fórum í við í hraðgöngu með vagninn fyrir langa kaffihúsaferð á hverfisstaðnum mínum,Kaffitári á Þjóðminjasafninu. Mæltum okkur þar mót við Guðmund,Rögnu Hlín og Erlu Hlín. Höfðum það dejligt í sól með kaffi latté.

Við erum byrjuð í mömmujóga og fórum í morgun með Sólveigu og Rakel Mirru. Svo komum við heim og Grími var skellt út í vagn. Bókstaflega þegar ég ætlaði að loka aðeins augunum uppi í sófa byrjuðu þvílíku lætin í kjallaranum,það eru byrjaðar framkvæmdir í blokkinni,taka á í gegn skólplagnir og lagnir. Það var svo þvílíkur hávaðinn hér fram eftir degi,ég gafst á endanum upp og fékk Hall t.a. sækja okkur. Ég mun líklega ekki vera mikið heima við á morgun eða út vikuna.

Best að koma sér upp í rúm,Grímur hefur fært háttatímann sinn fram til klukkan 11 í staðinn fyrir rúmlega 12 eða hálf eitt,sem er að sjálfsögðu gott mál,þarf reyndar að vakna um 5 til að gefa sjúss,en ekki kvarta ég undan svoleiðis.

02 mars 2006

Grímur hló - tvisvar!

Já,elskurnar mínar,gullunginn hló eins og ekkert væri sjálfsagðara fyrr í kvöld. Ég var að hafa hann til fyrir bað og var að strjúka af undir handarkrikanum og hann bara hló! Endurtók svo leikinn þegar ég strauk honum aftur. Þetta var einfaldlega yndislegt, ég varð meyr að innan :) Svo fékk hann sitt bað og leið ansi vel í baðfötunni sinni,honum finnst samt alltaf jafn ferlegt þegar hann er kominn upp úr,þegar hann er þurrkaður og klæddur,greyið litla. Hann sofnaði eftir átökin í vöggunni þegar pabbi hans var búin að græja hann.

Annars er fínt að frétta úr hreiðrinu. Menningarlegt uppeldi gullungans eftir setningu Vetrarhátíðar, hélt áfram á föstudagskvöldið,á safnanótt,sem var partur af Vetrarhátíðinni. Við slóumst þrjú í för með Sólveigu,Njalla og Rakel Mirru og mættum á Þjóðminjasafnið - hlustuðum þar á Þórarin Eldjárn rifja upp æskuminningar,fórum svo á Listasafn Íslands,Hafnarhúsið og Ljósmyndasafn í Grófarhúsinu. Grímur var sæmilega sáttur,vildi reyndar endilega komast úr vagninum í Listasafni Íslands,hann var greinilega áhugasamur um verk Gunnlaugs Blöndals,endaði svo á góðum blundi á Ljósmyndasafninu.

Á laugardagskvöldið skruppum við í fyrsta sinn í burtu frá unganum. Við fórum á Food and fun á Grillinu á Hótel Sögu. Það var mjög ljúft að snæða flottan kvöldverð saman. Amma Hanna og afi Sturri pössuðu Grím,hinu megin við götuna og gekk mjög vel.

Í gær fórum ég og Grímur í sund í ótrúlega góðu veðri og sólskini í Vesturbæjarlauginni. Hann svaf reyndar í vagninum á meðan skammt frá sundlaugarbakkanum. Hann ætlaði að mótmæla eftir að ég var búin að parkera vagninum,en ég leit á glampandi sundlaugina og rjúkandi heita pottinn og sárbað hann um að hleypa mér ofan í ,sem hann og gerði. Ég rak upp gleðióp ofan í kafi í sundlauginni þegar ég stakk mér til sunds,líkt og selur að sleppa úr Sea World.

Við byrjuðum í mömmujóga á mánudaginn,þá mætum við mömmurnar með ungana og gerum jóga og æfingar og svo fá krílin smá leiktíma líka. Þeim finnst þetta voða gaman þótt að þau láti líka heyra vel í sér stundum.

Ég er enn þá að jafna mig á hlátrinum áðan,hverju tekur Grímur upp á næst?

24 febrúar 2006

Nærst í kirkjum landsins

Grímur fór á flakk hingað og þangað til eins og gerist stundum hjá okkur. Mig vantaði café latté skammt fyrir hádegi og dreif okkur tvö á Kaffitárið. Grímur var ekki til í að sofa lengi,þannig í miðjum bolla dreif ég hann inn og hann fékk líka næringu. Örkuðum svo í Byko að kaupa peru í nýja flotta lampa húsbóndans (keypti illa flotta náttborðslampa í Húsasmiðju eftir mikla ljósaleit - með dimmer,mjög barnvænt),svo kom Helga ljósmóðir í heimsókn. Grímur var ekki vigtaður þar sem við vildum ekki vekja hann,þannig að við spjölluðum bara í þetta sinn.

Mamma kíkti svo í heimsókn og fékk Gríms-skammtinn sinn. Hallur kom svo heim og töfraði fram Fylgifiskarétt. Eftir matinn drifum við okkur niður í bæ á Vetrarhátið. Við vissum reyndar ekki af henni fyrr en klukkan hálf átta,þannig að við misstum af setningunni en við kíktum þó í ráðhúsið,á Nasa og sáum virkilega seiðandi magadansmeyjar og í Fríkirkjuna,þar átti að vera djassaður orgelleikur,en hann var algerlega sveiflulaus. Þar fékk Grímur að drekka,er í annað skiptið á minna en viku sem hann fær að nærast í kirkju,síðast var það í skírninni hans Theodórs Inga,verðandi leikfélaga.

Það er kominn vorfiðringu í mann,frábært veðrið í dag. Ég skrapp einmitt út á svalir með Grím vafðan í teppi þegar að kom alvöru sólargeislar í dag. Honum fannst þetta allt of mikil birta,pírði augun og hjúfraði sig að mömmu sinni.

22 febrúar 2006

Grímur og pabbi hans tala saman









Posted by Picasa

Hvað gerir Grímur? 1

Þetta mun vera gangandi pistlaröð og er aðallega fyrir mig og þá sem hafa áhuga á þroskaferli ungabarns,ætla hér að punkta niður hvað hann Grímur Logi elskan er farinnað gera og hverju hann tejyr upp,sem er að sjálfsögðu eitthvað sem foreldrar (lesist:ég) fylgjast náið með og geta skemmt sér endalaust yfir.

Grímur byrjaði að brosa á ca 3 viku og þróaðist í enn greinilegri og skemmtilegri bros á fjórðu viku. Maður var nefnilega ekki alveg viss hvað væri í raun akkúrat fyrsta alvöru brosið,þetta rennur örlítið saman við svona 'gas'bros. Fljótlega byrjaði hann að sýna sólskinsbros þegar hann vaknaði á morgnana og svo fór að hann að brosa meira yfir daginn og seinna meir í bland við misgóð sköp eins og þegar var frekar óánægður eða þegar var að kvarta yfir því að vera settur á magann. Ég man vel þegar ég sat með hann í sófanum og fékk að mér fannst fyrsta flotta brosið - ég barasta táraðist,mér fannst þetta svo yndislegt.

Svo aðeins seinna byrjaði hann að hjala,þeta klassíska 'aguuu' kom og svo eru fleiri hljóð núna í bland ásamt n.k. skræk sem er gerður á innsoginu. Honum finnst sérlega gaman að spjalla við pabba sinn,enda er pabbi hans með fallega baritón rödd og vel ræðinn:) Ég læt einmitt fylgja með myndir sem ég tók í gærkvöldi þegar þeir feðgar tóku spjall fyrir háttinn.

Í gær þegar ég var að baða hann fannst mér ég heyra vísi að hlátri sem var svona á innsoginu í tveimur pörtum og í dag annan svona vísi - ekki á innsoginu nota bene. Já,það verður að taka eftir þessu í minnstu smáatriðum:)

Grímur byrjaði fannst mér strax að sperra sig þegar maður hélt á honum,man það frá því á öðrum degi á spítalanum. Núna heldur hann ansi vel hausi,þótt hann sé auðvitað ekki alltaf alveg stöðugur.

Eins og ég minntist á er ekki sérlega vinsælt að liggja á maganum,hann er settur í þá stellingu aðeins yfir daginn til að æfa hann. Hann gefur frá sér alveg spes hljóð þá,svona kvörtunar-ungahljóð en þó fær maður smá glott í bland.

Akkúrat 2 dögum áður en Hallur kom heim frá Danmörku,s.s. 8. febrúar,tók ég eftir því að Grímur var að skoða útrétta hönd sína á meðan hann lá á skiptiborðinu og hendurnar hafa verið mjög vinsælar síðan.

Síðast en ekki síst hefur hann sofið 7-8 tíma samfellt á nóttunni síðastliðnar 5 nætur,reyndar 'bara' um 6 tíma í nótt. Maður prísar sig sælan á meðan á þessu stendur.

Þetta eru punktar sem eru að miklu leyti til fyrir mig,maður er svo latur að punkta svona niður á blað. Þetta er jú dagbókin hans Gríms!

21 febrúar 2006

Grátt og blautt


Maður þarf að vera staðfastur þegar kemur að því að fara í daglega göngutúra,þegar grátt er og blautt úti. Við Grímsunginn fórum út í dag,hann í notalegheitum í Emmaljunga glæsivagninum og ég þrammandi í pollum. Byrjuðum á því að sækja heim Kaffitárs kaffihúsið í Þjóðminjasafninu,erum nýlega búin að uppgötva það,mælum með því. Þar fékk ég mér hádegismat og var hálfnuð með Café Latté þegar Grímur kvartaði úti í vagni,þá tók ég hann aðeins úr vagninum,svolgraði í mig restina af kaffinu (nei,ekki heitu yfir barninu!) og dreif mig út. Þá var ekki lengur rigning heldur demba,en ég var ekki við það að gefast upp,ó nei. Hagsýna húsmóðirinn var búin að taka Bónuslax úr frystinum og hann skyldi eldaður um kvöldið! Kom svo heim hundvot og blaut,sem betur fer var unginn til í að sofa aðeins lengur.

Fljótlega eftir þetta kom Rakel vinkona í heimsókn með Dag sinn og við ræddum að sjálfsögðu um börn okkar,svefn- og matarvenjur og slíkt.


Við komum heim úr Skagasælunni seint á laugardagskvöldið,vikan var svaka fín hjá okkur í stórfjölskyldufíling. Kíkti í bæinn einn dag en var þar fyrir utan á Skaganum að dunda hitta og þetta. Það var farið í göngutúra (ok bara einn),í heita pottinn,eldað í liðið,farið yfir stærðfræðiverkefni,fórum í mat bæði til Sigga tengdó og Dúnu ömmu o.fl. Var fín tilbreyting að fara aðeins að heiman.

13 febrúar 2006

Í Skagasælunni

Þá erum við komin á Skagann,ætlum að vera hér af og til á meðan húsráðendur,þ.e.a.s. Hanna og Sturri,eru skíðandi um í Ítölskum alpabrekkum. Við komum hingað úr bænum í gær eftir verslunarstopp í Kringlunni. Ég verslaði í matinn fyrir lasagnað sem eldað var áðan. Það er alveg óþolandi þegar maður ætlar að vera hagsýn húsmóðir og versla í Bónus,að maður endar alltaf í annarri búð líka,því að það fæst ekki allt sem að þarf ef maður er að versla fyrir ákveðin rétt. Ég byrjaði á því að fara sönglandi inn í Bónus,svo var ekki einu sinni til gratínostur,parmesanostur eða tómatpúrra,þannig að ég endaði á því að klára innkauping urrandi í Hagkaup!

Ég eyddi meginpartinn af deginum í dag að elda tvöfaldan skammt af lasagna,Grímsunginn skoðaði umhverfi sitt og svaf um 3 tíma úti í vagni,ekki slæmt líf það. Amma Dúna og afi Hallur (Halls) komu í mat og borðuðu með okkur,Sólveigu og Dúnu. Svo var horft á fína mynd á DVD og smjattað á franskri súkkalaðiköku frá því um síðustu helgi. Ég endaði kvöldið á því að fara í heita pottinn,oh,alveg yndislegt.

09 febrúar 2006

6 kíló af gulli



Jæja og já,þá er heljarinnar afmælis- og skírnarveisla um helgina afstaðin. Það var nóg að gera þar áður við að undirbúa veisluna,bæði hjá okkur og fleirum í fjölskyldum okkur sem lögðu hönd á plóg,takk kærlega fyrir það:) Á fimmtudaginn fór ég í Bónus-,IKEA- og Nóatúnsferð dauðans með ungann með mér. Hljóp um í Bónus og sturtaði í kerruna steiktum lauk,remúlaði o.fl. og fletti í gegnum allar kjúklingabirgðir í kælinum t.a. finna kjúklingaleggi,mikið stuð,mikið gaman.

Svo var hafist handa um kvöldið við að steikja 60 kjúklingaleggi og taka allt saman til að taka með upp á Skaga,þar sem veislan var haldin hjá Hönnu og Sturra tengdó. Þetta var ekkert lítið fyrirtæki,hefði mátt halda að maður væri að fara í heimskautaleiðangur slíkur var farangurinn! Um morguninn var haldið áfram með kjúklingabirgðirnar og 5 kíló af nautgrip fyrir roast beef. Loks var lagt af stað upp á Skaga seinni partinn, en plataði þó Hall í Kringluna því að ég varð að fá nýja skó við nýja flotta kjólinn minn og nýju týpu-klippinguna. Það tókst sem betur fer eftir þó nokkra leit.

Loks rann upp veisludagurinn og gestirnir streymdu inn á Bjarkargrundinni. Séra Eðvarð mætti og amma Dúna Halls hjálpaði mér að klæða Grím í skírnarkjólinn. Ég og Bjarki,frændi Halls og gítarleikari fluttum 2 sálma fyrir og eftir skírnina sjálfa. Grímur var voða góður í skírninni þrátt fyrir að hafa verið vakin án þess að hafa klárað lúrinn sinn úti í vagni. Svo tók veislan við og var ferlega gaman fannst mér sjálfri! Að sjálfsögðu var meira en nóg af veitingum,bæði matarkyns og dýrindis kökur. Undir lok veislunnar voru teknar fjölskyldumyndir af Láru,hirðljósmyndara stórfjölskyldunnar,með alls konar flóknum uppstillingum af upprunalegum og stjúpforeldrum,bara gaman.

Á sunnudeginum tókum við því aðallega rólega,tókum saman dótið okkar og fórum í afmæliskaffi til Valey,frænka Halls á ská,sem varð einnig þrítug.

Við Grímur höfum dundað okkur við hitt og þetta í vikunni. Þrömmuðum bæinn endilangann á mánudaginn í göngutúr,sváfum heilmikið í þreytukasti á þriðjudaginn og fórum á foreldramorgun í Neskirkju í gær með Sólveigu,Rakel Mirru,Ragnheiði vinkonu Sólveigar og Hilmari hennar.
Við erum ein í hreiðrinu núna,Hallur fór í smá ferð til Kaupmannahafnar á vegum vinnunnar og kemur aftur á morgun.

Grímur Logi fór í síðbúna 6 vikna skoðun á þriðjudaginn,hann er orðinn 6 kíló og rétt tæpir 60 cm. Þau voru að sjálfsögðu hrifin af honum á heilsugæslunni,hvernig er annað hægt?

03 febrúar 2006

Stórafmæli hjá mömmunni


Þá er litla fjölskyldan í Birkibælinu lögst til hvílu eftir annasaman dag. Allir nema næturhrafninn í fjölskyldunni. Dagurinn var einnig sögulegur því ég átti afmæli og varð þrítug (2. febrúar). Við byrjuðum daginn á notalegum morgunverði,með brauðmeti,bakkelsi og nauðsynlegu kaffi. Svo fór heimilisfaðirinn í vinnuna og ég og Grímur blunduðum aðeins meira. Hann hefur örugglega fundið á sér að mamma hans ætti afmæli - ég var nefnilega komin upp í rúm og Hallur rúllaði Grími í vöggunni inn til mín áður en hann fór. Svo lá gullmolinn hinn rólegasti í lengri tíma og stúderaði enn frekar svefnherbergið,athuga hvort nokkuð hafi farið fram hjá honum,endaði á því að lúra aðeins.

Svo fórum við á stúfana,ég fór í ógurlega Bónus-,IKEA- og Nótatúns ferð,keypti inn fyrir mikla veislu á laugardaginn á Skaganum,þar sem Grímur verður skírður og einnig haldið upp á afmælið mitt. Auðvitað algjör vitleysa að vera að svona útréttingum með svona lítið kríli,en þannig var nú það. Hringdi svo beint eftir það í Hall og tilkynnti honum að hann þyrfti að taka sér alveg frí í vinnunni,ég bara gæti þetta ekki án hans,gaman að vera dramadrottning:)
Strunsuðum svo heim og ég bar allt havaríið upp á 4. hæð,algjör kraftakelling. Borðuðum svo fínan tælenskan mat sem ég kokkaði á svipstundu,nei,nú er ég að grínast. Svo var brosað með Grímsunganum og spjallað við hann,kjúlli eldaður fyrir veisluna og las yfir "to-do" listana mína.

Fínn afmælisdagur í rigningunni,get ekki sagt að ég finni fyrir neinni aldurskrísu,er bara afskaplega sátt við lífið og tilveruna og alsæl með ungann minn og manninn. Góða nótt....

30 janúar 2006

Matur er mannsins megin


Ævintýri Gríms Loga halda áfram. Um helgina var hann á ferð og flugi, eins og oft vill verða. Á föstudagskvöldið skelti hann sér, ásamt foreldrum, til afa Ægis og ömmu Rögnu í Kópavogi. Hann varða að vísu lítið var við foreldra sína meðan á heimsókninni stóð því þó skiptust á að sitja í nuddstól sem afi hafði nýverið keypt. Þetta var greinilega e-ð sem Grímur þurfti að prufa hið snarasta. Og eins og vanalega fengu mamma og pabbi dýrindis mat á Bakkahjallanum, ljúffengan steinbít og ís í eftrirrétt. Lúxus á þessum foreldrum: treður sig út af ljúfmeti og fær svo nudd á eftir.... er íslenskt þjóðfélag ekki komið út í skemmandi öfgar munúðarlífs og gerviþarfa? Hvar er andrúm fyrir ris mannsandans í þessum kæfandi munaði holdsins?

Á laugardaginn fékk litla fjölskyldan óvænta heimsókn. Heiðrún föðursystir mætti á svæðið til að heimsækja litlu frændsystkin sín: Grím Loga og Rakel Mirru. Í tilefni af því var slegið upp pizzu-partýi á Lynghaganum og horft á “evróvision” forkeppni.

Sunnudagurinn var með hefðbundnum hætti framan af, þar sem Grímur nýtti tímann og hvíldi sig vel fyrir þorraveislu um kvöldið hjá Heiðu frænku. Honum var skellt út í vagn í annað sinn á tveimur dögum,út í rok og rigningu, á meðan að mamma hans fór og lét þreytuna renna úr sé í heita pottinum í Vesturbæjarlaug. Grímur lék við hvern sinn fingur í þorraveislunni meðan ættmenninn skúffuðu í sig hrútspungum og.... lasagna!?

Hallur

25 janúar 2006

Ofurlúrar og brosæfingar

  Posted by Picasa

Kominn tími á að láta heyra í sér - við höfum verið að bralla hitt og þetta skal ég segja ykkur.

Á laugardaginn buðum við til okkar í brunch Guðmundi,Rögnu Hlín og Erlu Hlín frænkum og Guðmundi Axel og Söru. Snæddum hér amerískan brunch og einnig ávexti til að friða samviskuna. Höfðum það virkilega notalegt saman. Eftir það hittum við Skagamafíuna á kaffihúsinu í Iðu í Lækjargötu (Skagamafían er gælunafn á móðurfjölskyldu Halls og notað í sérlega elskulegum skilningi:) Þar voru Hanna amma (Gríms),Sturri afi,Dúna,Kári,Sólveig og Rakel Mirra. Sólveig fór svo á árshátíð með Njalla sínum og við hin fórum heim með Rakel Mirru þar sem amman og afinn ætluðu að passa. Snæddum saman kvöldmat og gæddum okkur á nammi sem ég sérvaldi.

Félagslífið hélt áfram á sunnudeginum,þá fórum við í hádegismat til Sigga afa og Hrefnu ömmu með Sólveigu og Rakel Mirru. Þar voru líka Sólveig langamma og Siggi langafi,við höfðuem farið í heimsókn til þeirra á ættarsetrið á Stóra-Lambhaga fyrr í vikunni. Heiðrún,hálfsystir Halls var líka á svæðinu,hún lék á alls oddi,forðaðist myndavélina eins og alvöru celebrity sneiða fram hjá paparözzum og spjallaði við mig. Eftir þetta brunuðum við í bæinn og fórum í kaffi til Ingu,uppeldissystur hans pabba,þar hélt Grímur áfram að sofa,sama hvað var reynt til að vekja hann. Hann var kannski að taka ofurlúr til að hafa krafta í vaxtasprett.
Aldeilis nóg að gera um helgina!

Á mánudeginum fórum í heljarinnar göngutúr með Sólveigu og Rakel Mirru og slóumst einnig í för með þeim í gær í Kringluferð. Þetta var fyrsta Kringluferðin hjá Grími og hún gekk bara vel. Hann svaf,fékk svo að drekka og svaf svo meira. Ég stóðst ekki freistinguna og fjárfesti í nokkrum barnaflíkum í Polarn & Pyret á hálfvirði - spurning hvort maður stefni ekki á verða barnafatasjúk mamma:) Ég keypti mér líka fæðingargjöfina mína,hafði ákveðið að gefa sjálfri mér svaka steypujárnspott sem mig hefur lengi langað í. Ef það hefur ekki þegar komið fram,þá er þegar eldhúsgræjuóð (er það ekki Hallur?:) Enduðum svo rápið á að elda saman á Birkimelnum.

Nú erum við Grímsunginn á leiðinni út í göngutúr,höfum gott af skammti af súrefni.

Af Grímsunganum er það að frétta að hann vex og dafnar,eins og hefur áður komið fram. Við förum ekki í 6 vikna skoðun fyrr en hann er tæplega 8 vikna,vegna mikilla anna á heilsugæslunni.
Hann er farin að brosa mun meir og hjalar. Er venjulega í stuði þegar vaknar eftir nóttina,gleður þá geispandi foreldra með yndislegum brosum (mamman hefur fellt tár einu sinni eða tvisvar yfir þessum undrum:) Byrjaði s.s. á því að taka gleðiskapsrispur á morgnana og er núna farin að taka fleiri þannig yfir daginn,meira segja kemur einstaka bros þegar hann er stúrinn og á leiðinni að sofna. Hann æfir sig líka á hjalinu,er farinn að gefa fjölbreyttari hljóð frá sér: t.d. gleðihljóð,ég-get-alveg-legið-hér-einn-en-taktu-samt-eftir-mér og ég-er-að-streitast-við-að-sofna-en-ertu-samt-til-í-að-svæfa-mig hljóð.
Það er skemmtilegt við það að verða foreldri að verða meira og meir ástfangin af barninu sínu.

Var að setja inn nýjar myndir : http://www.flickr.com/photos/hildigunnur99/ . Albúmið er 'Janúar 2006 II'.

20 janúar 2006

Ný andlit

Í dag skrapp Grímur í heimsókn til Rúnars frænda síns og Hrundar, konunar hans. Hann var ekki einn í för heldur fylgdu honum foreldrar hans og frænkur hans tvær: Sólveig og Rakel Mirra. Grímur var að hitta Hrund og Rúnar í fyrsta skipti og fór prýðilega vel á með þeim.
Grímur Logi er einn af þessum fáu íslensku karlmönnum sem kann sig, a.m.k. segir Arngunnur móðursystir hans að íslenskir karlmenn kunni sig ekki og heldur sig í Bretlandi einkum af þeim sökum, en það er önnur saga. Grímur brosti því sínu breiðasta framan í Hrund og Rúnar og lék við hvern sinn fingur - eða það hélt hann. Eitthvað virtist Rúnari hins vegar misboðið eftir að Grímur, í mesta sakleysi, fékk pabba til að losa sig við litla kúkableyju sem var farin að angra hann. Þegar pabbi losaði bleyjuna og í ljós kom afrakstur mikils erfiðis hljóðaði Rúnar og stökk út úr herberginu. Kom síðan til baka nokkru síðar með plastpoka og vildi að pabbi setti bleyjuna ofan í hið snarasta. Grímur ákvað þrátt fyrir þetta að hann mundi ekki erfa þetta við Rúnar, því að öðru leyti virtist þetta hin besti piltur.
Grími Loga þótti Hrund líka spennandi. Hún var með kúlu á maganum þar sem frændi hans mun vera geymdur þessa stundina. Sá er væntanlegur í heiminn fyrir lok mars. Það er nú ekkert lítið spennandi, að fá lítinn frænda! Þá verður Grímur ekki lengur minnstur og getur þá klipið litla frænda sinn eins og hann efaðist ekki um að stóra frænka sín, Rakel Mirra, ætti eftir að gera um leið og hún kæmist að honum. Hún er þegar farin að gera sig líklega.

15 janúar 2006

Pabbi kemur heim frá Seattle

Þá er pabbi loksins kominn heim eftir að hafa í átta daga vanrækt sinn einkason! Hann kom klifjaður af allskyns varningi sem mamma hafði pantað á netinu og látið senda á hótelið: eldhúshnífur úr eðalmálmi, panna úr eðalmálmblöndu, DVD og myndavél (sem reyndar er afmælisgjöf). Við þetta bættist síðan kíló af snyrtivörum sem pabbi safnaði saman af mikilli samviskusemi.

Pabbi nýtti einnig tímann í Ameríku m.a. til þjóðfélagsrannsókna á amerísku samfélagi og fór á NBA körfuboltaleik, Seattle Supersonics vs. Orlando Magic, ásamt því að gera fréttaskýringaþáttum (og þar af leiðandi auglýsingum) skil á síðkvöldum. Frumniðurstöður þeirra rannsókna urðu þær að íbúar vesturstrandarinnar séu fársjúkir offitusjúklingar. Bjargföst sönnun þessa voru auglýsingatímarnir sem sýndu fátt annað en m.m. megrunakúra og pillur og plástra við verkjum og sjúkdómum sem þú ert klárlega með en veist að öllum líkindum ekki af. (Þess má geta að pabbi hafði gert svipaða rannsókn í sumar þar sem hann var staddur í bílaborginni Atlanta, þar sem akreinarnar eru taldar í tugum. Þá varð niðurstaðan öllu einfaldari: BÍLL! Allt á sér upphaf og endi í bílum... Í farangurgeymslu bílsins hefur lífshamingjunni og leyndardómum tilverunnar verið snyrtilega komið fyrir í fimm stórum ferðastöskum sem allar rúmast auðveldlega í stóru skottinu. Fölur, fár, feitur eða fól – skiptir engu ef þú ert á rétta bílnum.)

Eftir að hafa skjálfandi læðst í gegnum tollinn með myndavélina og allt hitt dótið hennar mömmu, kom pabbi loksins heim, eftir 18 tíma ferðalag. Hann var auðvitað kominn með sitt klassíska Seattle kvef sem doktor Gummi úrskurðaði að væri berkjubólga eftir að pabba varð á að hósta í símann síðar um daginn. Mamma og Grímur Logi á móti Halli pabba með stírurnar í augunum. Grímur Logi var vel út sofinn og lék við hvern sinn fingur við heimkomu föður síns. Hjalaði og sýndi sína eftirsóttu, en sjaldséðu, spékoppa hvað eftir annað. Þetta voru miklir fagnaðarfundir sem lauk með því að allir sofnuðu og sváfu fram til hádegis.

14 janúar 2006

Nýjar myndir komnar

Posted by Picasa
Er búin að setja inn nýjar myndir frá því í janúar á flickr.
Í gær fórum við Grímur í montferð niður í vinnu t.a. sýna hann. Hann var hinn rólegast og svaf u.þ.b. allan tímann. Ég ætlaði svo að bruna heim áður en hann næði að rumska en hann lét ekki plasta sig og heimtaði sjúss áður en við færum. Það var minnsta mál. Svo kíktum við í Nóatún - kom honum skökkum fyrir í barnastólnum í kerru,vissi ekki að væru með kerru með barnastól á staðnum.leit frekar skrautlega út. Skelltum grilluðum kjúklingi og fleiru handa mömmuni í kerruna og brunuðum svo heim.

Ég er byrjuð að lesa bók sem heitir The Baby Whisperer - Solves All Your Problems. Ekki það að séu sérstök vandamál í gangi, en manni langar að læra betur á barnið sitt og athuga hvort að sé smám saman hægt að koma rútínu á ungann. Maður þarf bara að hafa tíma til að lesa blessuðu bókina!

13 janúar 2006

Fjarverslað í Seattle og næ ekki að sofna fyrir kl. 3


Við Grímur erum í góðu standi saman. Við söknum að sjálfsögðu Halls,en nú styttist í heimkomu. Var einmitt að tala við hann áðan. Hann er alveg hlessa á hvað húsmóðirin getur verslað. Ímyndið ykkur hvað ég gæti verslað ef ég væri á staðnum. Hann stakk upp á að gefa mér flotta stafræna myndavél í afmælisgjöf áður en hann fór til Seattle(verð þrítug 2. febrúar). Ég var ekki lengi að finna mér eina slíka. Pantaði hana og var send frá New York á hótelið hans Halls. Svo pantaði ég af sjálfsdáðun japanskan santoku kokkahníf (ógislega flottur og aðal tískuhnífurinn í kokkanördaheiminum) og steikingarpönnu. Maður verður að halda eldhússafninu við:) Svo var Hallur sendur í mallið og keypti handa mér gommu af Origins snyrtivörum. Ég verð að halda mér við í heimilissælunni,skrúbba mig og shæna. Í síðasta lagi á hann að kaupa Pop Tarts handa mér,sem er sæta-ristabrauð sem ég sakna ferlega frá fortáningsárum mínum í Bandaríkjunum;Hagkaup hefur ekki staðið sig í að kaupa þetta inn.

Eins og kom fram erum við Grímur í góðum málum saman. Ég datt reyndar úr leik þegar ég fékk þessa pest en ég er orðin nokkurn vegin stálslegin. Í gær fórum við og fengum okkur göngutúr niður í bæ,keyptum lax í Fylgifiskum (sem mér tókst svo að slátra,en ekki meira um það);fékk mér café latte til að taka með,nú hangir maður ekki lengur á kaffihúsum eins og ekkert sé. Við höfum nú reyndar stundað kaffihúsin,en erfiðara þegar ekki er hægt með góðu móti að taka vagninn með og barnatalstöðin er ekki með í för. Í nótt var svo Grímsunginn óvenju mikið vakandi og ég var orðin frekar frústreruð klukkan 5 og sá mig fyrir mér afhenda Halli erfðaprinsinn á flugvellinum á sunnudaginn,ha,ha,en stemmingin var orðin talsvert betri skömmu fyrir hádegi þegar 2 fínir lúrar voru að baki. Ég er búin að vera að nátthrafnast undanfarnar nætur, reyni að mana upp í að fara að sofa en á eitthvað erfitt með það.

Grímur vex og dafnar. Hann rauf 5 kg múrinn - var orðinn það þegar ljósmóðirinn af heilsugæslunni kom að vigta hann á mánudaginn .Hafði þyngst um 400 g á einni viku,sem er tvöfalt miðað við meðalþyngdaraukningu á viku,ekki slæmt að eiga svona rjómamömmu:) Svo snéri hann sér af maganum á bakið á þriðjudaginn og skartar nokkrum brosum yfir daginn. Amma Guðrún og svo amma Hanna og Dúna langamma sáu meira að segja hægri spékopp,ég er einmitt búin að vera spennt að sjá hvort hann fái spékoppa frá pabba sínum. Síðast og ekki síst sló hann svefnmet í vikunni og svaf í rúma 8 tíma yfir nóttina!

Þá skelli ég mér í háttinn,gaman að sjá hvernig sofið verður í nótt,það er alltaf eitthvað spennandi að gerast á Birkimelnum.

E.S. Skylda að skrifa í gestabókina!

08 janúar 2006

Bréf frá pabba í Ameríku,

Elsku Grímur Logi minn, nú er pabbi kominn til Ameríku og situr raunar í augnablikinu í flugvél á leið frá borginni Minneapolis til borgarinnar Seattle. Ég verð í Ameríku í rúma viku og við sjáumst þvi ekki fyrr en sunnudaginn 15. Janúar. Þetta er í fyrsta skipti sem pabbi sefur ekki hjá þér kæri Grímur minn og þó ég sé orðinn ofsalega þreyttur þá veit ég að það verður erfitt að sofna í nótt og heyra ekki andadráttinn þinn litli meistari. Ég veit samt að þið mamma eigið eftir hafa það gott saman, fara í göngutúra, fá gesti o.s.frv.
Þú veist að mamma er frekar slöpp í augnablikinu, einhver flensa. Þá þarft þú, kúturinn minn, að vera sérstaklega prúður og góður:
- fara í háttinn á skikkanlegum tíma á kvöldin (ekki seinna en á miðnætti)
- sofa góða dúra yfir nóttina, helst ekki minna en sex tíma samfleytt
- ekki gráta mikið, bara rétt láta vita hvenær þú er svangur og hvenær þarf að skipta á
- mikilvægast af öllu grímsunginn minn er þó að spara ekki brosin. Vertu duglegur að brosa framan í mömmu sína þá batnar henni örugglega mjög fljótt

Þó pabbi sé í burtu í nokkra daga þá verðum við í góðu sambandi og kannski við prufum nýju vefmyndavélin svo ég geti fylgst með þér? Ég veit að annars fæ vægt áfall þegar ég kem til baka því þú verður án efa orðinn miklu stærri og feitari en þegar ég fór, þú verður kominnn vel yfir fimm kílóin, svei mér þá!
Elsku loginn minn, brostu til allra sem þú hittir frá mér og sérstaklega mömmu – þú manst.

Mínar kærustu kveðjur,
pabbi

04 janúar 2006

Hér hefst ævintýri Gríms Loga Hallssonar

Takið eftir því að hér er aðeins um upphaf að ræða – mætti kannski segja inngang. Ævintýri Gríms Loga munu halda áfram langt umfram það sem hægt verður að lesa um hér. Þau munu verða æ meira spennandi og safaríkari eftir því sem á líður og vilji lesendur heyra meira af þeim ættu þeir að kynnast kappanum sjálfum. Þeir fá þá ekki aðeins að fylgjast með ævintýrunum heldur er næstum alveg öruggt að þeir muni taka þátt í þeim líka… og hver vill ekki taka þátt í ævintýri?

Grímur Logi kom í heiminn snemma morguns þann 16. desember 2005. Strax var ljóst að Grímur er sonur móður sinnar og gerir hlutina með sínum hætti. Í þeim anda kom Grímur í heimin eins og englar stíga niður af himnum – með fæturna fyrst. Nánar tiltekið sýndi Grímur heiminum vinstri fótinn og punginn fyrst. Í kjölfarið fylgdi rassinn, hægri fóturinn, búkurinn og hendurnar. Hausinn lét hins vegar bíða eftir sér í nokkrar mínútur – svona rétt til að byggja upp meiri spennu.
Eins og lesendum er líklega þegar orðið ljóst ákvað móðir Gríms Loga, Hildigunnur Ægisdóttir, að láta það eftir piltinum að koma í heiminn með þessum óvenjulega hætti. Nú til dags er það þó orðið all fátítt að íslensk börn komi í heiminn á þennan hátt. Að jafnaði eru svona sérlundaðir prakkarar teknir með keisaraskurði án nokkurra málalenginga. En mamma hans tók slíkt ekki í mál og neitaði raunar öllum inngripum fyrr en allt um þryti, hvað þá heldur deyfingum. Hildigunnur, sem er þekkt fyrir að vera afburðar námsmaður, nálgaðist fæðinguna á margan hátt eins og stórt og mikið próf. Hún hafði ekki fyrr komist að því að hún væri þunguð en fræðslubækur um meðgöngu og fæðingu fóru að flæða inn á heimilið með þeim afleiðingum að hún er nú orðinn “premium” viðskiptavinur hjá AMAZON.COM. Einnig hermir sagan að það sé vart til sú heimasíða á veraldarvefnum þar sem orðin fæðing og/eða meðganga koma fyrir, sama á hvaða tungumáli, sem Hildigunnur hefur ekki heimsótt. Hún sótt einnig öll þau námskeið og gerði allar þær æfingar sem forskeytið meðganga-. Elja hennar var óþrjótandi. Enda skilaði hún sér og hún dúxaði algjörlega að mat viðstaddra í þessum tvískipta áfanga “Meðganga og fæðing 103”. Fréttir herma að ljósmæður Landspítalans séu þegar farnar að segja sögur og syngja söngva um þess sérstæðu og vel heppnuðu fæðingu.

Eins og áður segir kom Grímur Logi í heiminn 16. des. 2005. Hann var örlítið þreytulegur þegar hann kom út, enda hafði hann hangið á hausnum í nokkrar mínútur áður en hann loks gat smælað framan í heiminn. Hann var þó fljótur að jafna sig og var tilbúinn að taka á móti gestum strax síðdegis þegar hann bauð til sín öfum sínum og ömmum ásamt nokkrum frændsystkinum. Hann var svolítið hissa á að sjá allan þennan fjölda af fólki því þetta voru miklu fleiri afar og ömmur en hann hafði gert sér í hugarlund, átta talsins! Það verða a.m.k. gleðileg pakkajól hjá mér hugsaði Grímur með sér og brosti.

Aðeins rúmum sólarhringi eftir að Grímur steig úr móðukviði var hann kominn heim til sín, það var honum a.m.k. sagt. Fljótlega eftir að hann kom þangað hitti hann tvo nýja afa… þetta ætlaði engan endi að taka. Það var gott að koma heim: þægileg vagga, hlýlegt umhverfi og brjóstamjólkin farin að aukast til muna.

Dagarnir liðu, gestir komu og fóru, mjólkin gersamlega flæddi úr Hildigunni mömmu, pabbi fagnaði hverri kúkableiu og Grími leið eins og blóm í eggi. Á sjötta degi dróg til tíðinda. Þá var Grímur Logi dúðaður í einhvern bangsagalla sem leit svolítið undarlega út, hann mótmælti í fyrstu en fann svo hvað þetta var mjúkt og þægilegt. Hann ákvað að stoltið skildi að víkja. Litla fjölskyldan hélt aftur upp á spítala þar sem e-r karl (kannski enn einn afinn?) þuklaði á Grími og brosti til hans. Grímur brosti til baka, a.m.k. í huganum.
Eftir þetta var haldið á niður í miðbæ og inn á veitingahús þar sem foreldrarnir fengu sér snæðing, en Grímur ákvað að nú væri nóg komið af hasar og lygndi aftur augunum.

Jólin komu og fóru. Aðfangadegi eyddi Grímur í Kópavogi hjá afa Ægi og ömmu Rögnu. Það var eins og hann hafði búist við, pakkaflóðið ætlaði engan endi að taka: föt, leikföng, tæki og tól. Grímur var orðinn alveg ringlaður og meikaði ekki að taka upp síðust pakkana, lét pabba og mömmu það eftir...