13 september 2006

Ömmur gráta & Tengd umheiminum


Hvað haldið þið? Mín er orðin nettengd! Við fengum áðan ADSL módem og mín stakk öllu í samband og það bara virkaði,alveg ótrúlegt. Mikið var segi ég, erum búin að bíða eftir þessu í um 2 mánuði!

Hvar á ég eiginlega að byrja... ég mætti hingað til Frederiksberg með Grímsungann þann 1. september og þar með var öll fjölskyldan flutt. Hallur mætti hingað daginn áður og var búinn að tæma gáminn og setja upp í íbúð þegar ég kom. Þó það nú væri, ég pakkaði nú búslóðinni niður á meðann hann sökkti sér í dönskuna hér í Köben.

Ég mætti s.s. hingaði um kvöldið 1. sept. og settist niður við tölvuna til að setja færslu hér á bloggið og hélt að við værum nettengd. En það var misskilningur hjá mér,Hallur hafði bara komist aðeins á þráðlaus opin net sem eru einhvers staðar hér í kring og það var frekar óstöðugt. En nú á að bæta úr fréttaleysinu...
Daginn sem við flugum hingað til Köben skutlaði Hanna,mamma hans Halls okkur á heilsugæsluna á Seltjarnarnesinu frá Skaganum,þar tók mamma við okkur - við vorum s.s. bíllaus. Hanna kvaddi okkur þar og var erfitt fyrir greyið ömmuna. Svo fór Grímur í skoðun og sprautu og við fórum heim með mömmu,lögðum okkur og fórum svo tímanlega út á völl. Mamma bar sig ansi vel fannst mér þegar við kvöddumst en heyrði svo í henni þegar við vorum komin í gegn og þá hafði hún stoppað á Kaffitári í Njarðvík til að jafna sig. Æi,það er ekki auðvelt fyrir ömmurnar að litli Grímur flytji til útlanda.

Við Grímur erum búin að vera dugleg að skoða okkur um í nágrenninu, í Frederiksberg og Nørrebro,við erum alveg nyrst í Frederiksberg,alveg við Nørrebro. Það gengur hægt og rólega að koma okkur fyrir,okkur vantar aðeins meiri hillu og skápapláss,þarf að græja það sem fyrst. Maður verður frekar þreyttur á að vaða pappakassana - en þetta hlýtur allt að koma.

Í gær fórum við og skoðuðum vöggustofuna þar sem Grímur byrjar 1. október og leist bara vel á. Hún er kölluð Røde Kors vöggustofan,s.s. Rauða Kross vöggustofa, doldið skondið. Þar spjölluðum við við eina fóstruna á meðan að börnin voru sofandi úti í vögnum. Vöggustofan er nokkuð nálægt,tekur örugglega tæpt korter að labba og auðvitað fljót að hjóla. Við sóttum um pláss fyrir Grím í daggæslu seinni part júlí,þannig að það er frábært að vera búin að fá pláss fyrir hann.

Er með fullt af myndum frá Lanzarote sem ég mun hlaða inn á flickr síðuna sem fyrst.

Sem sannur Íslendingur verð ég að minnast á veðrið,það er búið að vera frábært:) í gær og í dag voru um 23-25 gráður og sól,alveg frábært að teygja sumarið.