
Loksins er sólin farin...þetta hljómar kannski undarlega-en ég er fegin að fá smá hlé,það er búið að vera rosalega gott veður með sól og 20-25 stiga hita og við gardínulausa fólkið þjáumst stundum af hita hér inni. Þá drífur maður sig að sjálfsögðu út og dundar sér við hitt og þetta,sem er besta mál. Ég á eftir að koma mér betur fyrir og einhvern er skárra að gera það þegar maður er ekki að mæna á góða veðrið úti.
Nú er Grímur sofandi og þá vegur maður og metur-hvað á ég að gera. Ég ætti að setja í uppþvottavélina og þvottavélina og taka til og ganga frá síðustu kössunum og fara í sturtur,og ...og.. en svo væri líka gott að leggja sig:) Þessi mamma fór mjög seint að sofa og var vel mygluð í morgun. Er núna að æfa mig í dönskunni og horfa á 'Par på pröve',þar sem að 2 fjölskyldur skipta út mömmunum í 8 daga..þið kannist kannski við svipaðan hátt. Mér fer alla vega fram í að skilja dönskuna.
Síðustu helgi komu mamma Halls og Sturri og amma og afi Halls í heimsókn yfir helgina og það var virkilega gaman. Við spókuðum okkur og fögnuðum svo fimmtugsafmæli Hönnu á föstudeginum. Borðuðum hádegismat á svaka fínum veitingastað í Tívolíinu,The Paul. Það er ekki nóg með að Grímur hafi farið á hin og þessi kaffihús og veitingastaði heldur er hann núna búinn að borða á Michelin stjörnu veitingastað,geri aðri betur. Við vorum ekki viss um hvort væri heppilegt að fara með hann,en þetta var mjög hentugt því að það voru bara matargestir á einu öðru borði og Grímur gat skriðið um og skoðað að vild.
Hanna og Dúna amma Halls héldu uppi verslunarheiðri Íslendinga,versluðu eitthvað á sig og að sjálfsögðu á litlu börnin í fjölskyldunni,þetta eru sko manneskjur með þol.
Laugardagskvöldið pössuðu þau Grím á meðan við Hallur bóhemarnir hjóluðum í bíó og sáum mynd Al Gore,An Inconvenient Truth. Það er ekki óþarfa rómantík hér á bæ,við hjóluðum í bíó og horfðum á mynd um gróðurhúsaáhrifin. Myndin var reyndar ekki bara dómsdagsleg,heldur líka fræðandi og áhugaverð- þið verðið endilega að sjá hana.
Nú ætla ég í Formúlukappakstur eins og hef minnst hér á áður - að sinna heimilisverkum áður en gullmoli heimilisins vaknar.
Ég er búin að setja nýlegar myndir á flickr síðuna,á eftir að bæta við myndum frá Lanzarote.