09 september 2006

Flutt!

Þá er litla fjölskyldan flutt! Nú er liðleg ein vika síðan við fluttum og við erum hægt og bítandi að verða búin að koma okkur fyrir, aðeins fáeinir kassar eftir. Að vísu eigum við eftir að fjárfesta í eldhúsborði og stólum í stíl og eins og við er að búast þessi væntanlega fjárfesting þegar farin að valda titringi og togstreitu á heimilinu. Við vonum þó hið besta, okkur tókst a.m.k. að kaupa bæði brauðrist og ryksugu í vikunni án of mikilla slagsmála.

Þá vitið þið það, það að kaupa eitthvað annað og meira en mjólkurlítra getur valdið hugaræsingi og óvæntum uppákomum innan fjölskyldunar á stundum. Veit ekki alveg hvernig á því stendur en reikna með að þetta hafi að gera með ólíkan innkaupsstíl og óbilandi þrjósku beggja hlutaðeigandi - Hildigunnur kallar það reyndar nöldur í mínu tilfelli. Yfirleitt er það þannig að ég vil kaupa e-ð ódýrt og yfirleitt það fyrsta ódýra sem ég sé, því ég lít á hverja mínútu sem ég eyði í að skoða búsáhöld, matvöru, húsgögn eða þess háttar sem glataða og það sama á við um krónurnar sem fara í þetta. Minn betri helmingur (eða þriðjungur) þarf hins vegar að rannsaka markaðinn af sömu nákvæmni og vísindamönnum tókst að kortleggja genamengi mannsins. Nú er t.a.m. ekki til sú ryksuga í norður-evrópu sem Hildigunnur er ekki búin að skoða með tilliti til sogkrafts, rafmagnsnotkunnar, verðs og samfélagslegrar virðingar (þ.e. snobbstuðull) svo e-ð sé nefnt. Svona er nú lífið.

Skólinn er byrjaður og ég byrjaður að troða marvaðann í djúpu lauginni. Ég skal alveg viðurkenna það að ég get ekki farið orðrétt með fyrirlestrana sem ég sat í þessari viku, en þetta kemur allt – humm... Ég velti því mikið fyrir mér hvernig ég geti talað sem mesta dönsku, skásta hugmyndin sem ég hef fengið hingað til er að byrja að sækja kirkuna hérna í nágrenninu, sem ég helda að sé jésúíta kirkja eða e-ð slíkt. Síðan mundi ég þurfa að hitta prestinn reglulega til að fá uppfræðslu í trúnni og í kjölfarið taka þátt í umræðuhópum nokkrum sinnum í viku. Líst ykkur ekki vel á þetta? Það er sunnudagur á morgun svo kannski við Grímur skellum okkur?

Talandi um Grím Loga þá er hann að gera góða hluti hérna í Danmörku. Hann skríður um allt og stendur upp hvar sem hann getur. Það hefur því hentað honum prýðilega að hafa pappakassa um alla íbúð. Fram að þessu hefur Grímur verið mikill rólyndis piltur en með sínu nýfundna frelsi þá er hann orðinn hinn mesti gaur og veður áfram með fyrirséðum afleiðingum, þeim að detta á hausinn. Í gær valt hann um koll í raftækjaverslun og lenti á trébretti svo eyrað rispaðist og bólgnaði aðeins. Í morgun þegar við feðgarnir áttum saman góða stund og Grímur lék sér með boltan sinn þá datt hann fram fyrir sig og efrivörin er nú tvöföld. Hann er því flottur á velli strákurinn minn þessa stundina. Annars er þetta nú í góðu lagi, verra er að karl greyið er orðinn kvefaður með tilheyrandi pirringi, varð það bara í dag.

Kv.
Hallur