Elsku Grímur Logi minn, nú er pabbi kominn til Ameríku og situr raunar í augnablikinu í flugvél á leið frá borginni Minneapolis til borgarinnar Seattle. Ég verð í Ameríku í rúma viku og við sjáumst þvi ekki fyrr en sunnudaginn 15. Janúar. Þetta er í fyrsta skipti sem pabbi sefur ekki hjá þér kæri Grímur minn og þó ég sé orðinn ofsalega þreyttur þá veit ég að það verður erfitt að sofna í nótt og heyra ekki andadráttinn þinn litli meistari. Ég veit samt að þið mamma eigið eftir hafa það gott saman, fara í göngutúra, fá gesti o.s.frv.
Þú veist að mamma er frekar slöpp í augnablikinu, einhver flensa. Þá þarft þú, kúturinn minn, að vera sérstaklega prúður og góður:
- fara í háttinn á skikkanlegum tíma á kvöldin (ekki seinna en á miðnætti)
- sofa góða dúra yfir nóttina, helst ekki minna en sex tíma samfleytt
- ekki gráta mikið, bara rétt láta vita hvenær þú er svangur og hvenær þarf að skipta á
- mikilvægast af öllu grímsunginn minn er þó að spara ekki brosin. Vertu duglegur að brosa framan í mömmu sína þá batnar henni örugglega mjög fljótt
Þó pabbi sé í burtu í nokkra daga þá verðum við í góðu sambandi og kannski við prufum nýju vefmyndavélin svo ég geti fylgst með þér? Ég veit að annars fæ vægt áfall þegar ég kem til baka því þú verður án efa orðinn miklu stærri og feitari en þegar ég fór, þú verður kominnn vel yfir fimm kílóin, svei mér þá!
Elsku loginn minn, brostu til allra sem þú hittir frá mér og sérstaklega mömmu – þú manst.
Mínar kærustu kveðjur,
pabbi