
Ævintýri Gríms Loga halda áfram. Um helgina var hann á ferð og flugi, eins og oft vill verða. Á föstudagskvöldið skelti hann sér, ásamt foreldrum, til afa Ægis og ömmu Rögnu í Kópavogi. Hann varða að vísu lítið var við foreldra sína meðan á heimsókninni stóð því þó skiptust á að sitja í nuddstól sem afi hafði nýverið keypt. Þetta var greinilega e-ð sem Grímur þurfti að prufa hið snarasta. Og eins og vanalega fengu mamma og pabbi dýrindis mat á Bakkahjallanum, ljúffengan steinbít og ís í eftrirrétt. Lúxus á þessum foreldrum: treður sig út af ljúfmeti og fær svo nudd á eftir.... er íslenskt þjóðfélag ekki komið út í skemmandi öfgar munúðarlífs og gerviþarfa? Hvar er andrúm fyrir ris mannsandans í þessum kæfandi munaði holdsins?
Á laugardaginn fékk litla fjölskyldan óvænta heimsókn. Heiðrún föðursystir mætti á svæðið
til að heimsækja litlu frændsystkin sín: Grím Loga og Rakel Mirru. Í tilefni af því var slegið upp pizzu-partýi á Lynghaganum og horft á “evróvision” forkeppni. Sunnudagurinn var með hefðbundnum hætti framan af, þar sem Grímur nýtti tímann og hvíldi sig vel fyrir þorraveislu um kvöldið hjá Heiðu frænku.
Honum var skellt út í vagn í annað sinn á tveimur dögum,út í rok og rigningu, á meðan að mamma hans fór og lét þreytuna renna úr sé í heita pottinum í Vesturbæjarlaug. Grímur lék við hvern sinn fingur í þorraveislunni meðan ættmenninn skúffuðu í sig hrútspungum og.... lasagna!?Hallur