Man ekki hvort ég hef hér áður líkt móðurhlutverkinu við að vera Formúlu kappaksturstöffari,maður er sífellt í kappi við tímann: hafa morgunmat til handa unganum þegar hann bíður óþolinmóður og kvartar...drífa sig út í vagninn með allt okkar hafurtask á meðan að unginn er ekki til í að dunda sér einn og vælir og skammast...þið skiljið hvert ég er að fara. Nú hefur bæst við að pakka niður einni búslóð,ég og Grímur erum komin heim og Hallur varð eftir í Danmörku að tækla dönskuna. Pakka niður eitt stykki búslóð með einn 7 mánaða sem er kominn með mömmuveikina?...ekkert mál!
Grímur hefur reyndar verið í pössun hluta af degi mánudag til fimmtudags og svo fékk ég smá pössun í dag og mamma er búin að taka 2 fínar rispur með mér í pökkun, sem betur fer fæ ég aðstoð,því annars gengi ekki neitt.
Við höfðum rosalega fínt á ferðalagi í Svíþjóð og Danmörku,í hita og sól. Fórum fyrst til Stokkhólms til vina okkar,Magnúsar og Sædísar,vorum þar þrjú pör ásamt börnum. Þar var haft það gott,röltað um borgina,fórum á Astrid Lindgren safnið að heimsækja Línu Langsokk,borðuðum fullt af góðum mat og kældum okkur í barnalauginni í garðinum.
Svo tókum við lest til Árósa til Garðars,vinar Halls og fjölskyldu. Þar fórum við á Aros,svaka flott listasafn,skoðuðum sögulega gamla bæinn,röltum um miðbæinn,sem er mjög huggulegur ... nú og borðuðum og drukkum smá bjór,hvað annað...
Lokaáfangastaður var Kaupmannahöfn,tilvonandi heimabær okkar. Þar vorum við í lítilli stúdíóíbúð lengst hjá flugvellinum (sem að sumir aðrir en ég pöntuðu,ahömm..). Þar byrjaði Hallur í dönskukennslu og við höfðum líka tíma til að skoða okkur um út um allt,miðbænum,Norrebro,Íslandsbryggju og videre. Við náðum að skoða nýju (leigu)íbúðina okkar í Frederiksberg og svipuðumst um í hverfinu og leist mjög vel á.
Tveir kassar í viðbót áður en ég fer í háttinn og á morgun heldur baráttan áfram.