09 febrúar 2006

6 kíló af gulli



Jæja og já,þá er heljarinnar afmælis- og skírnarveisla um helgina afstaðin. Það var nóg að gera þar áður við að undirbúa veisluna,bæði hjá okkur og fleirum í fjölskyldum okkur sem lögðu hönd á plóg,takk kærlega fyrir það:) Á fimmtudaginn fór ég í Bónus-,IKEA- og Nóatúnsferð dauðans með ungann með mér. Hljóp um í Bónus og sturtaði í kerruna steiktum lauk,remúlaði o.fl. og fletti í gegnum allar kjúklingabirgðir í kælinum t.a. finna kjúklingaleggi,mikið stuð,mikið gaman.

Svo var hafist handa um kvöldið við að steikja 60 kjúklingaleggi og taka allt saman til að taka með upp á Skaga,þar sem veislan var haldin hjá Hönnu og Sturra tengdó. Þetta var ekkert lítið fyrirtæki,hefði mátt halda að maður væri að fara í heimskautaleiðangur slíkur var farangurinn! Um morguninn var haldið áfram með kjúklingabirgðirnar og 5 kíló af nautgrip fyrir roast beef. Loks var lagt af stað upp á Skaga seinni partinn, en plataði þó Hall í Kringluna því að ég varð að fá nýja skó við nýja flotta kjólinn minn og nýju týpu-klippinguna. Það tókst sem betur fer eftir þó nokkra leit.

Loks rann upp veisludagurinn og gestirnir streymdu inn á Bjarkargrundinni. Séra Eðvarð mætti og amma Dúna Halls hjálpaði mér að klæða Grím í skírnarkjólinn. Ég og Bjarki,frændi Halls og gítarleikari fluttum 2 sálma fyrir og eftir skírnina sjálfa. Grímur var voða góður í skírninni þrátt fyrir að hafa verið vakin án þess að hafa klárað lúrinn sinn úti í vagni. Svo tók veislan við og var ferlega gaman fannst mér sjálfri! Að sjálfsögðu var meira en nóg af veitingum,bæði matarkyns og dýrindis kökur. Undir lok veislunnar voru teknar fjölskyldumyndir af Láru,hirðljósmyndara stórfjölskyldunnar,með alls konar flóknum uppstillingum af upprunalegum og stjúpforeldrum,bara gaman.

Á sunnudeginum tókum við því aðallega rólega,tókum saman dótið okkar og fórum í afmæliskaffi til Valey,frænka Halls á ská,sem varð einnig þrítug.

Við Grímur höfum dundað okkur við hitt og þetta í vikunni. Þrömmuðum bæinn endilangann á mánudaginn í göngutúr,sváfum heilmikið í þreytukasti á þriðjudaginn og fórum á foreldramorgun í Neskirkju í gær með Sólveigu,Rakel Mirru,Ragnheiði vinkonu Sólveigar og Hilmari hennar.
Við erum ein í hreiðrinu núna,Hallur fór í smá ferð til Kaupmannahafnar á vegum vinnunnar og kemur aftur á morgun.

Grímur Logi fór í síðbúna 6 vikna skoðun á þriðjudaginn,hann er orðinn 6 kíló og rétt tæpir 60 cm. Þau voru að sjálfsögðu hrifin af honum á heilsugæslunni,hvernig er annað hægt?