03 október 2007

Kór,fiskur og vetrarfatnaður

Ég veit ekki hvenær þið voruð síðast á þeim aldri þar sem farið var í kórferðalag, en ég fór alla vega í kórferðalag síðustu helgi, með kórnum mínum, Sound of Gospel. Við héldum í sumarbúðir KFUM í Jægerspris sem er á norður-Sjálandi. Þar vorum við frá föstudagseftirmiðdegi fram til sunnudags. Það var ýmislegt gert, borðað góðan mat og skemmt sér, sungið og talað um framtíðarplön kórsins. Á laugardeginum var hægt að velja um sólóista"session", stomp-tíma eða andardráttar"session". Um kvöldið var kokteill, heljarinnar matur og grímupartý. Þetta var allt saman mjög fínt, dálítið krefjandi að vera með 60 fólki sem maður þekkir ekki og að skilja dönsku í dúndrandi tónlist.

Fjölskyldulífið gengur annars sinn gang. Grímur virðist vera ánægður á vöggustofunni, að minnsta kosti var hann að kríta úti í gær, þegar Hallur kom að sækja hann og vildi helst ekki fara heim.

Á mánudaginn var elduð íslensk ýsa sem við keyptum hérna úti. Maður er alltaf að reyna að auka fiskneyslu. Grími fannst það reyndar ekki sérlega sniðugt, borðaði smá hrísgrjón sem búið var að lauma í smá fiski, en lét restina vera. Það verður áskorun fyrir móðurina að fá hann til að borða fisk. Ég man sjálf eftir því að vera ekki hrifin af fiski sem krakki og þegar foreldrarnir útbjuggu klassísku samsetninguna með ýsu, stöppuðum kartöflum og fullt af tómatssósu. Og svo kúgaðist maður jafnvel af fiskinum, þegar verst lét.

Annað sem Grímur er ekki hrifinn af, er að fara í nýja skó. Ég er nýbúin að kaupa hanna flotta kuldaskó. Hann gólaði í búðinni þegar hann þurfti að máta þau. Nú er ég búin að spreyja þá og sýna honum, en þarf að plana aðlögunartíma, he, he. Læt reyna á það í dag þegar hann kemur heim. Er alveg bókað að það þarf að berjast við hann, er ansi skrautlegt. Var svipað, en ekki eins slæmt, þegar hann átti að fara í nýja vetraranorakkinn sinn um daginn, drengurinn er ekki hrifinn af svona breytingum.

Þegar maður er í Danmörku og er ekki með bíl, er mjög sniðugt að kaupa svona hluti á netinu. Var bæði búin að fara ferðir til að finna skó og úlpu sem tókust ekki og endaði á því að kaupa þetta á netinu, maður nennir ekki að eyða frítíma sínum í fýluferðir.

Þetta er s.s. hversdags"snakkið" mitt - heyrumst síðar.