20 september 2007

Komin í gang

Nú er fimmti vinnudagur eftir Íslandsferð og veikindi, og ég er komin af stað í þessu venjulega lífi. Ég fór á kóræfingu á þriðjudagskvöldið - ég er nýbyrjuð í gospelkór sem heitir Sound of Gospel
og það er virkilega spennandi, mér líst ofsalega vel á hann. Ég fór í inntökuprufu í ágúst og fór á eina æfingu áður en við fórum til Íslands. Ég missti því miður af 2 æfingum, einni þegar ég var á Íslandi og einni eftir að ég kom heim. Vegna þessa verð ég ekki með á tónleikum í kvöld, því miður, en ég ætla samt að fara á þá og hlakka til.

Í gær kom ég heim og eftir hvíld í sófanum, dúlluðum við Grímur okkur saman. Hann fór í langt bað, sem honum þykir voða gaman. Svo fékk hann að sulla við eldhúsvaskinn, ég lét renna úr krananum og hann fékk mál og skál til að hella í og úr... þetta biður hann stundum um : "hella!". Ég vaktaði hann á meðan ég fékk mér að borða.

Svo var háttað og við lásum Einar Áskel - Flýttu þér - hann fylgdist vel með, las næstum því allan textann. Hann var ekki alveg til í Einar Áskel fyrir mánuði, hafði ekki þolinmæði að hlusta á, eða fannst hann ekki nógu spennandi. Nú var hann alveg til og mér fannst það frábært, keypti 2 bækur á Íslandi meira fyrir mig, held ég. Svo tók ansi langan tíma að sofna, hann var ekki með vesen en lá í rúminu og blaðraði þessi ósköp við sjálfan sig. Mér fannst eins og það væri svo mikið að gerast í heilanum í honum og hann er sífellt að læra ný orð - það var eins og hann væri að spóla í gegnum alls kyns orðaforða og náði ekki að slökkva á heilastarfseminni. Allt í einu heyrðist "api, ú, ú", höfum verið að apa eftir apahljóðum á heimilinu. Svo var hann að tala um mömmu og pabba og ýmislegt fleira. Tókst svo loksins að sofna og ég horfði á Heroes í sjónvarpinu.