04 október 2007

Grjónagrautur og strákabusl

Í gærkvöldi buðum við nágrönnum okkar, Atla, Svönu og strákinum þeirra Skarphéðni Árna í grjónagraut. Grjónagrautur er orðinn einn af "klassíkerunum" á heimili, með hjálp uppskriftar í Nönnubiblíunni, sem ég man ekki hvað heitir. Ég bæti samt við mínu auka, set heila kardimommubelgi og sítrónuskræl út í. Grímur er ofsa hrifinn af grjónagrauti, hann borðaði 3 skálar og leit ekki við brauði með kæfu, sem er venjulega vinsælt. Sagði svo "ummm" um leið og hann borðaði:)

Eftir matinn fóru þeir strákarnir í bað og það var mikið fjör. Þeir skemmtu sér mjög vel saman og "bonduðu" mjög vel, voru stöðugt að kíkja á hvað hinn væri að gera, var mjög gaman að fylgjast með. Þeir kepptust við að hella úr málum og yfir sjálfa sig. Svo tóku þeir létt orkukast þegar þeir voru búnir í baðinu, var eins að sleppa beljunum út á vorin, þegar þeir hlupu út af baðherberginu. Bæti við myndum af þeim hér, sem fyrst.

Þessi mamma var svo þreytt þegar hún var svo búin að svæfa litla gutta, að hún fór bara að sofa sjálf fljótlega á eftir. Var komin upp í rúm kl. 9:30, hvorki meira né minna. Ætlaði að mæta snemma í vinnuna í morgun, sem tókst nokkurn vegin. Ég fer svo að sækja Grím á vöggustofuna seinni partinn, nokkuð sem Hallur er eiginlega alveg búinn að sinna, síðan ég byrjaði að vinna. Hallur hjólaði með Grím í morgun, þannig að það er ekki kerra til ráðstöfunar. Síðast fengum við okkur ágætis göngutúr á strætóstöðina. Stöðin er ekki svo langt frá vöggustofunni, en það tók okkur um korter að labba:) Ég passaði mig að stressa mig ekki og hugsaði með mér að væri hollt fyrir Grím að fá hreyfingu. Enda var hann duglegur að labba og leiddi mig á meðan, maður er nú með hámarkshraða í lægra lagi þegar maður er tæplega 2 ára.