
Við fjölskyldan höfðum það mjög gott um helgina, ég ætti nú reyndar að byrja á því að segja frá föstudeginum. Hef ekki verið að básúna það hér, en ég er sem sagt ólétt og við Hallur fórum í 18 vikna sónar á föstudaginn. Ég vonaðist að sjálfsögðu til í að allt væri í lagi hjá krílinu og svo langaði mig núna að fá að vita kynið. Við ákváðum að fá ekki að vita það með Grím. Alla vega, sónarinn gekk vel á Hvidovre spítalanum og allt leit vel út, sem betur fer. Ég spurði svo í lokin sónardömuna hvort hún gæti séð kynið og hún athugaði aðeins en sagði svo að hún gæti ekki séð það, eða gæti ekki verið viss þar sem að það væri með lærin klemmd saman. Hún var ekki til í að athuga aftur eða sjá hvort að krílið hreyfði sig eitthvað, þannig að það var örlítið pirrandi að fá ekki að vita hvort að blátt eða bleikt væri á leiðinni. Þetta er víst smá "issue" á sumum dönskum spítulum, var t.d. búin að lesa í bæklingi frá Hvidovre spítalanum að ekki væri alltaf hægt að vera viss um kynið og því gefi þeir það ekki upp.
Ég var ekkert að gefast upp og pantaði tíma á einkaklíník í annan sónar, sem við þurfum sjálf að borga. Dálítið klikkað, en ef maður vill vita þetta - þá vill maður virkilega vita þetta!
Ég er núna "sett" 4/4 (leiðinlegt hvernig þetta er orðað) og það er akkúrat óskadagsetningin mín. 04.04.08 er flottur fæðingardagur og svo 04.04 minn fæðingardagur (02.02) tvöfaldaður. Kannski segja þeir eitthvað annað í aukasónarnum og krílið ákveður sjálft hvenær það kemur, en þetta er alla vega flott dagsetning í bili.
Eins og ég sagði höfðum við fjölskyldan það huggulegt um helgina. Við fórum á laugardeginum til Agnesar og Kalla, vinapars okkar, í Solrød Strand. Þar borðuðum við kvöldmat og gistum. Grímur hafði það gott með Elmu Lind og Mána. Morguninn eftir var huggulegur morgunmatur og farið í sund í sundlaug sem er rétt hjá þeim. Þar var alger lúxus, um 38 gráðu heit barnalaug og venjuleg laug sem ég dýfði mér aðeins í . Á sunnudeginum vorum við svo í letistuði eftir að við komum heim.Grímur er búinn að vera með kvef og hósta en fór aftur á vöggustofuna í morgun. Hann er orðin teiknimyndaóður eftir að hafa fengið að horfa á meiri teiknimyndir en venjulega í veikindunum. Biður um "Bubba, Latabæ, Lata-Bubba, Lala, Pó". Nú verður þetta trappað niður...
Honum finnst voða gaman að skoða myndir í tölvunni, t.d. af Ísabellu frænku sinni. Um daginn hafði ég sett tölvuna mína undir sófann og skildi svo ekki hvað hann var að baxa við að teygja sig undir sófa og segja "Ísabella". Þá vildi hann ná í tölvuna og skoða myndir af litlu frænku. Í gær prentuðum við út myndir af henni og þeim saman og hengdum upp í eldhúsinu, það fannst honum ansi sniðugt.
Hann er voða duglegur að tala og apar allt eftir manni, er virkilega gaman að fylgjast með því. Reynir líka við lengri og erfiðari orð og nýju orðin koma ansi fljótt. Þessi aldur sem hann er á núna finnst mér mjög skemmtilegur. Maður fær líka forsmekk á 2 ára aldrinum en það er nú skiljanlegt. Þessi grey hljóta að hafa skoðun á hlutunum.