13 nóvember 2008

Sviti og kvef

Nú líður mér vel, eftir að hafa farið i góðan Body Combat púltíma í ræktinni. Þar er boxað út í loftiðe og sparkað og hoppað, jú og öskrað aðeins. Var reyndar sannfærð um að ég væri að fara í Body Pump tíma, en annað kom í ljós. Það var reyndar besta mál, þó ég væri ekki í góðum haldara fyrir skopp, ekki sérlega sniðugt fyrir mjólkurfullu brjóstin, en þetta reddaðist og ég hélt bara vel fyrir þau þegar við gerðum hnélyfturnar.

Annars er Hanna Freyja litla komin með kvef - aftur. Var líka kvefuð fyrir um 3 vikum. Það rann vel úr nefinu og var ansi lítil í dag greyið.

Henni liggur ansi mikið á að ná þessu "mótóríska". Byrjaði að skríða að hermannasið fyrir 2 mánuðum og er nú farin að sitja nokkuð stöðug. Svo byrjaði hún á því fyrir viku að tosa sig upp í standandi stöðu. Þetta gerir hún við sófan, við kassa í eldhúsinu, við ryksuguna og við klósettið (og nagar setuna, namminamm).

Grímur Logi byrjaði á nýjum leikskóla í lok október og það gengur mjög vel. Leikskólinn, eða "børnehaven", heitir Melita og þar er skipst á að vera 2 vikur í leiskólanum, sem er hér nálægt og 2 vikur í "sveitinni"/úthverfi í Birkerød. Þar er líka venjuleg leikskólaaðstaða og náttúra í kring, þess vegna er þetta kallað "skovbørnehave".
Grímur fær frí í leikskólanum á morgun og verður heima með mér og orkudísinni.

Hafið það gott og góða helgi.