
Á morgun fimmtudag, er ég komin 38 vikur og 6 daga, ótrúlegt en satt. Fer í skoðun til sænsku heimafæðingarljósmóðurinnar minnar og svo í jóga.
Ég hef það bara ágætt, er í týpísku óléttuástandi, vakna á
nóttunni til að pissa og svo hefur nábítur verulega verið að stríða mér, sérstaklega undanfarnar vikur. Þar fyrir utan er maður stór um sig og frekar þreyttur inn á milli. Það er ekki sofið eins mikið og þegar ég var ólétt með hann Grím minn, nú sér hann um að ræsa okkur um 6 leytið og stundum fyrr, jú og stundum örlítið seinna:)Hér er búið að vera mikið að gera, eins og Hallur hefur lýst ... var með heljarinnar to-do lista, þar sem er nokkurn vegið búið að strika út öll atriði. Ég finn mér þó eitthvað að gera, eitthvað þarf maður að hafa til að dreifa huganum. Er ekki enn komin í biðstöðu, sem er fínt. Svo er bara að sjá hvenær litla rófa lætur sjá sig.
Á myndunum fyrir ofan erum við Grímur að prufukeyra
fæðingarkarið, okkur fannst það báðum virkilega fínt. Mér fannst gott að komast í heitt vatn og Grími fannst spennandi að vera í "sundlauginni" og vildi helst ekki fara upp úr. Svo sést mjög ólétt kona og síðasta myndin er af Grími módeli í flotta jakkanum sem Arngunnur saumaði á hann, ekkert smá glæsilegur. Við vorum að koma úr afmæli áðan og prófaði að smella nokkrum myndum af honum þegar við komum heim til að sýna Arngunni. Var passlega bjartsýn á að ná góðri mynd, svona litlir töffarar sitja ekki fyrir mynd eftir pöntun, en þetta gekk svona vel, hann var meira að segja með mismunandi "pósur". Kíkið bara á myndirnar á http://flickr.com/photos/hildigunnur99/