Fór til ljósmóðurinnar í dag og allt lítur vel út að venju. Hún sirkaði að litla væri orðin 3400 g og fannst að hún væri búin að skorða sig. Enda var ég hissa á því fyrir um 2 dögum þegar ég var laus við nábítinn n.k. veginn heilt kvöld og fram á morgun, var fín tilbreyting. Þá er hún kannski komin neðar og léttir þar með á maganum og greyið krömdu innyflunum. Er svo orðin sjálf 79.4 kg, stefni ótrauð á 80 kg markið! Verð þá búin að þyngjast um 21 kg ca, það er nokkuð meira en síðast.
Fer svo aftur í skoðun eftir viku, daginn fyrir "setta" dagsetningu, 4. apríl, ekki nema litla láti sjá sig fyrr. Þetta er heldur betur spennandi. Hvað segið þið, hvenær giskið þið á að litla komi, eigum að stofna til veðmáls?
Á morgun kemur Siggi, pabbi hans Halls til borgarinnar - bætir innliti til okkar við vinnuferð. Það verður gaman að fá hann í heimsókn og Grímur kann örugglega að meta það.
Hafið það gott um helgina.