04 apríl 2008

Aprílsól

Hér skín sólin og það er vor í lofti. Það verður fínt hjá okkur Hönnu Freyju þegar við förum að rölta út um allt með barnavagninn.
Erum nýkomin frá heimilislækninum okkar, sem kíkti á hana litlu, bara til að vera viss um að allt sé "í orden", og það var allt í besta lagi með hana, nema hvað.
Mamma er nýlent og er sjálfsögðu á spani í gegnum flugvellinn, óþolinmóð að sjá litlu prinsessuna. Þær verða hjá okkur ömmurnar tvær fram á morgun, þegar Hanna fer. Grímur Logi verður örugglega glaður að hafa þær báðar til að stjana við sig. Hann er enn aðeins ringlaður í öllum ömmunum, það verður að hafa þær báðar, til að koma á hreint hver er hvað.

Annars var nóttin hjá okkur þægilegri í nótt, svaf nú á milli gjafa, þannig að ég er ekki eins svefnvana.

Hafið það gott um helgina!