Við Grímur Logi og Hanna Freyja vorum saman heima í dag. Fyrsti dagurinn minn ein með börnunum:) Grímur var heima því að hluti fóstra í Kaupmannahöfn, Frederiksberg og víðar, eru í verkfalli. Það er að segja ófaglærðu fóstrurnar, lærðu fóstrurnar frestuðu sínu verkfalli um daginn, en eru þó ekki búnar að samþykkja launahækkun sína. Aðeins flókið... Af því að það vantar starfsmenn á vöggustofuna, þá geta ekki öll börnin verið í einu. Grímur skiptist á að vera í vöggustofunni í 4 daga og heima í 2 daga. Alla vega, við verðum heima saman út vikuna. Ég hugsaði með mér snemma í morgun (mjög snemma) að nú væri best að hugsa ekki með sér "oh, þetta verður meira puðið" og hugsa frekar "en hvað ég er heppin að geta verið heima með börnunum mínum". Ég reyndi svo að hafa það hugfast yfir daginn:)
Það komu smá álagspunktar, eins og þegar ég setti Grím út í vagninn og litla rófa orgaði aðeins á meðan og svo var ég orðin aðeins lúin seinni partinn, en annars lukkaðist þetta. Í morgun komu Svana og Skarphéðinn í kaffi til okkar og svo fórum við út í garð í góða veðrið og sólina seinni partinn. Það er hætta-með-bleyju-þjálfun í gangi hjá Grími og hann var því bleyjulaus úti í garði. Svo gerðist reyndar smá pyssuslys hjá honum undir lokin, þrátt fyrir að ég væri nýbúin að spyrja hvort hann þyrfti á klósettið. Það er auðvitað óþægilegt að vera með blautar buxur, þannig að hann ætlaði að tosa allt niður um sig úti í garði. Ég var ekki alveg á því.
Grímur er voða góður við Hönnu Freyju. Held þó að hann sé farinn að átta sig meira á ástandinu, núna þegar litla systir er orðin mánaðargömul og sér að hún er komin til að vera. Í gær og í dag sat hann í stólnum sínum við eldhúsborðið og hrópaði í áttin að vöggu Hönnu Freyju (sem var þó ekki í henni) : "Þetta er MÍN mamma!". Hann hefur líka verið örlítið mömmuveikur og verið að leggja áherslu á að ég sé mamma hans.
Í gær, þegar hann var nývaknaður og kúrði uppi í rúmi hjá okkur, var ég ansi þreytt því að Hanna Freyja hafði vaknað um hálf fimm og vakti í um klukkutíma, aldrei þessu vant. Ég var því vel mygluð um 7 leytið og lygndi aftur augunum með þau litlu sitt hvoru megin við mig. Þá spurði Grímur "Hvað ertu að gera mamma?". Ég svaraði "Ég er að reyna að hvíla mig", og þá sagði þá stutti "Ekki reyna að að hvíla mig" :)
Ég átti líka að koma fram með honum, hann vill endilega hafa mig með, sem er mjög sætt. Svona var nú byrjuð vel áður en litla kom í heiminn. Reyndar fannst mér hann verða mömmutengdari mjög fljótlega eftir að ég varð ólétt.
Það hefur verið nóg af heimsóknum undanfarið. Fyrst komu pabbi, Ragna Margrét og Ingólfur Páll bróðir, og Arngunnur systir og Ísabella. Þau voru öll saman á hóteli hér í hverfinu og svo voru Arngunnur og Ísabella áfram hér hjá okkur. Var voða gaman og voða gott að fá að sjá litlu frænku. Hún er orðin svo stór og myndarleg og er ótrúlega geðgóð og brosir út í eitt. Við höfðum það gott, fórum á kaffihús og brunch og Frederiksberg garðinn og Ragna eldaði fyrir okkur bæði humar og lamb frá Íslandi. Svo dóluðum við Arngunnur og börnin okkur, fórum á leikvöll og vorum úti í garði og hittum Ingu vinkonu á kaffihúsi með Nóa litla sinn.
Sama dag og Arngunnur fóru heim, komu svo Hanna tengdó og Sturri, og amma og afi Halls, Dúna og Hallur. Þau voru dugleg í bæjarröltinu og við Hanna Freyja komum með þeim einn daginn. Við borðuðum líka með þeim á Marriott hótelinu og tókum því rólega saman hér heima. Það var virkilega gott veður, rétt eins og hefur verið og við röltum t.d. á Nörrebro leikvöllinn hér nálægt okkur og sátum úti á kaffihúsi, hreint ekki slæmt.
Svo eru Sigrún vinkona og fjölskylda hennar komin til borgarinna og þau ætla að kíkja á okkur á fimmtudaginn. Það er fínt að fá svona félagsskap. Jú og svo kemur Elísabet og co hingað um helgina til að fara í fermingu í fjölskyldunni og ætla að kíkja eitthvað á okkur í leiðinni.
Ég er að hlaða inn myndum núna á Flickr myndasíðuna og það er meira á leiðinni.