
Við Hanna Freyja tókum því rólega í dag. Svo fæ ég samviskubit þegar ég geri "ekki neitt" og uppvaskið bíður eftir því að vera sett í uppþvottavélina. Er ekki dálítið skondið að maður sé rétt nýbúin að eignast barn og finnist ferlegt að maður sé ekki búin að snyrta íbúðina til fyrir kl. 15? humm...
Svo komu strákarnir mínir heim og við fórum öll út í garð og nutum sólarinnar.
Ég er búin að bóka flug fyrir mig og börnin (ha,ha, "börnin") þann 3. júní til Íslands, og við stefnum á að vera út mánuðinn. Hallur kemur þegar hann er búinn með önnina í skólanum, ca 25. júní. Það verður gott að vera á landinu og vera með fjölskyldunni.