05 apríl 2008

Ömmuheimsókn


Amma Hanna og Amma Gunna eru búnar að vera í heimsókn hjá okkur. Hanna kom á miðvikudaginn og mamma bættist við hópinn í gær, föstudag. Það er búið að vera mjög ljúft að hafa þær hjá okkur, eru búnar að vera að sinna barnabörnunum og okkur. Í gær fóru svo Hanna og Hallur með Grími og keyptu forláta hjól, sem á eftir að prófa betur. Í dag fóru mamma og Grímur í göngutúr og voru svo hér úti í garði með öðrum í íslensku mafíunni, fengu kaffi og kökur og Grímur lék sér við krakkana. Á meðan komu Kalli, Agnes og Máni í heimsókn til að sjá litlu rófu. Mamma fer nú að huga að kvöldmatinum, wienerschnitsel með öllu.
Posted by Picasa