
Við erum hér í rólegheitum saman litla fjölskyldan og Hanna tengdamamma. Hallur fór í skólann í morgun og Grímur á vöggustofuna. Við Hanna og Hanna Freyja vorum hér saman í rólegheitum. Hanna Freyja fékk sér reglulega að súpa og við lögðum okkur allar oftar en einu sinni. Vorum í nokkurs konar nýfæddu-móki, voða notalegt. Hanna Freyja naut þess að láta ömmu sína halda á sér sem allra mest, í staðinn fyrir að lúlla í fínu Stokke vöggunni sinni og amman er sérlega ánægð með að geta sinnt því.

Seinni partinn kom Charlott ljósmóðir í heimsókn til okkar og tók PKU blóðprufu og spjallaði við okkur. Svo galdraði Hanna fram kaffihlaðborð og pönnukökur, mjög notalegt það.

Nú sefur Hanna Freyja og safnar líklega kröftum fyrir nóttina. Í gærkvöldi drakk hún allt kvöldið, ég var dugleg að leggja hana á brjóst og vonaði að fá aðeins meira svefn um nóttina en undanfarnar nætur, brjóstastærðin mín hafði tvöfaldast seint um kvöldið frá því um daginn en litla drakk samt sem áður til um 3 um nóttina. Tók svo 2 ágætis lúra undir morgun. Maður verður að vinna upp þetta þyngdartap sem verður eftir fæðingu, hún fæddist 3700 g og var 3500 g í gær þegar heilsugæsluhjúkrunarkonan vigtaði hana.
Grímur og Hallur eru nýkomnir inn eftir að hafa hitt á Íslendingaklíkuna úti í garði, ég skrapp líka rétt aðeins út til að fá mér súrefni.
Dyrabjallan hringdi rétt áðan og Grímur hrópaði "Nei, afi Sturri!". Þetta var því miður bara pósturinn með sendingu handa mömmu, sem lætur ekki stoppa sig í að versla aðeins þó að hún sé heima við.
Hann er mjög duglegur að láta lesa fyrir Kátir Kenjakrakkar, amma hans er að syngja bókina fyrir hann í þriðja sinn í röð. Þegar Siggi afi var hér, þá var Stúfur tekinn fyrir og lesinn aftur og aftur.
Það eru nýjar myndir komnar á Flickr, mér fannst ég svo dugleg að setja fljótt inn myndir en heyrði útundan mér að einhverjir væru óþolinmóðir að fá að sjá nýjar myndir:)