

Þá erum við fjölskyldan ein í kotinu eftir að mamma fór heim í dag. Það var enginn til að elda fyrir okkur kvöldmat! Við redduðum okkur þó með afgangs lummudeigi, spældum eggjum, bökuðum baunum og kalkúnabollum úr Super Best. Þar áður vorum við úti í garði að spjalla við Íslendingaklíkuna í fínu vorveðri. Hanna Freyja bættist við hópinn í vagninum og blundaði.
Siggi Valur kíkti til okkar og borðaði með okkur, er í vinnuskreppitúr á vegum vinnunnar.
Annars er lítið að frétta - Hanna Freyja tók sig til og svaf heila 5 tíma eftir miðnætursopann og gladdi þannig mömmu sína. Vaknaði kl. 5:30 og svaf svo í um 3,5 tíma, ekki slæmt það.
Í gær fórum við í fyrsta göngutúrinn með Hönnu Freyju, ég og mamma og Grímur. Þegar við komum aftur heim, kíkti Grímur inn og spurði "Hvar er systir?", hafði s.s. ekki áttað sig á því að hún væri með.
Í dag var litla böðuð í fyrsta sinn, hafði ætlað að bíða eftir að Hallur og Grímur kæmu heim, en eftir að hún ældi hressilega mjólkurskammti og kúkaði í bleyjuna, var greinilega sniðugast að skella henni í bað. Henni leið vel í baðinu og lygndi aftur augunum. Það var hins vegar ekki eins sniðugt að koma upp úr og láta þurrka sig og klæða.