Við höfum það fínt hér á Borups Allé, litla Hanna Freyja þrífst vel og er ánægð að mjólkin hjá mömmu er byrjuð að koma.
Grímur Logi fór á vöggustofuna í gær og við Hallur fórum á Hvidovre spítala, til að fá Resus sprautu handa mér. Ég er s.s. Resus negatív og Hanna Freyja er Resus pósitív, þannig að ég þurfti að fá mótefnissprautu ef maður ætlar í frekari barneignir. Ekki að við séum farin að plana það:) Það tók að sjálfsögðu góðan tíma fyrir okkur að koma okkur út úr húsi, en svo gekk bílferðin í leigubílnum og ferðin í heild svona glimrandi vel, því að Hanna Freyja svaf þetta allt af sér. Fimm mínútum fyrir brottför prófuðum við snuddu og hún tók hana "med det samme".
Svo fór Hallur að sækja Grím eftir að við komum heim og stóri bróðir spurði hvar litla systir væri um leið og hann kom heim og heimtaði að fá að halda á henni.
Nóttin var eytt í brjóstagjöf, kemur ekki á óvart. Um eitt leytið fóru að heyrast kyngju hljóð í litlu og þannig að hún væri að fá eitthvað að súpa. Eftir að hún komst á bragðið, hélt hún að sjálfsögðu áfram í fáeina tíma:)
Í dag kom svo hin af tveimur ljósmæðrunum mínum í heimsókn og athugaði hvort við værum ekki í góðu standi.
Nú er fjölskyldan mín sofandi, ég ætti að sjálfsögðu að gera hið sama, en er ágætlega sett eftir lúra dagsins og sit og horfi á Aðþrengdar eiginkonur. Hanna tengdó kemur til okkar á morgun, hlakkar mikið til að sjá nöfnu sína.